Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Blaðsíða 16
Stefán Logi Magnússon, markvörð- ur KR, átti stórleik og bjargaði mikil- vægu stigi fyrir KR þegar liðið heim- sótti Breiðablik á Kópavogsvöll í gær. Lokatölur urðu 1-1 í leik þar sem Breiðablik réð ferðinni. KR-ingar lögðu upp með að spila varnarleik og beita skyndisóknum. KR er enn á botni deildarinnar eftir leikina í gær og Breiðablik er í sjötta sæti. Upphafsmínútur leiksins voru bráðfjörugar. Breiðablik lét boltann ganga vel innan liðsins, sótti meira og KR-ingar beittu skyndisóknum. Það voru Blikar sem fengu fyrsta færi leiksins, á 6. mínútu. Nenad Zi- vanovic komst einn á móti Stefáni Loga, markverði KR, sem varði skot Zivanovic. Boltinn fór út í teiginn þar sem Arnar Grétarsson var mættur til að skjóta á markið og aftur varði Stef- án. Tveimur mínútum síðar vildu Breiðabliksmenn fá dæmda víta- spyrnu þegar Stefán Logi virtist brjóta á Nenad Zivanovic innan víta- teigs. Sævar Jónsson dómari sá aftur á móti enga ástæðu til að dæma. KR-ingar fengu sitt fyrsta færi á 9. mínútu þegar skyndisókn þeirra skapaði vandamál í vörn Breiðabliks. Sigmundur Kristjánsson og Guð- mundur Pétursson léku vel á milli sín sem lauk með því að Sigmund- ur var skyndilega einn á auðum sjó inni á markteig en Casper Jacobsen, markvörður Breiðabliks, sá við hon- um og varði. Blikar sóttu meira og þeir voru líklegri til að skora fyrsta markið. Nenad Zivanovic var nálægt því á 11. mínútu þegar hann fékk sendingu frá Gunnari Erni Jónssyni og skallaði rétt framhjá marki KR. Leikurinn róaðist eilítið eftir þetta. Blikar héldu þó áfram að spila vel á milli sín. Vörn KR var hins veg- ar þétt fyrir og gaf fá færi á sér. Tölu- verðar breytingar voru á vörn KR, Sigþór Júlíusson lék sinn fyrsta leik í sumar og Ágúst Gylfason lék í stöðu miðvarðar í fjarveru Péturs Mart- einssonar, sem er meiddur. Gegn gangi leiksins Það voru hins vegar KR-ingar sem skoruðu fyrsta mark leiksins. Á 32. mínútu fékk KR hornspyrnu, Blikar náðu að skalla boltann út úr teign- um, Ágúst Gylfason skallaði boltann aftur inn á markteig þar sem Kristinn Magnússon var aleinn og yfirgefinn og skallaði aftur fyrir sig í markið. 0- 1, gegn gangi leiksins. Stefán Logi markvörður kom KR enn og aftur til bjargar á 37. mín- útu þegar Prince Mathilda átti gott skot eftir samspil við Kristin Stein- dórsson. Stefán Logi varði hins veg- ar skotið frá Prince og KR-ingar gátu andað léttar. Minnstu munaði að KR bætti við öðru marki skömmu fyrir leikhlé þegar Gunnlaugur Jónsson skall- aði að marki Blika og Arnór Sveinn Aðalsteinsson bjargaði á marklínu. Skömmu síðar flautaði Sævar dóm- ari til loka fyrri hálfleiks og það voru KR-ingar sem leiddu. Barátta í síðari hálfleik Breiðablik hélt áfram að sækja að vörn KR í síðari hálfleik án þess þó að skapa sér hættuleg marktækifæri. KR nýtti hvert tækifæri til að vinna tíma og það virtist fara í skapið á Blikum. Pressan var mikil af hálfu Breiða- bliks og hún bar loks árangur á 71. mínútu. Eggert Rafn Einarsson gerði sig þá sekan um mistök þegar hann reyndi að hreinsa frá marki KR-inga. Það vildi ekki betur til en svo að bolt- inn fór beint á Arnór Aðalsteinsson sem skallaði fyrir markið þar sem Nenad Zivanovic var réttur maður á réttum stað og potaði boltanum yfir marklínuna af stuttu færi. Á 85. mínútu munaði minnstu að Breiðablik næði