Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Side 22
Rétt og satt er það sem hann segir, hann Árni Johnsen. Auðvitað veit hann Árni bet-
ur en aðrir menn hvað mun kosta
að grafa veggöng til Vestmanna-
eyja. Það er ríkinu líkt að hafa kost-
að til hóp verkfræðinga og annarra
óþurftarmanna til að reikna út hvað
kostar að bora göngin. Nokkuð sem
er ekki svo mikill vafi um. Þjóð sem
á Árna Johnsen þarf ekki verk-
fræðinga, þjóðin
þarf ekki svona
spekúlasjón-
ir. Og alls ekki
um það sem
hann Árni veit
og hefur vitað
lengi og hefur
margoft sagt okkur
hinum frá. Þannig er nú það.
Algjörlega er galið af óþurftar-liðinu að leggja á borð fjár-hæðir sem eru ekki í neinum
takti við það sem hann Árni hefur
fundið út. Þetta gengur ekki og víst
er að það verður ekki látið ganga.
Til þess er þjóðin of viss. Hún veit
hverjum er best að fylgja svo nú
geta allir landsins verkfræðingar
hent sínum reikningskúnstum. Þær
eru hvort eð er óþarfar. Ef hann
Árni segir að það kosti tíu milljarða
eða rúmlega það
að bora göngin
er gagnslaust
að halda því
fram að það
kosti kannski
áttatíu millj-
arða. Hvaða
vitleysa er þetta
eiginlega og það um hábjargræðis-
tímann?
Það sér hver maður að það kostar enga áttatíu milljarða að grafa göngin. Það hef-
ur hann Árni bent á,
ekki einu sinni, ekki
tvisvar, nei, marg-
oft. Það kostar
ekki nema lítinn
hluta þess sem
hinir gagnslausu
reikningsmenn hafa
komist að. Þannig er
það og þannig verður það. Það er
ekkert hægt nú frekar en áður að
strá kornum í augu þjóðarinnar. Ef
menn eru á móti göngunum er best
að segja það, en vera ekki að reyna
að reikna sig frá jafnþörfu verki og
hann Árni segir Vestmannaeyja-
göngin vera.
Svo til að kóróna vitleysuna er sagt sísona í skýrslu- ónefnunni að ekki sé rétt
að grafa göng þar sem hætta er
á jarðhræringum. Heyr á end-
emi. Hvaðan kom þessi fullyrð-
ing? Hver heldur þessu fram? Og
hefur sá enga sómakennd eða
hvað? Nei, best er að hlusta ekki
á þessa vitleysu. Hann Árni hefur
sagt að hættan sé engin og þess
vegna er algjör-
lega ótrúlegt
að aðrir stígi
fram og haldi
fram svona
vitleysu.
Hverjum kem-
ur til hugar að
hann Árni hafi sagt þetta
hættulaust ef það er það ekki? Nei,
svona getur þetta ekki gengið. Burt
með úrtölufólkið og höldum áfram.
Það er búið að vísa okkur veginn og
nú er ekki annað að gera en stíga
hann. Forðumst fræðingana og
hlustum á Árna Johnsen.
fimmtudagur 26. júlí 200722 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
Áskriftarsími 512 7005, auglýsingar 512 70 40.
Grímþór
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Hér þarf að efast um allt.
Fráleit þjónusta
Leiðari
Merkilegt er hversu illa vegir, hættur og leiðbeiningar á veg-um eru merkt hér hjá okkur. Segja má það heyra til undan-
tekninga á vegamótum að skilti segi í hvaða
átt ber að keyra til að fara til Reykjavíkur. Er-
lendir ferðamenn verða sífellt að vera með
kort uppi til að átta sig á hvar aðrir staðir eru
og hvort þeir séu á akstursleiðinni til Reykja-
víkur, en þangað fara jú flestir. Auðvelt er að
bæta úr og gera þeim sem ekki rata léttara
með að ferðast um landið.
Sama er að segja um tungumálið. Íslenskan er okkur mikils
virði en erlendir ferðamenn lesa ekki íslensku eða skrifa. Þess
vegna er ótrúlegt að ekki skuli vera vegamerkingar á erlendum
tungumálum, sérstaklega á ensku. Þjóðvegirnir eru hættulegir,
oft einbreitt malbik eða ekkert. Öryggi allra ykist væru merking-
ar fleiri, betri og á fleiri tungumálum. Utan alfaraleiðar þar sem
margar hættur eru, vegir ótryggir, mjóir og beinlínis hættulegir
eru merkingar takmarkaðar. Við viljum að fólk sæki okkur heim
vegna sérstöðu landsins. Þess vegna ber okkur að tryggja að þau
sem ferðast séu eins örugg og hugsast getur og eins upplýst og
hægt er. Það á ekki bara við um erlenda ferðamenn. Okkur líka.
Girðingar og hlið til varnar því að sauð-
kindur fari milli svæða eru betur merkt og
skýrar en hættulegir vegir, bæði á láglendi
og hálendi. Á sauðfjárveikivarnarhliðum
eru leiðarvísar um umgengni oftast á fjórum
tungumálum auk íslensku. Það er ekki hægt
að segja að erlendir ökumenn kunni ekki að
keyra á erfiðum vegum áður en allt er gert
til að létta þeim það sem frekast er hægt,
þá sérstaklega með að veita upplýsingar til
þeirra og það á tungumáli sem mögulegt er
að þeir geti skilið.
