Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Side 9
óvenjulegra veðurafbrigða í Evr-
ópu með miklum hitum og flóð-
um um álfuna, megi rekja til
gróðurhúsaáhrifa. Í gær unnu
björgunarmenn á Englandi hörð-
um höndum að því að halda aft-
ur af flóðum sem eru þau verstu
í landinu í sextíu ár. Um 250 þús-
und manns eru án rafmagns og
140 þúsund manns eru án drykkj-
arvatns.
„Við megum búast við því að
slík öfgaveðurafbrigði verði al-
gengari í framtíðinni. Að halda
einhverju öðru fram væri afar óá-
byrgt af okkar hálfu,“ segir Nick
Reeves, yfirmaður hjá CIWEB sem
sérhæfir sig í því að kanna um-
hverfisáhrif í heiminum.
Búist er við því að hiti lækki á
flestum svæðum Suður- og Aust-
ur-Evrópu á næstu dögum.
HUNDRUÐ LÁTAST VEGNA
HITABYLGJU Í EVRÓPU
DV Fréttir fimmtudagur 26. júlí 2007 9
Talíbanar hafa myrt einn af þeim
tuttugu og þremur suður-kóresku
gíslum sem þeir rændu í Afganistan
í síðustu viku. Talsmaður talíbana
greindi frá þessu í samtali við frétta-
stofu CNN á miðvikudag.
Ástæðuna fyrir morðinu sagði
hann vera þá að ekki hafi verið geng-
ið að kröfum talíbana, en þeir höfðu
meðal annars óskað eftir því að her-
menn frá Suður-Kóreu yrðu kallaðir
frá Afganistan og að þeim talíbönum
sem eru í haldi í Kabúl yrði sleppt.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Afganistan fannst lík gísls-
ins sundurskotið.
Qari Mohammad Yousif Ahmadi,
talsmaður talíbana, sagði að hin-
ir gíslarnir yrðu myrtir upp úr mið-
nætti að staðartíma á fimmtudag ef
ekki verði gengið að kröfunum, eða
klukkan hálfníu í kvöld.
Fylkisstjóri í Quara Bagh sagði við
CNN að talíbanarnir héldu gíslun-
um á ólíkum stöðum til að torvelda
leit. Gíslunum tuttugu og þremur
var rænt þegar þeir voru á gangi á
aðalveginum við Kabúl. Suður-kór-
eska fréttastofan Yonhap hefur gefið
út að átta gíslanna hafi verið sleppt
en CNN hefur ekki fengið þær fregn-
ir staðfestar. Áður hafði Yousif Ah-
madi varað við því að yfirvöld í Ka-
búl fengju ekki annað tækifæri til að
mæta kröfum talíbananna.
Hamid Karzai, forseti Afganist-
an, hefur gefið út að hann muni ekki
skipta á gíslum. Hann var gagnrýnd-
ur harðlega þegar hann sleppti fimm
talíbönum úr fangelsi í marsmánuði
í skiptum fyrir ítalskan fréttamann.
Krafa talíbana um að yfirvöld
í Seúl kalli heim þá 200 hermenn
sem eru í Afganistan er líklegri til að
verða uppfyllt þar sem Kóreubúar
hafa áður sagst ætla að kalla þá frá
Afganistan á þessu ári.
Talíbanar rændu tuttugu og þremur suður-kóreskum trúboðum:
Næstum aldargömul ensk sam-
tök gefa árlega út leiðarvísi fyrir ung-
ar konur um það hvernig beri að lifa
í sátt við straujárn, eldavél og fram-
kvæma alls kyns venjuleg heimil-
isstörf. Í ár hefur þó orðið breyting
á því nú er nútímakonum kennt að
stunda öruggt kynlíf og borga niður
skuldir.
Svokallaðir Leiðarvísar fyrir stúlk-
ur, Girl guide, koma út á Englandi
með reglulegu millibili. Í þeim eru
stúlkum kenndar dyggðir heimilis-
starfanna og geta þær unnið sér inn
sérstök verðlaunamerki með því að
vera góðar húsmæður. Þessar nýju
áherslur eru til komnar eftir að gerð
var víðtæk könnun meðal kvenna
sem nota leiðarvísinn, en um fimm
hundruð þúsund konur eru meðlim-
ir í samtökunum Girl guide.
