Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2007, Page 32
Vinnuslys
í Kópavogi
Maður datt niður af þaki á ný-
byggingarsvæði í Kópavogi síðdeg-
is í gær. Það var um hálfsexleytið
síðdegis sem
maðurinn rann
til í bleytunni og
datt niður af þak-
inu. Hann slapp
þó furðu vel en
hann slasaðist
á fæti. Sjúkra-
bíll var sendur á
vettvang til þess
að sækja hann og var hann færður
til aðhlynningar á Landspítalann í
Fossvogi. Ekki var vitað hversu illa
slasaður hann var á fæti í gær en
auðveldlega hefði getað farið verr
miðað við aðstæður.
„Ef við vinnum málið fyrir dóm-
stólum er viðbúið að Glitnir banki
þurfi að hætta að nota nafnið,“ segir
Ragnar Baldursson héraðsdómslög-
maður. Hann lagði fram kvörtun til
Neytendastofu fyrir hönd rafvélaverk-
stæðisins Glitnis í Borgarnesi vegna
notkunar bankans á nafninu.
Neytendastofa taldi ekki ástæðu til
þess að aðhafast frekar í málinu. Ekki
væri hætta á ruglingi vegna þess hve
starfsemi fyirtækjanna er ólík. „Það
er ekki búið að ákveða næstu skref-
in í málinu,“ segir Ragnar. Líkur eru á
því að málið rati fyrir dómstóla. Ragn-
ar segir að afstaða til þess verði tekin í
næstu viku.
Rafvélaverkstæðið Glitnir í Borg-
arnesi hefur verið rekið frá árinu
1984. Í desember árið 1993 var stofn-
að einkahlutafélag um reksturinn sem
áfram hlaut nafnið Glitnir. Kvörtunin
til Neytendastofu byggist á skráningu
nafnsins í firmaskrá og fyrirtækjaskrá,
samfellt í 23 ár. Auk rafverktakaþjón-
ustu og reksturs verslunar og verk-
stæðis er hlutverk Glitnis í Borgarnesi
lánastarfsemi og rekstur fasteigna.
Í erindi Glitnis ehf. til Neytenda-
stofu segir einnig að eftir að Íslands-
banki breytti nafni sínu í Glitnir banki
hafi Glitnir í Borgarnesi orðið fyrir
umtalsverðum óþægindum í starf-
semi. Mikill fjöldi símtala berist raf-
vélaverkstæðinu sem ætluð séu Glitni
banka, auk þess sem verkstæðinu ber-
ist reikningar og önnur gögn sem með
réttu ættu að berast til bankans. Mikill
tími fari í það hjá starfsfólki Glitnis ehf.
að greiða úr þessum flækjum.
Eigendur Glitnis ehf. telja að bank-
inn markaðssetji starfsemi sína í heim-
ildarleysi með firmaheiti Glitnis ehf,
í stað þess að nota skráð firmaheiti.
Þessi háttsemi sé brot á lögum um eft-
irlit með óréttmætum viðskiptahátt-
um og gagnsæi markaðarins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem firma-
heiti frá Borgarnesi er notað í banka-
rekstri. Kaupfélag Borgnesinga notaði
um árabil skammstöfunina KB, sem
síðar var notuð af banka. sigtryggur@dv.is
„Hvort sem það er Eimskip eða önn-
ur fyrirtæki á forsetabústaðurinn að
vera hafinn yfir einstaka hópa og fyr-
irtæki,“ segir Ögmundur Jónasson,
þingflokksformaður Vinstri grænna,
sem gagnrýnir að forseti Íslands skuli
leyfa einkafyrirtækjum að handsala
samninga í bústað sínum.
Fyrr í vikunni skrifaði Eimskip
undir samning um rekstur á kæli-
og frystigeymslum í Kína. Hún er í
Qingdao-höfn en hún er stærsta
höfnin í Kína á sviði hitastýrðra
flutninga. Samningurinn er einn sá
stærsti sem hefur verið handsalaður
hér á landi.
Örnólfur Thorsson forsetaritari
segir ekki óeðlilegt að skrifa und-
ir samninginn á Bessastöðum þar
sem undirritun fór einnig fram í Kína
ásamt forseta lýðveldisins.
Gekk of langt
„Þarna finnst mér að það ætti að
draga línuna og finnst mér forsetinn
hafa gengið of langt í þessum efn-
um,“ segir Ögmundur sem þykir nóg
um. Hann segir það sjálfsagt mál að
Bessastaðir séu notaðir til móttöku
og fagnaða. Hann segir ekkert at-
hugavert við það að forseti Íslands
taki vel á móti gestum. Þó vill hann
meina að forsetinn hafi gengið of
langt í þessu máli.
Bessastaðir ehf.?
„Forsetaembættið er sem bet-
ur fer ekki enn orðið ehf. þótt flest
í kringum okkur sé á leið í einhvers
konar markaðspakkningu,“ segir Ög-
mundur og bætir við að það skipti
máli að í þjóðfélaginu séu fyrir hendi
girðingar gegn ásælni markaðshyggj-
unnar. Hann segir það tilganginn
sem forstaembættið eigi að þjóna.
Hann segir embættið vera tákn um
lýðræði, sameiginlega sögulega arf-
leifð og samstöðu þjóðarinnar.
