Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Qupperneq 17
Víkingur tók á móti Fram í Lands-
bankadeild karla í gærkvöldi. Leik-
urinn var mjög mikilvægur fyrir
bæði lið í baráttunni um að losna
við mesta falldrauginn. Liðin voru á
svipuðum slóðum í deildinni og sig-
ur í leiknum myndi þýða að sigurlið-
ið myndi fjarlægast botn deildarinn-
ar í bili að minnsta kosti.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
Víkingurinn Hörður Bjarnason átti
fyrsta almennilega færi leiksins á
15. mínútu þegar hann átti fantafínt
skot að marki Fram. Boltinn stefndi
í vinkilinn en Hannes Þór í marki
Fram varði skotið glæsilega. Á 33.
mínútu skoruðu Víkingar eftir að
dæmd var vítaspyrna á Hannes Þór
í markinu. Hannes var í miklu kapp-
hlaupi við Víkinginn Gunnar Kristj-
ánsson um boltann. Hannes ákveður
að renna sér á eftir knettinum með
fótinn á undan sér en fer þá í Gunn-
ar að mati Garðars dómara og víti
dæmt. Dómurinn var strangur auk
þess sem brotið virtist vera fyrir utan
vítateigslínuna. Sinisa Kekic skor-
aði úr vítinu en Hannes Þór var þó í
knettinum, staðan orðin 1-0 heima-
mönnum í vil.
Nákvæmlega tíu mínútum síð-
ar eða á 43. mínútu skoruðu Vík-
ingar annað mark sitt í leiknum. Þar
voru sömu menn að verki og sáu um
fyrsta mark leiksins, þeir Gunnar
Kristjánsson og Sinisa Kekic. Gunnar
átti þá frábæra sendingu á Kekic sem
skallaði boltann í markið og Víkingar
komnir 2-0 yfir. Jónas Grani Garðars-
son náði þó að minnka muninn fyr-
ir Fram örfáum sekúndum fyrir lok
hálfleiksins með marki eftir skalla.
Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Víkinga og
leikurinn mjög fjörugur.
Fram byrjaði af krafti
Leikmenn Fram höfðu án efa
fengið orð í eyra frá þjálfara sínum Ól-
afi Þórðarsyni í hálfleik en þeir komu
mjög beittir til leiks í síðari hálfleikinn.
Gestirnir sköpuðu sér nokkur fín færi
í upphafi hálfleiksins. Theódór Ósk-
arsson átti hættulegt skot eftir send-
ingu frá Jónasi Grana á 51. mínútu en
Bjarni Þórður varði skot hans vel. Eftir
þetta skiptust liðin á að sækja næstu
mínúturnar en ekkert markvert gerð-
ist þar til á 76. mínútu. Þá átti Sinisa
Kekic hjólhestaspyrnu að marki Fram
sem Alexander Steen náði að verja á
marklínu.
Á 80. mínútu átti Andri Karvels-
son svo skot að marki Víkinga sem
Víkingar bjarga á marklínu. Strax í
næstu sókn á eftir komst Sinisa Kekic
upp að endamörkum og renndi bolt-
anum á Arnar Jón Sigurgeirsson, sem
var kominn inn á sem varamaður,
hann átti skot að marki sem Hannes
ver í horn. Á 88. mínútu átti Alexader
Steen gott skot að marki Víkinga en
Bjarni Þórður Halldórsson varði skot
hans frábærlega.
Þetta reyndist vera síðasta færi
leiksins og úrslitin því 2-1 Víkingum
í vil sem börðust eins og ljón allan
leikinn. Leikmenn Fram áttu nokk-
ur góð færi í síðari hálfleik og hefðu
með smáheppni getað nælt í að
minnsta kosti annað stigið í leiknum.
Með sigrinum komst Víkingur að-
eins fjær botnsætinu en útlitið versn-
aði töluvert hjá Frömurum. Þeir sitja
í níunda og næstsíðasta sæti deildar-
innar, Víkingar aftur á móti fóru upp
í sjöunda sæti með tólf stig.