forystunni í leikn- um. Blikar fengu aukaspyrnu rétt fyr- ir utan vítateig KR-inga. Nenad Pet- rovic tók góða spyrnu sem Stefán Logi varði í stöngina. Þaðan fór bolt- inn til Prince Mathilda sem skaut en aftur varði Stefán Logi vel í markinu. Þar við sat og jafntefli því stað- reynd. KR-ingum tókst ekki að kom- ast upp fyrir Fram á botni deildarinn- ar. Blikar eru enn í sjötta sæti og eru jafntefliskóngar deildarinnar hingað til með fimm jafntefli í ellefu leikjum. Áttum að vinna Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, átti erfitt með að sætta sig við eitt stig úr leiknum. „Við verð- um að sætta okkur við þessa niður- stöðu úr þessum leik. Við vorum að- eins betri í þessum leik heldur en andstæðingurinn. Við gleymdum okkur í einu föstu leikatriði í fyrri hálfleik og það kostaði það að við unnum ekki leikinn,“ segir Ólafur. „Ég á voðalega erfitt með það á þessari stundu að sætta mig við stig- ið en ég verð að gera það. Við áttum að vinna þennan leik. Við náðum kannski ekki að komast eins mikið í gegnum vörn þeirra eins og við von- uðumst eftir. Þeir refsuðu okkur ekki í hraðaupphlaupum, það var fast leikatriði sem skóp markið hjá þeim. Sóknarlega fannst mér þeir draga okkur niður í hraða í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik fannst mér það vera í fínu lagi,“ segir Ólafur. Langt frá því sáttur Sigþór Júlíusson var að leika sinn fyrsta leik með KR í sumar. „Þetta var barningsleikur þar sem bæði liðin lögðu sig hundrað prósent fram. Mér fannst í sjálfu sér vera fullt af færum í leiknum og ótrúlegt að aðeins tvo mörk voru skoruð,“ segir Sigþór. „Við ákváðum það fyrir nokkr- um leikjum að breyta leik okkar. Við lögðum upp með sóknarleik í byrj- un móts. Við sjáum hvernig það fór, það gekk ekki upp. Þá ákváðum við að breyta leik okkar og spila meira varnarsinnað. Við erum að verjast í raun alltaf á sex mönnum og treyst- um á skyndisóknir,“ segir Sigþór „Mér fannst fyrri hálfleikur vera í þokkalegu jafnvægi. Í sjálfu sér hefðu bæði liðin getað verið búin að skora eitt mark en það vorum við sem náð- um því. Mér fannst Stebbi (Stefán Logi) oft á tíðum bjarga okkur ótrú- lega. Svo fannst mér við ekkert vera í takt við leikinn fram að markinu þeirra. Þá er eins og við gefum að- eins í og meira jafnvægi kemst aftur á leikinn,“ segir Sigþór og hann var alls ekki sáttur við stigið. „Ég er langt frá því að vera sáttur við stigið. Á meðan við vinnum ekki leiki þurfum við ekki að horfa á önn- ur lið. Við þurfum bara að einbeita okkur að okkur sjálfum og fara að vinna leik. Það er auðvitað alltaf gott að tapa ekki en eitt stig gefur okkur því miður ekki mikið. Þannig að ég er ekki sáttur,“ segir Sigþór að lokum. fimmtudagur 26. júlí 200716 Sport DV Úrslit helgarinnar landsbankadeildin Breiðablik - KR 1-1 Víkingur - Fram 2-1 Staðan lið l u j t m St 1 fH 10 7 2 1 21:10 23 2 Valur 11 6 3 2 23:14 21 3 Keflavík 10 5 3 2 17:12 18 4 ía 10 4 3 3 17:15 15 5 fylkir 11 4 3 4 11:13 15 6 Breiðabl. 