Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 12
Menning fimmtudagur 26. júlí 200712 Menning DV Svartfugl flýgur aftur Bjartur og Stofnun Gunn- ars Gunnarssonar hafa samið um kiljuútgáfu á skáldsögunni Svartfugl sem Gunnar skrifaði á fyrri hluta 20. aldar. Viðbrögð- in þegar bókin kom fyrst út voru flest á eina lund; hér var komið magnað skáldverk, kannski al- besta verk höfundarins. Sögu- legur bakgrunnur Svartfugls er eitthvert frægasta morðmál Íslandssögunnar, svokölluð Sjöundármorð. Í bókinni er dregin upp skörp mynd af ís- lensku samfélagi um aldamót- in 1800, stéttaskiptingu þess, blindri réttvísi kirkju, kóngs og embættismanna. Jón Yngvi Jó- hannsson ritar formála. Speglasýning á Akureyri Birta Guðjónsdóttir opnar sýningu sína Speglasýningin (endurvörpun) í galleriBOXi á Akureyri á laugardaginn kl. 14. Birta segist viljug hafa látið lokkast inn í klassískasta leik allra tíma, leikinn við ljósbrotið, og alltaf látið gabbast. Sýningin stendur til 12. ágúst og er opið á laugardögum og sunnudögum frá 14 til 17. ganga menningarhátíð Ilmur Stefánsdóttir leiðir öðruvísi göngu um miðbæ Reykjavíkur í kvöld: Gengið með skynfærunum „Þetta verður labb um miðbæ- inn með breyttum augum og öðrum skynfærum heldur en við erum vön í göngu okkar um miðbæinn. Eða rétt- ara sagt, labb með skynfærunum,“ segir Ilmur Stefáns- dóttir myndlistar- kona sem ætlar að varpa nýju ljósi á miðbæ Reykjavíkur í kvöld í áttundu Kvosargöngu sum- arsins. Spurð hvernig hún hyggst virkja skynfæri göngufólks segist Ilmur nota til þess hinar og þessar aðferð- ir og lítil hjálpartæki, án þess að vilja gefa of mikið upp. „Ég get kannski gefið dæmi; til að mynda gæti verið skemmtilegt að standa og horfa eins og maður ímyndar sér að Jón Sig- urðsson sjái bæinn. Svo gæti verið skemmtilegt að prófa að setja nýjan lit fyrir augun á sér og fleira og fleira,“ segir Ilmur. Hún segir fólk þó ekki þurfa að setja sig í stellingar til að fara að klifra upp á styttur. „Við erum ekkert að fara að brjóta lög. Þetta er allt innan ramma lag- anna. Ég hef líka unnið svolítið með að blanda saman ólíkum hlutum eða heimum. Jafnvel það að ímynda sér að sjá með augum útlendings eða skoða áhrif frá öðrum löndum í Reykjavík eða ímynda okkur að við séum komin í stórborg. Ég er í raun- inni að fara að taka út lítil atriði og skoða sem við kannski veitum venju- lega ekki athygli,“ segir Ilmur. Fyrir þá sem eru spenntir að vita meira og upplifa er um að gera að mæta í Grófina milli Tryggvagötu 15 og 17 þaðan sem lagt verður í hann kl. 20 í kvöld. Gangan tekur um klukku- stund og er þátttaka ókeypis. kristjanh@dv.is „Við höfum lagt nótt við dag við undirbúninginn og ekki sofið mikið. Við viljum líka opna húsið með stæl,“ segir Ellen Marie Fod- stad, framkvæmdastjóri REYFI- menningarhátíðarinnar, sem hald- in verður í Norræna húsinu í ágúst. Dagskráin, sem kynnt var á blaða- mannafundi í fyrradag, hefst með opnun Menningarnætur Reykjavík- ur 18. ágúst en athöfnin fer fram í 700 fermetra glerskála sem leigður hefur verið frá Hollandi í tilefni há- tíðarinnar. Hátíðin er líka eitt skref í átt að enduropnun Norræna húss- ins eftir gagngerar endurbætur sem þó verður ekki lokið að fullu fyrr en á næsta ári þegar húsið fagnar 40 ára afmæli. Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi Tugir listamanna alls staðar að frá Norðurlöndunum eru væntan- legir á hátíðina auk þess sem Ís- lendingar skipa þar stóran sess. Ef krakkar úr Vinnuskóla Reykjavík- ur, sem meðal annars hafa hann- að flíkur og unnið svokölluð rusl- listaverk í tengslum við REYFI, eru einnig taldir með hleypur fjöldi þátttakenda líklega á hundruðum. Dagskráin er afar fjölbreytt og lista- menn í mörgum listgreinum koma fram, þar á meðal tónlistarmenn, rithöfundar, ljósmyndarar, arkitekt- ar og vídeólistamenn. Sirkus, Megas og vídeólist Aðspurð hverju fólk má alls ekki missa af á hátíðinni nefnir Ellen fyrst fjölleikahúsið Med andra ord frá Finnlandi. „Þetta er súrrealísk- ur sirkus sem er mjög spennandi að sjá. Svo verð ég að nefna Magn- et þar sem hann er frá Noregi eins og ég. Þegar maður heyrir hann syngja verður maður hreinlega glaður og líður vel. Síðan hlakka ég til að heyra í Megasi, en hann kemur oft í Norræna húsið og fær sér hádegismat, og Seabear. Svo er ég mjög hrifin af vídeólist og því spennt að sjá verk vídeó- listamannanna á hátíðinni,“ segir Ellen. Þess má geta að á hátíðinni verður líka eitthvað fyrir börnin, til að mynda barnaleikhús og sirk- uslistasmiðja. Að sögn Ellenar er aldrei að vita nema hátíðin verði endurtek- in. „Hátíðin er allavega bara fors- mekkurinn af því sem koma í skal í Norræna húsinu.“ Nánari upplýsingar um hátíð- ina er að finna á reyfi.is. kristjanh@dv.is Hátíðin REYFI - menningargnægð verður haldin í Norræna húsinu 18.–26. ágúst. Tugir listamanna alls staðar að frá Norðurlöndunum eru væntanlegir á hátíðina. Hátíðin er liður í eins konar upprisu Norræna hússins sem verður 40 ára á næsta ári. Aðventa endurútgefin Bjartur og Stofnun Gunn- ars Gunnarssonar hafa einnig samið um kiljuútgáfu á annarri skáldsögu Gunnars, Aðventu. Engin bók Gunnars hefur farið jafnvíða um lönd og Að- venta sem hefur verið þýdd á um 20 tungumál. Sagan er einföld á yfirborðinu, ekki flókin þeg- ar því sleppir heldur djúp og frjósöm. Þessi saga af aðalpers- ónunni Benedikt og leit hans að kindum uppi á öræfum í grimmasta mánuði íslensks vetrar á rætur sínar í veruleik- anum. Jón Kalman Stefánsson ritar formála. Vala og Björg á hádegis- stefnumóti Vala Torfadóttir og Björg Ingadóttir hjá Spaksmanns- spjörum ætla að ræða við gesti á hádegisstefnumóti Kjarvals- staða í dag. Í tilkynningu segir að lykillinn að gjöfulu samstarfi Völu og Bjargar í áravís sé ekki síst fólginn í því að framleiðslan sé fyrir konur einmitt eins og þær sjálfar. Fjöldinn allur flokk- ist nefnilega hvorki undir ungl- ingsstúlkur né settlegar frúr, en séu á annasamasta skeiði æv- innar, sjálfstæðar og upplýstar nútímakonur. Stefnumótið við Völu og Björgu hefst kl. 12 og varir í tuttugu mínútur. Ilmur Stefánsdóttir myndlistar- kona „Við erum ekkert að fara að brjóta lög.“ Magnet Norska söngvaskáldið magnet er væntanlegt á rEYfi. Havnarkórið færeyski kórinn Havnarkórið hefur m.a. sungið í Carnegie Hall í New York. Aðstandendur hátíðarinnar Ellen marie fodstad, framkvæmdastjóri rEYfi, ragnheiður Harvey, kynningar- fulltrúi Norræna hússins, og max dager, forstjóri Norræna hússins.UPPRISA Norræna hússins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.