Þetta er snilld
Bjarni Þórður Halldórsson, mark-
vörður Víkinga, átti stórleik í mark-
inu. Hann var að vonum afskaplega
ánægður með sigurinn gegn Fram.
„Við vorum komnir 2-0 yfir en feng-
um svo á okkur klaufamark undir lok
hálfleiksins. Við ætluðum að reyna
að bæta við en þeir lágu á okkur og
við héldum það út. Þeir fengu ekkert
mikið af góðum færum og vörnin hjá
okkur hefur verið góð í síðustu leikj-
um og það hjálpar mér. Það er snilld
að vinna þennan leik og nú er að
vinna Fylki í næsta leik og þá getum
við andað léttar í bili. Það er ekki langt
í næsta leik,“ sagði Bjarni Þórður.
Óðinn Árnason, varnarmaður
Fram, var afar svekktur í leikslok.
„Þetta er bara sumarið í hnotskurn
hjá okkur. Boltinn dettur inn hjá
þeim í lélegum færum en við vöð-
um í færum en náum ekki að skora.
Ég er gríðarlega svekktur eftir þetta
tap. Vítadómurinn var vafasamur
en Garðar Örn dæmir og það er ekk-
ert við því að segja. Við erum í bull-
andi fallbaráttu þarna niðri og það
var ekki ætlunin í byrjun sumars að
vera þar. Það er eitthvað sem vant-
ar hjá okkur, það er greinilegt,“ sagði
Óðinn.
DV Sport fimmtudagur 26. júlí 2007 17
ÍÞRÓTTAMOLAR
Með vodka í æðuM?
Hjólreiðamaðurinn alexandre
Vinokourov, sem féll á lyfjaprófi fyrr í
vikunni, segist
saklaus og að um
mistök sé að ræða.
Hann er sakaður
um að hafa
sprautað sig með
blóði sem er ríkt af
rauðum
blóðkornum. „Ég
held að þetta séu
mistök sem rekja
má til áreksturs sem ég lenti í. Ég ræddi
við lækninn minn sem sagði að það hafi
verið mikið blóð í lærinu á mér, sem gæti
leitt til jákvæðni í prófinu. Ég frétti að ég
hafi átt að hafa fengið blóð frá föður
mínum. Það er út í hött. Ég get sagt
ykkur að með hans blóði hefði ég greinst
með vodka í blóðinu,“ segir Vinokourov.
Ferguson Ósáttur
Sir alex ferguson, knattspyrnustjóri
manchester united, er ósáttur við
umboðsmann argentínska leikmannsins
gabriel Heinze og segir að leikmaðurinn
sé ánægður hjá félaginu. „Við höfum
hugsað mjög vel
um gabi. Hann fór í
krossbandsaðgerð
og við hugsuðum
um hann. Við
leyfðum honum að
fara í endurhæf-
ingu til Spánar, það
var það sem hann
vildi og ég held að
hann sé mjög
ánægður með þá meðferð sem hann
fær. Við komum fullkomlega til móts við
hann. Ég held að ef ekki væri fyrir
umboðsmann hans væru engin
vandamál á ferðinni,“ segir ferguson.
dyer til West HaM?
Sam allardyce, stjóri Newcastle, hefur
látið hafa eftir sér að Kieron dyer gæti
verið á leið frá félaginu út af persónuleg-
um ástæðum. dyer hefur verið orðaður
við West Ham að undanförnu. allardyce
fundaði með dyer nýverið og játaði að
leikmaðurinn gæti verið á leiðinni burt.
„Á þessari stundu er fjölskylduvandamál
á ferðinni og við
verðum að sjá til
hvort við getum
ráðið fram úr því. Ef
við náum því ekki
gæti svo farið að
dyer fari af þeirri
ástæðu. Þetta eru
vonbrigði fyrir mig
en ég skil hann vel,“
segir allardyce.
West Ham leitar nú að leikmanni til að
fylla skarð juliens faubert sem verður
lengi frá vegna meiðsla.
