Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 8
Heilbrigðisyfirvöld í Ungverja- landi segja að allt að fimm hundr- uð manns hafi látið lífið í hitabylgju sem gengur yfir landið líkt og ann- ars staðar í Austur- og Mið-Evrópu. Miklir eldar hafa sprottið upp um alla álfuna og stjórnvöld standa í ströngu í baráttu sinni við þá. Víða geisa eldar sem hafa bloss- að upp í kjölfar mikilla þurrka og hvarvetna eiga slökkviliðsmenn fullt í fangi í baráttu sinni við þá. Í Puglia-héraði á Ítalíu áttu þúsund- ir ferðamanna fótum fjör að launa eftir að eldur, sem skyndilega bloss- aði upp, kom þeim að óvörum. Eina skjól ferðamannanna var strönd- in og þurfti að ræsa út björgunar- lið til þess að bjarga um fjögur þús- und ferðamönnum sem voru fastir í sjálfheldu á ströndinni á meðan eldurinn geisaði. Bílar og hús urðu eldinum að bráð en yfirvöld á Ítalíu segja tvo hafa látist í hitum undan- farna daga. Skógareldar eru daglegt brauð í austurhluta Evrópu um þess- ar mundir. Gríðarlegt álag er á slökkviliðsmönnum í Bosníu, Búlg- aríu, Grikklandi og Makedóníu og slökkvilið í Serbíu börðust við skóg- arelda á fimmtíu stöðum í landinu í gær. Veðurfræðingar spá því að hit- inn á svæðinu geti farið upp í allt að 45 gráður á morgun en síðan muni hann lækka. Verst í Ungverjalandi Undanfarnar vikur hefur ástand- ið verið einna verst í Ungverjalandi þar sem hitinn hefur verið í kring- um fjörutíu gráður. Allt að fimm hundruð manns hafa látist í hita- bylgjunni þar í landi og óttast er að fleiri verði hitunum að bráð á næstu vikum. Skemmst er að minnast þess árið 2003 þegar um fimmtán þús- und eldri borgarar létu lífið í hita- bylgju í Frakklandi árið 2003. Hitastigið lækkaði úr fjörutíu gráðum niður í tuttugu og fimm í fyrsta skipti í tvær vikur í gær en áfram geisuðu eldar um allt landið. Ungverskir slökkviliðsmenn hafa barist nótt sem dag við eldana sem alls hafa brennt þúsund hektara landsvæði. Fjöldi íbúa án rafmagns Eldarnir hafa valdið miklum skaða á raflínum og stór svæði eru án rafmagns. Forseti Makedón- íu, Branko Crvenkovski, lýsti yfir neyðarástandi og kallaði herinn til aðstoðar í baráttunni við elda sem eyðilagt hafa raflínur og gert stór svæði nær óbyggileg fyrir íbúa. Vandamálin ná víðar en um Make- dóníu því Albanir eru án rafmagns eftir að straumlína sem liggur til landsins frá Makedóníu rofnaði. Einnig gætti rafmagnsleysis í Grikk- landi, Kosovo og Montenegró af ýmsum ástæðum. Yfirvöld í Grikklandi hafa þeg- ar ræst út þúsund manna varalið slökkviliðsmanna til að berjast við sinu- og skógarelda í norðan- og vestanverðu landinu. Nú þegar hefur einn maður á eyjunni Korfú látist af völdum hitaslags. Yfirvöld hafa biðl- að til fólks að nota sem minnst raf- magn í viðleitni sinni að koma í veg fyrir að atburðir fimmtudags í síðustu viku endurtaki sig þegar rafmagn fór af stórum svæðum í landinu. Þau hafa lagt sitt af mörkum með því að senda opinbera starfsmenn snemma heim úr vinnu til að spara rafmagn. Jarðarbúar mega búast oftar við þessu. Vísindamenn segja að orsök Miklir hitar og þurrkar ríða yfir Evrópu og stjórnvöld suður- og austurhluta álf- unnar þurfa að hafa sig öll við í baráttu við skógarelda sem víða geisa. Hundruð hafa látist af völdum hitabylgjunnar. HUNDRUÐ LÁTAST VEGNA HITABYLGJU Í EVRÓPU fimmtudagur 26. júlí 20078 Fréttir DV Viðar GUðJónsson blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Eldar geisa ungverskur slökkviliðsmaður sést hér berjast við skógareld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.