11 3 5 3 15:9 14 7 Víkingur 11 3 3 5 12:18 12 8 HK 10 3 2 5 8:18 11 9 fram 11 2 2 7 11:18 8 10 Kr 11 1 4 6 9:17 7 Í kvöld: ÍA - HK (Akranesvöllur) 19:15 meistaradeildin HB - FH 0-0 danska úrvalsdeildin Álaborg - Kaupmannahöfn 1-1 OB - Lyngby 1-1 norski bikarinn Lilleström - Álasund 1-0 Haraldur freyr guðmundsson lék allan leikinn fyrir gestina. Lyn - Bodö/Glimt 1-0 Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir heimamenn. Rosenborg - Odd Grenland 1-2 Start - Haugasund 0-1 jóhannes Harðarson var í byrjunarliði Start en tekinn af velli á 60. mínútu. Strömsgodset - Notodden 4-1 Viking - Brann 2-0 Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason í byrjunarliði Brann. en Ármann Smári Björnsson kom inn sem varamaður undir lokin. Hannes Sigurðsson kom inn sem varamaður hjá Viking á 79. mínútu en Birkir Bjarnason sat allan leikinn á bekknum. Úrslit gærdagsins ÍÞrÓttaMOlar Björn í hópnum allar líkur eru á því að hinn efnilegi Björn Bergmann Sigurðsson verði í leikmanna- hópi ía sem tekur á móti HK í kvöld. Björn er að jafna sig á meiðslum sem hann hefur verið að stríða við. Hann er fæddur árið 1991 og hefur vakið talsverða athygli fyrir framgöngu sína í sóknarleik Skagamanna. leikur ía og HK er eini leikur kvöldsins í landsbanka- deildinni og hefst hann klukkan 19.15 en á laugardag leika fH og Keflavík í lokaleik umferðarinnar. Búið er að bæta við 400 stólum í nýjan hluta stúkunnar á akranesvelli en vaskur hópur manna vann við það um síðustu helgi. undanúrsLit í daG Nú standa fjórar þjóðir eftir í úrslitakeppni Em u-19 kvenna og er leikið í undanúrslitum í dag. Á laugardalsvelli leika Þýskaland og frakkland klukkan 16 og þremur tímum síðar mætast England og Noregur á Kr- velli. Þess má geta að Þýskaland og frakkland léku til úrslita í síðustu keppni u-19 kvenna og höfðu þá Þjóðverjar betur. Það má því búast við hörkuleik í laugardal þar sem franska liðið hyggur á hefndir. Þessar þjóðir sem leika í undanúrslitum eru ekki aðeins ennþá í baráttunni um Evrópumeist- aratitilinn, heldur hafa þær einnig tryggt sér þátttökurétt á Hm u-20 kvenna sem fram fer í Chile. Við hvetjum fótboltaáhugafólk að kíkja á völlinn. 1 1 BREIÐABLIK KR Mark: Nenad Zivanovic (70.) Mark: Kristinn J. Magnússon (32.) 7 7 7 6 7 4 6 6 8 4 5 14 8 4 6 3 1 0 Casper Jacobsen Árni Kristinn Gunnarsson Arnór S. Aðalsteinsson (88.) Srdjan Gasic Guðmann Þórisson Gunnar Örn Jónsson (69.) Arnar Grétarsson Nenad Petrovic Nenad Zivanovic Kristinn Steindórsson (82.) Prince Reuben Mathilda Stefán Logi Magnússon Sigþór Júlíusson Ágúst Gylfason Gunnlaugur Jónsson Eggert Rafn Einarsson Sigmundur Kristjánsson (83.) Kristinn J. Magnússon Ásgeir Örn Ólafsson Skúli Jón Friðgeirsson (76.) Rúnar Kristinsson (46.) Guðmundur Pétursson TÖLFRÆÐI SKOT SKOT Á MARKIÐ SKOT VARIN HORNSPYRNUR RANGSTAÐA GUL SPJÖLD RAUÐ SPJÖLD 8 6 7 4 3 3 0 8 6 7 7 4 5 6 5 5 4 5 VARAMENN: 69. Steinþór Þorsteinsson - 6, 82. Magnús Páll Gunnarsson, 88. Kristján Óli Sigurðsson. VARAMENN: 46. Grétar Hjartarson - 6, 76. Óskar Örn Hauksson, 83. Björgólfur Takefúsa. Dómari: Sævar Jónsson - 5 Áhorfendur: 1.756 MAÐUR LEIKSINS: Stefán Logi Magnússon Stefán Logi Eggert Gunnlaugur Ágúst Sigþór Skúli Jón Ásgeir Kristinn Sigmundur Rúnar Guðmundur P. Casper Arnór Gasic Guðmann Árni Zivanovic Gunnar Örn Petrovic Arnar Prince Kristinn Breiðablik og KR skildu jöfn 1-1 á Kópavogsvelli í gær. Breiðablik sótti meira í leiknum á meðan KR spilaði stífan varnarleik og beitti skyndisóknum. Gestirnir skoruðu í fyrri hálfleik en Blikar jöfnuðu í þeim síðari. Kr-ingUM neitaÐ UM sigUr daGur sveinn daGBjartsson blaðamaður skrifar: dagur@dv.is jafnt á Kópavogs- velli Kr og Breiðablik skildu jöfn í baráttuleik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.