Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Side 2
Ný stjórn
Hitaveitunnar
Ný stjórn Hitaveitu Suður-
nesja var kjörin á hluthafafundi
sem boðað var til í kjölfar mikilla
hreyfinga
með hlutafé
Hitaveitunn-
ar. Fulltrúar
Reykjanes-
bæjar í nýrri
stjórn eru
Árni Sigfús-
son bæjar-
stjóri, Björk
Guðjónsdóttir og Guðbrandur
Einarsson. Fyrir hönd Geysis
Green Energy sitja Ásgeir Mar-
geirsson forstjóri og Jón Sigurðs-
son. Gunnar Svavarsson er full-
trúi Hafnarfjarðarbæjar og Harpa
Gunnarsdóttir situr fyrir Orku-
veitu Reykjavíkur.
Árni er formaður stjórnarinn-
ar, Ásgeir varaformaður hennar
og Björk er ritari.
Kaupþing skilaði 46,8 milljarða
króna hagnaði eftir skatta á fyrri
helmingi ársins. Það er um tíu millj-
örðum meira en áætlaður kostnað-
ur við byggingu hátæknisjúkrahúss
við Hringbraut. Afkomutölur Kaup-
þings voru birtar í gær. Hermann
Þórisson hjá greiningardeild Lands-
bankans segir að búist hafi verið við
því að Kaupþing myndi skila góð-
um hagnaði og telur hann afkom-
una jákvæða fyrir íslenskan mark-
að. Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreina-
sambands Íslands, líkir
vaxtastefnu bankanna
við okurstarfsemi.
Ákall verkafólks
til viðskiptaráðherra
Ef hagnaður Kaup-
þings á þessum fyrstu sex
mánuðum ársins er skoð-
aður nánar sést að bank-
inn hagnaðist um 180
þúsund krónur á mínútu,
eða sem svarar mánað-
arlaunum verkamanns.
Kristján Gunnarsson
spyr hvort ekki megi end-
urskoða vaxtastefnu
bankans í ljósi þess-
arar góðu afkomu. „Ég
held að ákall verka-
fólks til nýskipaðs við-
skiptaráðherra sé að
taka þessi mál til end-
urskoðunar. Það er kom-
inn tími til að vaxtaokr-
inu fari að linna.“ Hann
segist hafa heimildir
fyrir því að bankarn-
ir græði mest á hluta-
bréfaviðskiptum og því
óþarfi að rukka hinn
almenna borgara um
himinháa vexti. „Fólk
gengur vart svo fram-
hjá banka án þess að því sé boðinn yf-
irdráttur.“ Hagnaður hluthafa Kaup-
þings nær tvöfaldaðist á milli ára og
nam nú um 25,5 milljörðum króna.
Hermann segir þetta gríðarlega
aukningu. „Ég held að það hljóti að
teljast jákvætt fyrir Ísland að bönk-
unum gangi svona vel. Það hlýtur
að skila sér í ríkara landi.“ Afkoma
Kaupþings var hærri en spár höfðu
gert ráð fyrir. „Þetta var um millj-
arði hærra en við bjuggumst við. Sá
milljarður er að miklu leyti til kom-
inn vegna meiri gengishagnaðar og
vaxtatekna. Bankanum hefur geng-
ið vel að fjármagna á kjörum sem
skila sér í hærri vaxtatekjum.
Þessar miklu vaxta-
tekjur koma einna
helst á óvart í þessu
uppgjöri.“
Heildareignir
bankans námu í júní-
lok um 4.570,4 millj-
örðum króna og
jukust þær um
23,3 prósent á föstu
gengi frá áramót-
um. Hermann
bendir á að eign-
ir Glitnis og Lands-
bankans voru á síð-
asta ársfjórðungi
um 2.200 millj-
arðar króna
en þeir birta
báðir nýjar
afkomutöl-
ur í kring-
um mán-
aðamótin.
„Það kæmi
ekki á
óvart þótt
það yrði
mikil
aukning hjá þeim líka.“
Til samanburðar voru
eignir lífeyrissjóðanna um
1.500 milljarðar króna í lok
apríl.
Þóknunartekjur dygðu
til að tvöfalda Suður-
landsveg
Í tilkynningu sem Kaupþing
sendi frá sér í gær segir Hreiðar Már
Sigurðsson forstjóri að mikil aukn-
ing á tekjum af vöxtum og þóknun-
um einkenni uppgjörið.
Hreinar vaxtatekjur Kaupþings
jukust um 38 prósent á milli ára og
námu nú um 19,2 milljörðum króna.
Venjuleg lán námu á tímabilinu um
400 milljörðum og jukust um
20 prósent frá fyrra ári. Vext-
ir af þeim eru inni í þessari
tölu. Vaxtatekjurnar í heild
samsvara fjórföldum bygg-
ingarkostnaði höfuðstöðva
Orkuveitunnar.
Þóknunartekjur á öðr-
um ársfjórðungi jukust
um 65 prósent á milli ára
og voru nú 15,2 milljarðar
króna. Þetta eru þær tekjur
sem bankinn fær fyrir hvers
kyns þjónustu sem veitt er
viðskiptavinum,
hvort sem það
eru ein-
staklingar
eða fyrir-
tæki. Fyr-
ir þessa
upphæð
mætti tvö-
falda Suð-
urlands-
veginn ef
miðað er við
útreikninga
Vegagerðar-
innar.
fimmtudagur 26. júlí 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Kjarnafæði hefur ákveðið að inn-
kalla sendingu af Gamaldags sveita-
kæfu í 250 gramma pakkningum.
