Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Page 7
Í DV í fyrradag sagði Bjarni Már
Gylfason, hagfræðingur hjá Samtök-
um iðnaðarins, að gengið héldist lík-
lega hátt á meðan stýrivextir héldust
háir. Ingunn segir að það sé aðeins
tímaspursmál hvenær krónan veik-
ist á nýjan leik. „Seðlabankinn hef-
ur gefið það út að stýrivextir verði
ekki lækkaðir í bráð. Þegar það gerist
mun krónan veikjast og það gæti sett
mörg heimili í ákveðinn vanda.“
DV Fréttir fimmtudagur 26. júlí 2007 7
Íslendingum stendur til boða að kaupa nýjan Bugatti Veyron 16,4 á tæpar tvö hundruð
milljónir króna. Bíllinn er rúmlega þúsund hestöfl og er aðeins 2,5 sekúndur upp í
hundrað. Ásberg Helgi Helgason, sölumaður hjá Sparibíl, segir að söfnunargildi bíls-
ins sé mikið en hefur ekki ennþá fengið neinar fyrirspurnir frá áhugasömum einstakl-
ingum í bílaleit.
200 MILLJÓNIR FYRIR BÍL
„Þetta er nýr og óskráður bíll sem við
getum boðið til sölu og hann hefur
aðeins verið keyrður nokkra flutn-
ingskílómetra,“ segir Ásberg Helgi
Helgason, sölumaður hjá Sparibíl.
Á vefsíðunni bilasolur.is er auglýst-
ur til sölu Bugatti Veyron 16,4 og er
ásett verð á bílnum tæpar 200 millj-
ónir króna og er það endanlegt verð
þegar búið er að greiða tolla og flutn-
ingsgjöld. Ásberg segir að söluskrá
fyrirtækisins sé beintengd geng-
inu og breytist því frá degi til dags.
Þannig lækkaði verðið á bílnum um
tæpa eina og hálfa milljón á einum
degi vegna hagstæðrar krónu.
2,5 sekúndur í hundrað
Bíllinn sem er 2006 árgerð er
rúmlega eitt þúsund hestöfl og það
tekur hann aðeins 2,5 sekúndur
að fara í hundrað kílómetra hraða.
Ef vilji er fyrir hendi er þó hægt að
koma honum í tvö hundruð kíló-
metra hraða á aðeins 7,3 sekúnd-
um en hámarkshraði bílsins er 407
kílómetrar á klukkustund. Bíllinn
er í heildina sjö gírar og er gírskipt-
ingin svipuð og í formúlu eitt öku-
tækjunum og án kúplingar. Brems-
ur bílsins þykja einnig mjög öflugar
og þarf hann aðeins rúmlega þrjá-
tíu metra svigrúm til að bremsa úr
hundrað kílómetra hraða niður í
núll.
Ásberg segist ekki hafa fengið
neinar fyrirspurnir frá áhugasöm-
um kaupendum en þó geti það alveg
eins gerst að bíllinn seljist. „Það hafa
margir bílaáhugamenn spurst fyrir
um bílinn. Það er alveg til fólk sem
á peninga fyrir þessu en spurning-
in er hvort það vilji nota þá í þessa
fjárfestingu. Notagildið er ekki mikið
hérna á Íslandi en það væri þá helst
að menn myndu kaupa hann til að
nota erlendis.“
Mikið söfnunargildi
Þrátt fyrir að bíllinn sé um þús-
und hestöfl þarf ákveðinn lykil til að
fá öll hestöflin til að virka. Það ger-
ir það að verkum að bíllinn verð-
ur öruggari í akstri því töluverða
kunnáttu þarf til að stýra jafnkraft-
miklum bíl og þessum. Aðspurður
hversu miklu bensíni bíllinn eyði á
hundrað kílómetrum segir Ásberg
að menn sem hafi efni á að fjárfesta
í slíkum bíl séu lítið að spá í eyðsl-
una. Hins vegar veit hann til þess að
bíllinn er mjög fljótur að fara með
tankinn þegar bíllinn er í fullri notk-
un. Það komi hins vegar sjaldan fyr-
ir að öllum krafti bílsins sé beitt og
stillingar sjái til þess að halda eyðsl-
unni í lágmarki.
