Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Qupperneq 13
Framhald
á næstu opnu
D
V m
yn
D
A
rn
A
r
be
st
u v
er
st
u
&
kau
pin
Stundum kaupum við hluti sem við hefðum betur sleppt að eyða
peningunum í. Sem betur fer kaupum við líka hluti á góðu verði sem
reynast okkur vel. Það flokkast sem góð kaup. Við fórum á stúfana
og ræddum við Láru Ómarsdóttur fréttakonu, en hún er fimm barna
móðir og þekkir því gildi þess að gera góð kaup. Hún gefur okkur
nokkur góð ráð um heimilisinnkaupin og skipulagningu. Við rædd-
um auk þess við nokkra aðra valinkunna Íslendinga um þeirra bestu
og verstu kaup, þar sem ýmislegt forvitnilegt kom á daginn. Á
baksíðu er rætt við bræðurna Gunnar og Kristján Jónassyni, en þeir
sjá um rekstur Kjötborgar, sem er ein af síðustu hverfisbúðunum.
Tilkoma stóru verslanakeðjanna hefur verið flestum hverfisbúðum
um megn, en þeir bræður eru hvergi af baki dottnir.
aldrei fara MeÐ
kort aÐ versla
Lára ÓmarsdÓttir fréttakona Lumar á ýms-
um gÓðum og hagkvæmum innkauparáðum:
„Ég reyni alltaf að versla sem ódýrast
og fylgist vel með verði og slíku,“ segir Lára
Ómarsdóttir fréttakona en hún er í sjö manna
fjölskyldu og lumar á nokkrum skynsamlegum
sparnaðarráðum.
„Í fyrsta lagi hef ég komist að því að tilboð
eru ekkert endilega hagstæðustu kaupin. Til
dæmis er kannski tilboð á stórum pakkning-
um af morgunkorni en svo kemur jafnvel í ljós
að það er ódýrara að kaupa bara tvær minni
pakkningar í staðinn. Ég vann sjálf í verslun
og man því hvernig það virkaði að plata fólk
til að kaupa ákveðnar vörur með því að stilla
þeim upp á tilboði á miðju gólfi verslunarinn-
ar eins og til dæmis klósettpappír sem er stafl-
að upp á tilboði en svo er mun ódýrari pappír
uppi í hillu.“ Lára hefur sjálf kynnst því hvern-
ig er að versla þegar fjárhagurinn er slæmur
og notaði þá ýmsar aðferðir við matarkaupin.
„Besta ráðið er að fara ekki út í búð að versla
með kort með þér heldur eingöngu pening og
vera þá búin að ákveða fyrirfram hversu miklu
á að eyða í hvert skipti. Þannig kemstu ekki
upp með að kaupa einhvern óþarfa. Það er líka
alltaf betra að kaupa inn fyrir alla vikuna í einu
í staðinn fyrir eitt og eitt kvöld. Maður sest þá
bara niður og gerir lista og ákveður hvað mað-
ur ætlar að hafa í matinn og hvað nákvæm-
lega maður ætlar að kaupa,“ segir Lára og bæt-
ir því hlæjandi við að þeim mun sjaldnar sem
maður þurfi að fara í búðina þeim mun betra.
Þegar kemur að kaupum á fatnaði segir Lára
að þótt ótrúlegt sé þá sé hún ekki mikið gefin
fyrir að versla á útsölum. „Ég er bara búin að
komast að því með öll þessi börn að það er oft
betra að kaupa vandaðri vöru sem dugar mun
lengur og þá sérstaklega þegar kemur að ein-
hverjum flíkum sem eru mikið notaðar og eyð-
ast auðveldar upp en aðrar. Maður hefur auð-
vitað freistast til að kaupa ódýra strigaskó en
svo eru þeir jafnvel ónýtir eftir mánuð og þá
þarf bara að kaupa nýja strax aftur. Þetta gild-
ir svona aðallega um útigalla, sokka, vettlinga
og annað slíkt en þegar kemur að sumarfötum
er allt í lagi að kaupa bara einhverja ódýra út-
sölukjóla eða stuttbuxur því það kemur hvort
eð er aldrei neitt sumar hér á landi svo sumar-
fötin eru ekki notuð jafnmikið,“ segir Lára og
bætir því við að sjálfsagt sé að láta fötin ganga
systkina á milli. Að lokum gefur Lára eitt gott
ráð varðandi jólagjafainnkaup en bæði hún
og eiginmaður hennar koma frá gríðarlega
stórum fjölskyldum svo þær eru ófáar gjafirn-
ar sem þarf að fjárfesta í fyrir jólin. „Það gildir
það sama um jólagjafakaup og önnur innkaup.
Maður þarf að vera búin að setjast niður og
ákveða nákvæmlega hvað á að gefa hverjum og
helst að gera það bara í byrjun desember því
ef maður er á síðasta snúningi eða í einhverju
stressi endar maður svo oft á að kaupa eitthvað
allt of dýrt eða einhvern algjöran óþarfa,“ segir
hin sniðuga og útsjónarsama Lára að lokum.