„Það sem gerðist þarna var að við
fengum ábendingu um að einstakl-
ingur hefði fengið í magann af því að
snæða þessa kæfu og við brugðum á
það ráð að kalla strax alla framleiðsl-
una inn,“ segir Eðvald Valgarðsson
hjá Kjarnafæði.
Sýni hafa þegar verið send til
rannsóknar og enn sem komið er
bendir ekkert til þess að galli hafi
verið á framleiðslunni. „Við verðum
engu að síður að hafa vaðið fyrir neð-
an okkur. Þess vegna biðjum við fólk
að hafa samband við okkur ef það
telur sig hafa þessa kæfu í ísskápn-
um,“ segir Eðvald. Pökkunardagsetn-
ing á umræddri sveitakæfu er 6. júlí
2007, og síðasti neysludagur er 26.
júlí. Kjarnafæði hefur þegar fengið til
baka alla þá Gamaldags sveitakæfu
sem var í verslunum.
Gamaldags sveitakæfa er kælivara
og ekki verður loku fyrir það skotið
að kæfan hafi skemmst í meðförum
hjá þeim sem varð fyrir magaóþæg-
indunum. Talið er að magakveisan
hafi stafað af jarðvegsbakteríu sem
þrifist getur í ýmsum matvælum og
hráefnum. „Ef einhver á ennþá svona
kæfu biðjum við fólk að koma henni
til okkar og við munum endurgreiða
fólki og bæta því óþægindin. Það er
stórmál fyrir okkur ef eitthvað svona
lagað kemur upp og algjört lykilatriði
að við náum að bregðast skjótt og
örugglega við,“ segir Eðvald. Hann
segir að öllum ætti að vera óhætt
að neyta þeirrar kæfu sem nú er að
finna í verslunum. sigtryggur@dv.is
Kjarnafæði innkallar Gamaldags sveitakæfu:
Neytandi fékk í magann af kæfu
Keypt í matinn Kjarnafæði hefur kallað inn gamaldags sveitakæfu. Ekkert bendir til
þess að framleiðslan sé gölluð.
Kaupþing hagnaðist um mánaðarlaun verkamanns á hverri mínútu fyrstu sex mánuði
ársins, 180 þúsund krónur. Hagnaðurinn var 46,8 milljarðar, tíu milljörðum krónum
meira en kostar að byggja hátæknisjúkrahús.
Græddu máNaðar-
lauN verkamaNNs
á míNútu
Erla HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Þessar miklu vaxta-
tekjur koma einna
helst á óvart í
þessu uppgjöri.“
Kaupþing Kaupþing skilaði
gífurlegum hagnaði fyrri helming
ársins. afkomutölur bankans voru
kynntar í gær. fyrirfram var búist við
góðum afkomutölum og er búist við
að svipað verði uppi á teningnum
þegar glitnir og landsbankinn gera
upp ársfjórðunginn.
Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri
mikil aukning á tekjum af vöxtum
og þóknunum einkenna uppgjörið.
Kristján Gunnarsson Kristján segir
fólk vart geta gengið framhjá banka
án þess að vera boðin yfirdráttarlán
Bremsulaus
í kópavogi
Sautján ára piltur slapp með
skrekkinn þegar vinnubíll sem
hann ók hafnaði á umferðarljós-
um í Kópavogi í gær. Pilturinn
hugðist nema staðar við gatna-
mót en uppgötvaði þá sér til skelf-
ingar að bremsurnar virkuðu ekki.
Hann náði að sveigja upp á gras-
eyju en þar hafnaði bíllinn, sem
var með kerru í eftirdragi, á um-
ferðarljósum eins og fyrr sagði.
Nokkur umferð var um gatnamót-
in þegar óhappið átti sér stað og
því mildi að ekki fór verr.
Greiða tvær
milljónir
Héraðsdómur Suðurlands
dæmdi í gær Vestmannaeyja-
bæ til að greiða fyrrverandi
eiganda matvælaverksmiðj-
unnar Öndvegisrétta tvær
milljónir króna. Upphæðin
sem bænum var gert að greiða
kom til vegna þess að fyrirhug-
að var að setja upp matvæla-
verksmiðju í Vestmannaeyjum
árið 2001. Ekkert varð úr því að
fyrirtækið hæfi starfsemi í Eyj-
um. Þróunarfélag Vestmanna-
eyja hafði gert samning árið
2001 við eiganda Öndvegis-
rétta um kaup á fyrirtækinu og
flutning þess. Krafðist eigandi
matvælaverksmiðjunnar þess
einnig að fá skaðabætur vegna
vangoldinna launa en bærinn
var sýknaður af þeirri kröfu.
Kerra kyrrsett
Sem fyrr fylgist lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu
með því að búnaður
vegna eftirvagna
sé í lagi. Þetta
á ekki síst við
um tjaldvagna,
fellihýsi og
hjólhýsi. Einn-
ig um kerrur
af ýmsu tagi, þar
á meðal hestakerrur,
en ökumaður með eina
slíka í eftirdragi var stöðvaður í
gær. Kerran var bæði óskoðuð
og án hemlabúnaðar. Þá var
þyngd hennar umfram drátt-
argetu bílsins sem maðurinn
var á. Kerran var kyrrsett. Eft-
irlit lögreglu með eftirvögn-
um heldur áfram og mega
ökumenn búast við afskiptum
hennar af þeirri ástæðu.