Víða erlendis eru upplýsingar við þjóðvegina um hversu langt
er í næstu bensínstöð, að næsta salerni, hversu langt er að næstu
matvöruverslun eða veitingastað. En ekki á Íslandi. Ekki á að
vera erfitt að laga svo einfalda hluti. Fyrst þarf að vera vilji og
eftir að hann finnst er líklegt að framkvæmdir fylgi á eftir. Með-
fram þjóðvegum í Danmörku er hægt að lesa hversu langt er að
næsta salerni fyrir fatlaða, þar er hægt að lesa hversu langt er í
alla nauðsynlega þjónustu. Þar er einfalt og gott að vera útlend-
ingur, þó farið sé um óþekktar slóðir þarf aldrei að efast um neitt
sem viðkemur ferðalaginu. Hér á landi er þessu öfugt farið, hér
þarf að efast um allt.
DómstóLL Götunnar
Telur þú að við geTum gerT beTur en sTórþjóðir Til að sTilla Til friðar í ísrael?
„Ég held að okkur takist ekki að koma á
friði þarna á milli ríkjanna. Ég fæ ekki
séð að einhver frá íslandi geti haft áhrif
á gang mála fyrir botni miðjarðarhafs.
Hvað höfum við meira að segja en þeir
sem þegar hafa reynt að miðla málum í
þessari deilu?“
Maressa Sigrún Pinal,
18 ára stúdent
„Það gæti verið að við komum með
góða hugmynd til þess að leysa þessa
endalausu deilu. mér finnst hins vegar
ólíklegt að okkur takist það sem
george Bush, tony Blair og Bill Clinton
hafa reynt. utanríkisráðherrann okkar
er bara lítil kona á íslandi og ég fæ ekki
séð hvernig hún getur bætt við það
sem stóru þjóðirnar hafa þegar reynt.“
Anna Ásthildur Thorsteinsson,
18 ára stúdent.
„Við ættum að einbeita okkur frekar að
innanríkismálum enda af nógu að taka
þar. Við ættum að hætta þessari
vitleysu. utanríkisráðherra getur
sennilega gert meira gagn hérna
heima heldur en að reyna að leysa
þúsund ára gamla deilu. Það er allt í
steik hérna heima, samanber
náttúruverndarmálin sem samfylking-
in vanrækir þessa dagana.“
Kristján Garðar Árnason,
28 ára, atvinnulaus
„mér líst ótrúlega vel á það . maður
hefur lengi beðið eftir bjargvættinum í
norðri. Ég held að þetta geri ekki mikið
gagn ef ég á að segja eins og er. Þetta
er samt svolítið gott fyrir egó
íslendinga að fá að taka þátt í leiknum
með stóru körlunum. en að öllu jöfnu
er ég bara fegnastur því að bjargvætt-
urinn skuli vera risinn!“
Jón Bjarki Magnússon,
23 ára, lífskúnstner og skáld
sanDkorn
n Fast er nú sóst eftir því að
Sigurður Hall matreiðslu-
meistari stýri matreiðsluþátt-
um á Stöð 2 í vetur. Sjálfur vildi
Sigurður
ekki stað-
festa þetta
og sagði
einungis að
menn hefðu
rætt sín á
milli og það
óformlega.
Sigurður
er að verða
nokkuð sjónvarpsvanur, því
að auk þess að hafa um langt
skeið eldað mat í íslensku
sjónvarpi hefur hann komið
fram í yfir sextíu sjónvarps-
þáttum í Bandaríkjunum við
góðan orðstír.
n „Það er ekki von á góðu þeg-
ar valdasýki og fábjánaháttur
leggjast á eitt,“ segir Þórunn
Jóna Hauksdóttir, framhalds-
skólakennari og bæjarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokks í Ár-
borg, á vef-
síðu sinni.
Færsla sjálf-
stæðiskon-
unnar hefur
vakið hressi-
lega eftir-
tekt eystra.
„Gegnt brúarsporðinum mun
blasa við 34 metra hár reður.
Skagandi upp í loftið svo meiri-
hlutinn komist í betra tæri við
almættið,“ bætir Þórunn við á
sama tíma og hún segir ónafn-
greindan leiðtoga bæjarstjórn-
arinnar vera utanbæjarbesefa
sem ætti að halda sig heima.
n Í fréttum Stöðvar 2 í gær var
því haldið fram að íslenski
klámframleiðandinn Scott
Hjorleifsson hafi fengið óblíð-
ar móttökur í lokuðu partíi
femínista þegar hann kom til
landsins ný-
verið. Scott
var einn af
helstu for-
kólfum þess
að klámráð-
stefnan um-
talaða yrði
haldin hér á
landi. Í frétt-
unum sagðist hann hafa farið á
djammið í borginni við sjöunda
mann. Þá hafi hann óvart endað
í partíi með yfirlýstum femín-
istum sem Scott segir að hafi
ekki vitað hver hann var. Engu
að síður hafi femínistarnir verið
afar andstyggilegir. DV hafði
samband við alræmdustu fem-
ínista landsins en enginn þeirra
kannast við að hafa verið í partíi
með Scott.
Árni veit betur
Ef menn eru á móti göngunum er best að segja það,
en vera ekki að reyna að reikna sig frá jafnþörfu
verki og hann Árni segir Vestmannaeyjagöngin vera.