Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 27
Kvikmyndar ofurhetjur Framleiðandinn Avi Arad segir í nýlegu viðtali að fyrirtæki hans Marvel Studios hyggist kvik- mynda þónokkrar kostnaðarsam- ar ofurhetju- myndir á næstunni í Ástralíu. Tíu myndir liggja á borðinu hjá Arad en óljóst er um hvaða ofurhetjumyndir er að ræða en eitt er víst, hann hefur í hyggju að ráða ástralskan leikstjóra í eina af þeim. Fróðir menn telja það verða Alex Proyas sem leikstýrði The Crow og I Robot og komi hann til með að leikstýra mynd um The Silver Surfer sem birtist í Fantastic Four: Rise Of The Silver Surfer. fimmtudagur 26. júlí 2007DV Bíó 27 Já, maður Jim Carrey hefur nú staðfest að hann taki að sér hlutverk í nýjustu grínmyndinni úr smiðju Warner Bros sem ber heitið Yes Man. Myndin fjallar um mann sem tekur ákvörðun um að breyta lífi sínu með því að segja já við akkúrat öllu sem honum býðst. Að segja já við öllu leiðir hann í ýmsar skondnar aðstæður sem snúa lífi hans á hvolf. Carrey mun leika í Yes Man í október áður en hann hefst handa við að leika í A Christmas Carol sem Robert Zemeckis leikstýrir fyrir Disney. Kvikmynd um fyrrverandi Madonna vill nú gera kvikmynd um gamlan ástmann sinn, mafíósann Chris Paciello, en þau áttu í lostafullu sambandi í byrjun tíunda áratugarins sem upp úr slitnaði þegar Paciello var settur í fangelsi fyrir aðild að morði og ráni. Eftir að hann var látinn laus úr prísundinni hefur Madonna hitt hann þrisvar til að ræða við hann um gerð kvikmyndar um ævi hans byggða á bókinni Mob Over Miami. Mark Wahlberg, John Cusack og Milo Ventimiglia hafa verið orðaðir við myndina en ekki eiginmaður Madonnu Guy Ritchie. Leikur í Harry Potter Naomi Watts var orðuð við hlutverk í næstu Harry Potter- mynd í síðasta mánuði en nú virðist það staðfest að sjást muni til hennar í Harry Potter and the Half- Blood Prince. Watts sem á von á barni eftir nokkrar vikur hefur ráðið sig í hlutverk hinnar kvikindislegu móður Dracos, Narcissu Malfoy, en tökur á myndinni hefjast ekki fyrr en um miðjan september. Aðrir sem koma til með að leika aukahlutverk í myndinni eru Joseph Fiennes og Stuart Townsend en þeirra hlutverk hafa ekki verið ákveðin. Arthúr www.fjandinn.com/arthur Mannakorn gáfu út sína fyrstu plötu 1975. MANNAKORN á MIKLATÚNI „Við komum til með að spila á tónleik- um Rásar 2 á Menningarnótt,“ segir Pálmi Gunnarsson, söngvari sögu- frægu hljómsveitarinnar Manna- korns. Tónleikarnir Mannakorns eru partur af stórtónleikum Rásar 2 og Landsbankans sem verða haldnir á Miklatúni á Menningarnótt. Manna- korn er ein þeirra tíu hljómsveita sem koma fram á tónleikunum en kynnt verður á blaðamannafundi á Kjar- valstöðum klukkan tvö í dag hverjar hinar níu eru. Fullir af lífi Pálmi segir að hann og Magn- ús Eiríksson sem hafa verið for- sprakkar Mannakorns um áratuga- bil séu langt frá því að vera dauðir úr öllum æðum. „Bandið er til og við erum lifandi,“ segir Pálmi eld- hress. „Auk þess að spila á tónleik- unum á Menningarnótt munum við einnig halda tónleika í Salnum í Kópavogi í haust,“ segir Pálmi og talar um að þeim félögum líka vel að spila þar. Hljómsveitin Manna- korn gaf út sína fyrstu plötu árið 1975 og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og 11 plötur verið gefnar út í heildina. Ýmsar manna- breytingar hafa átt sér stað í gegn- um tíðina en þeir Pálmi og Magnús hafa alltaf verið andlit sveitarinnar. „Það er ekki komin endanleg upp- stilling á hljómsveitinni sem spil- ar á Menningarnótt en þau Ellen, Agnar Már og Gulli Breim munu spila með okkur eins og undanfar- ið. Það gæti þó verið að við bæt- um við okkur hljómborðsleikara og jafnvel hammond-leikara,“ seg- ir Pálmi um mannaskipan sveitar- innar á Menningarnótt. Nýtt efni í haust Pálmi segir að ekki sé ný plata í burðarliðnum en sveitin muni engu að síður taka upp nýtt efni í haust. „Við erum komnir eitthvað áleiðis og erum búnir að ákveða að taka upp eitt eða tvö ný lög í haust. Síðan sjáum við til hvert það leiðir okkur,“ segir Pálmi um framhaldið. „Það er ekkert sem þrýstir á okkur nema við sjálfir og við höfum mjög gaman af því að vera í stúdíói en maður gerir bara það sem andinn blæs í brjóst í það og það skiptið.“ Pálmi segir að lokum að Mannakorn sé einnig að skoða tónleika úti á landi sem ætti að gleðja aðdáendur sveitarinnar úti á landsbyggðinni. „Við eigum nóg eftir,“ segir Pálmi glaðbeittur. Pálmi Gunnarsson Segir mannakorn ætla að taka upp ný lög í haust. Mannakorn er ein þeirra tíu hljóm- sveita sem troða upp á stórtónleik- um Rásar 2 og Landsbankans á Miklatúni á Menn- ingarnótt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.