Samtökin gefa út ólíka leiðarvísa
fyrir hvern aldurshóp og í hópi elstu
stúlknanna, eða sextán ára og eldri,
þótti mikilvægast að þær lærðu að fara
með fjármálin. Í fjórða sæti kom síð-
an mikilvægi þess að læra að stunda
öruggt kynlíf. Niðurstöður könnun-
arinnar notuðu samtökin til þess að
gefa út leiðarvísa fyrir nútímakonur.
Þessar nýju áherslur hafa valdið
nokkurri hneykslan meðal gagnrýn-
enda. En talsmaður þeirra, Liz Bur-
ley, lætur slíkt tal sem um vind um
eyru þjóta. „Við viljum veita stúlkum
tækifæri á því að öðlast hæfni til þess
að takast á við vandasamt líf í nú-
tímaveröld. Samfélagsmörk standa
ekki í stað og því viljum við í sífellu
spyrja meðlimi okkar hvað þeim
finnst til þess að vera í takt við það
sem ungar konur takast á við í dag,“
segir Burley.
Árið 1910 var haft fyrir ungum
konum að strauja og mjólka kýr. Þá
voru ungar konur jafnframt hvattar
til að stunda íþróttir og fara í útilegur
sem gagnrýnendur þess tíma töldu
„hneykslanlegt“ og kölluðu samtök-
in „kjánaleg og hættuleg“.
Fótboltaáhugamenn látast
Að minnsta kosti 50 létust og 135
særðust í Bagdad í Írak þegar
tvær sprengjur sprungu innan
um mannfjölda sem var að fagna
sigri landsliðs Íraka gegn Suður-
Kóreu í undanúrslitum í Asíu-
meistaramótinu í fótbolta.
Þúsundir manna dönsuðu og
sungu saman á götum Bagdad
til að fagna sigrinum og telur
lögreglan að vísvitandi hafi ver-
ið ráðist á fótboltaáhugamenn.
Þetta var fyrsti markverði sigur
landsliðsins í fjölda ára.
Prófessor hrósar al-Kaída
Prófessor sem líkti fórnarlömbum
árásarinnar á Tvíburaturnana við
nasista var á þriðjudag rekinn úr
stjórn háskólans í Colorado. Árið
2002 skrifaði Churchill ritgerð um
árásina 11. september 2001 og sagði
hana réttlætanleg viðbrögð við harð-
ræði bandarískra lögreglumanna í
Mið-Austurlöndum. Einnig hrósaði
hann hugrekki árásarmannanna.
Hann fær áfram að kenna við skól-
ann en forsvarsmenn hans segja
brottrekstur úr stjórninni ekki tengj-
ast pólitískum skoðunum hans.
Styðja ekki sjálfsmorðsárásir
Stuðningur íslamstrúarmanna við
sjálfsmorðsárásir gegn óbreyttum
borgurum hefur minnkað allveru-
lega í íslamstrúarlöndum frá því
2002, að því er fram kemur í niður-
stöðum nýrrar, stórrar könnunar.
Þrátt fyrir þetta segjast 70 prósent
Palestínumanna trúa því að í sum-
um tilfellum megi réttlæta sjálfs-
morðsárásir. Könnunin náði til 45
þúsund manna í 47 löndum. Í nið-
urstöðum hennar kom einnig fram
að fólk er almennt bjartsýnt um að
næsta kynslóð muni eiga betra líf.
Myrtu kóreskan gísl
Samtök sem gefa út leiðarvísi fyrir ungar konur valda hneykslan
fyrir að kenna þeim að stunda öruggt kynlíf:
Hvernig á að stunda
öruggt kynlíf?
Brunarústir ferðamenn á ítalíu
áttu fótum sínum fjör að launa eftir
að eldur gaus skyndilega upp.
Slökkvistarf í fullum
gangi mikið álag er á
slökkviliðum um alla Evrópu.
Kennt að mjólka Árið 1910 var konum kennt að mjólka kýr í leiðarvísi.
Aðstandendur gíslanna
Ættingjar gíslanna tuttugu
og þriggja bíða í ofvæni eftir
fregnum af ástvinum sínum.