Aðeins verða framleidd á milli
fimm hundruð til þúsund eintök af
bílnum og því líklegt að söfnunar-
gildi hans komi til með að verða mik-
ið. „Þeir tala um að framleiða ekki
fleiri en þúsund eintök og hugsan-
lega færri. Hann gæti því orðið mun
verðmætari að nokkrum árum liðn-
um.“
Aukning í sölu dýrra bíla
Ásberg segist finna fyrir mikilli
aukningu í sölu á dýrari bílum á Ís-
landi og virðist sem fólk sé farið að
sækja meira í lúxusinn en oft áður.
„Salan á vönduðum hágæða lúxus-
jeppum hefur aukist mikið á und-
anförnum árum. Þar erum við helst
að tala um Range Rover, Mercedez
Benz, BMW og Porsche,“ segir Ás-
berg og bætir því við að þeir hafi verið
að bjóða flottustu útgáfuna af Range
Rover á rúmar ellefu milljónir króna.
Sambærilegur bíll hjá B&L kostar
um sextán milljónir og því sé hægt
að spara sér töluverða fjármuni. Hafi
einhver áhuga á að fjárfesta í bílnum
en þarf á bílaláni að halda, þá er hægt
að reikna út á vefsíðunni avant.is
hversu mikið þarf að borga á mánuði.
Ef tekið er lán til þriggja ára og mið-
að við þrjú prósent verðbólgu þarf að
borga um 4,6 milljónir á mánuði.
Salan á vönduðum há-
gæða lúxusjeppum hef-
ur aukist mikið á und-
anförnum árum
EinAr Þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Bugatti Veyron 16,4 er
með dýrustu götubílum
heims. Hann þykir með
eindæmum kraftmikill
enda um þúsund hestöfl.
„Það hefur verið mjög mikil sala
á garðslöngum og úðurum. Á tíma-
bili seldist þetta alveg upp hjá okk-
ur því við áttum satt að segja ekki
von á þessari miklu sölu,“ segir Pét-
ur Hallsson, aðstoðarverslunar-
stjóri í BYKO í Breiddinni. Sumarið
í Reykjavík hefur verið eitt það besta
í manna minnum og hafa viðskiptin
blómstrað á garðvörum. Fylgifisk-
ur góða veðursins hafa verið miklir
þurrkar og segir Pétur að menn hafi
ekki gert ráð fyrir að sumarið yrði
svona gott.
„Þessi veðrátta er ekki beint al-
geng hérna á Íslandi þannig að sal-
an hefur verið meiri en við áttum
von á. Salan á garðhúsgögnum hef-
ur sjaldan eða aldrei verið jafngóð og
í sumar. Fólk virðist vilja njóta sum-
arblíðunnar í garðinum hjá sér eða
á svölunum,“ segir Pétur sem seg-
ist eiga von á því að þessi góða sala
haldi áfram. „Við eigum von á að það
verði góð sala í það minnsta fram yfir
verslunarmannahelgi. Það byrjuðu
útsölur hjá okkur í gær og það eru ef-
laust einhverjir sem vilja endurnýja
fyrir næsta sumar.“
Magnús Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Rúmfatalagersins,
tekur í sama streng og segir að sal-
an á sumarvörum hafi gengið fram-
ar vonum í verslunum Rúmfatalag-
ersins. „Einstaka vörunúmer hafa
selst upp hjá okkur og við höfum
fundið fyrir mikilli aukningu í sölu
frá síðasta sumri. Það eru aðallega
garðhúsgögn eins og borð, stólar og
sólbekkir sem seljast mikið. Veðrið í
fyrrasumar var ekkert sérstakt og því
hefur salan aukist töluvert milli ára,“
segir Magnús og bætir við að salan
á útileguvörum hafi einnig aukist
mikið. „Við höfum séð töluverða
aukningu í sölu á útileguvörum eins
og tjöldum og svefnpokum. Svo er
verslunarmannahelgin að ganga
í garð og við eigum von á að þessi
góða sala haldi áfram að minnsta
kosti fram að þessari mestu útilegu-
helgi sumarsins. Svo eru útsölurnar
byrjaðar og margir hafa endurnýjað
fyrir næsta sumar.“
Sprenging hefur verið í sölu á garðhúsgögnum og útileguvörum í sumar:
Garðhúsgögn rjúka út
Blíðviðri frábær veðrátta hefur einkennt sumarið í reykjavík. Hefur salan á
garðvörum sjaldan eða aldrei verið jafnmikil.
LIFUM Á LÁNUM
ingunn S. Þorsteinsdóttir Segir
skuldahlutfallið vera ískyggilega hátt.