Virðingarvottur endurgoldinn
„Ég vil ekki deila við Ögmund
Jónasson alþingismann, hvorki um
þessi efni né önnur,“ sagði Örnólfur
Thorsson forsetaritari. „Ég vil hins
vegar leyfa mér að rifja það upp,
að í opinberri heimsókn forseta Ís-
lands til Kína fyrir tveimur árum,
voru með í för fulltrúar ríflega 100
íslenskra fyrirtækja og mörg þeirra
gengu frá samningum við kínverska
samstarfsaðila, fyrirtæki eða op-
inbera aðila í ferðinni. Til dæmis
skrifaði núverandi dótturfélag Eim-
skips, Atlanta, þá undir samning við
kínverska samstarfsaðila sína við
hátíðlega athöfn í Höll alþýðunnar
í Peking að viðstöddum forseta Ís-
lands og Hu Jintao, forseta Kína. Það
má því kannski segja að við séum að
endurgjalda Kínverjum þá gestrisni
nú. Í annan stað má nefna að und-
irskrift samningsins milli Eimskips
og fulltrúa stjórnvalda í Qingdao
var í kjölfar fundar forseta Íslands
með hinni opinberu sendinefnd frá
borginni en í forystu fyrir henni var
aðalritari kínverska kommúnista-
flokksins í Qingdao,“ segir Örnólfur.
fimmtudagur 26. júlí 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Var ekki KB banki líka
í stríði við Borgnesinga...?
SEGIR FORSETANN
GANGA OF LANGT
Ögmundur Jónasson segir Ólaf ragnar Grímsson misnota forsetabústaðinn:
Einar oddur kristjánsson kvaddur Hátt í þúsund manns voru viðstaddir minningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson
alþingismann sem fram fór í Hallgrímskirkju í gær. Vinir og fyrrverandi og núverandi samstarfsmenn Einars báru kistuna út úr
kirkjunni, þeir Geir H. Haarde forsætisráðherra, Davíð Oddsson seðlabankastjóri, Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins,
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari, Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár. Einar
Oddur lést 14. júlí síðastliðinn og verður hann jarðsunginn í Flateyrarkirkju laugardaginn 28. júlí klukkan 14:00. DV mynd Stefán
Rafvélaverkstæðið Glitnir í Borgarnesi kvartar undan Glitni:
Vilja að Glitnir skipti um nafn
Kvikmynd tefur
umferð
Fram eftir kvöldi má búast við
töfum á umferð vegna kvikmynda-
töku á Bláfjallavegi og í Hvalfirði við
Botnsá.
Vegna malbikunar hringtorgs á
mótum Vesturlandsvegar og Þing-
vallavegar hefur umferð nú verið
hliðrað til vesturs og er nú ekið um
vestari hluta hringtorgsins. Jafn-
framt hafa gatnamót við Þingvalla-
veg verið færð um 100 metra til suð-
urs. Af þessum sökum þarf að aka í
sveigum um svæðið og eru vegfar-
endur beðnir að sýna fyllstu aðgát.
Ufsarstífla rís
Landsvirkjun reiknar með að
veita Jökulsá á Fljótsdal framhjá
farvegi sínum, þar sem Ufsarstífla
mun rísa, í dag. Rennsli árinnar
hefur verið mikið í sumar sökum
örrar bráðnunar jökla í hlýind-
um. Það hefur nú rénað og hyggj-
ast menn sæta lagi.
Ufsarstífla verður 600 metra
löng og upp undir 37 metra há.
Það er verktakafyrirtækið Arn-
arfell sem sér um byggingu stífl-
unnar. Fyrirtækið hefur átt í fjár-
hagsörðugleikum, en mikið kapp
er lagt á að klára verkið á tíma.
Ólafur ragnar Grímsson Forseti
Íslands fór til Kína fyrir tveimur árum
ásamt sendinefnd og úr varð einn stærsti
samningurinn í sögu Íslands.
Valur GrEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Glitnir banki Fyrirtækið Glitnir í
Borgarnesi vill að Glitnir banki hætti
notkun á nafninu.
Bílvelta á
Kárahnjúkum
Starfsmaður Kárahnjúkavirkjun-
ar missti stjórn á bíl sínum skammt
frá afleggjaranum að aðgöngum 2
á Fljótsdalsheiði síðdegis í fyrradag
en slapp án alvarlegra meiðsla. Bíll-
inn fór fjórar veltur er hann fór út af
veginum og kastaðist maðurinn út
úr honum. Enginn var með mann-
inum í bílnum en hann var ekki í
bílbelti. Maðurinn hlaut minnihátt-
ar beinbrot og var fluttur á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri og liggur
þar enn. Hann verður útskrifaður
á næstu dögum. Orsök slyssins má
rekja til hraðaksturs og er bíllinn
gjörónýtur. Þetta kemur fram á aust-
urlandid.is
Kviknaði í bíl
Engan sakaði þegar kviknaði í bif-
reið í gær á Hafnarfjarðarveginum
í námunda við Fífuna í Kópavogi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var
kallað út. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu gekk vel að slökkva eld-
inn og lauk slökkvistarfi um tíu mín-
útum eftir að útkall barst. Eldsupp-
tök liggja ekki fyrir að svo komnu en
bíllinn er mikið skemmdur