Bolton og nantes ná saMan
Bolton er við það að ganga frá kaupum á
sænska kantmanninum Christian
Wilhelmsson frá Nantes. Enskir fjölmiðlar
sögðu frá því í gær að Bolton og Nantes
hafi komist að samkomulagi um
kaupverð, um 300 milljónir króna.
Sammy lee ætlar sér að móta Bolton-
liðið eftir sínu höfði og kaup á þessum
eldfljóta kantmanni eru liður í því.
Wilhelmsson hefur
ekki fundið sitt
rétta form hjá
Nantes og var
lánaður til roma á
síðustu leiktíð.
manchester City
hefur einnig sýnt
Wilhelmsson
áhuga. Hins vegar
er búist við því að
hann skrifi undir samning við Bolton á
næstu dögum.
Mido ekki til BirMingHaM?
Svo gæti farið að egypski sóknarmaður-
inn mido fari ekki til Birmingham eftir
allt saman. tottenham samþykkti 735
milljón króna tilboð Birmingham í
leikmanninn í síðustu viku. mido er hins
vegar ekki fullkomlega sáttur við
samninginn sem Birmingham bauð
honum og nú virðist málið komið í
pattstöðu. „Ég settist niður með
Birmingham til að
ræða um nýjan
samning. Ég
neitaði algjörlega
nokkrum
ákvæðum sem í
honum voru. Ég
veit ekki hvað
gerist næst. Ég
mun ekki fara til
Birmingham nema
þessum ákvæðum verði breytt,“ segir
mido, sem nokkrum sinnum hefur verið
til vandræða á ferli sínum.
2 1
VÍKINGUR FRAM
Mörk: Sinisa Kekic víti (34.), Sinisa Kekic (41.) Mark: Jónas Grani Garðarsson (45.)
8
6
6
7
6
6
7
6
7
5
8
10
5
3
4
0
1
0
Bjarni Þórður Halldórsson
Þorvaldur Sveinn Sveinsson
Milos Glogovac
Grétar S. Sigurðarson
Valur Adolf Úlfarsson
Hörður Sigurjón Bjarnason
Viðar Guðjónsson (74.)
Jökull Ingi Elísabetarson
Gunnar Kristjánsson
Egill Atlason (66.)
Sinisa Kekic (84.)
Hannes Þór Halldórsson
Óðinn Árnason
Ingvar Þór Ólason
Reynir Leósson
Theódór Óskarsson
Jónas Grani Garðarsson
Patrik Ted Redo
Hans Mathiesen (60.)
Andri Lindberg Karvelsson
Alexander Steen
Igor Pesic (66.)
TÖLFRÆÐI
SKOT
SKOT Á MARKIÐ
SKOT VARIN
HORNSPYRNUR
RANGSTAÐA
GUL SPJÖLD
RAUÐ SPJÖLD
9
6
5
3
1
4
0
7
6
5
5
6
7
5
5
6
6
5
VARAMENN: 66. Arnar Jón Sigurgeirsson -
6, 74. Jón B. Hermannsson , 84. Pétur Örn
Svansson.
VARAMENN: 60. Ívar Björnsson
- 6, 66. Daði Guðmundsson - 6.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson - 5 Áhorfendur: 1.055
MAÐUR LEIKSINS:
Bjarni Þórður Halldórsson
Bjarni Þórður
Hörður
Valur Milos
Þorvaldur
Gunnar
Viðar Jökull
Egill
Kekic
Grétar
Hannes
Andri Reynir Ingvar Óðinn
Theódór Mathiesen Pesic Redo
Jónas Grani Steen
KR-INGUM
NEITAÐ
UM
SIGUR
Víkingar unnu mikilvægan sigur á Frömurum í sannkölluðum botnslag Landsbanka-
deildarinnar í gærkvöldi. sinisa kekic skoraði bæði mörk heimamanna í leiknum.
KEKIC KLÁRAÐI
FRAMARA
kári garðarsson
blaðamaður skrifar: kari@dv.is
kecic fagnar Sinisa Kecic
afgreidda framara með
tveimur mörkum sínum.
góður sigur
magnús var að
vonum sáttur
með sína menn.