Innsýn - 01.04.1976, Side 10

Innsýn - 01.04.1976, Side 10
”allir krakkar, allir krakkár” HALLDÓR KRISTJÁNSSON Þegar ég var lítill strákur, átti ég heima í kjallara á elliheimili nokkru ná- lægt Skodsborg Bedesanetorium í Dan- mörku. Á þessu elliheimili var vistmaður, gömul kona, Esther Tojberg að nafni. Hún bjó hér á landi um nokkurn tíma fyrir all mörgum árum. Mamma þekkti hana frá íslandsdvöl hennarog það kom því stundum fyrir að mamma bað hana fyrir mig meðan hún fór frá. Gamla konan varhálf heyrnarsljó, það gefurþví auga leið, að það var lítið spennandi fyrir 6 ára strák að dúsa hjá henni í marga klukkutíma. Gamla konan reyndi þó eftir megni að skemmta drengnum, og eitt af því sem við gerðum var að spila “Lúdó". Hún þekkti ekki reglurnar svo að það var gullið tækifæri hjá mér, að hagræða reglunum mér í hag, og þaö brást ekki að ég var ailtaf meö alla fjóra í borg þegar gamia konan var að Ijúka við fyrsta eða annan manninn. Fyrstu þrjú eða fjögur spilin fannst mér þetta mjög gaman, en úr því fór gleðin að dvína, því öll spennan var horfin. Ég breytti reglun- um í sífellu og vann alltaf. Gömlu kon- unni fannst þetta eflaust ekki mjög skemmtilegt, en hennar ánægja var þó líklega sú að ég var ekki að gera at í hundi forstöðukonunnar (sem æstist upp jafnauðveldlega og forstöðukonan sjálf, mér til mikillar ánægju) eða að gera einhverja aðra álíka miður góða hluti á meðan. Nú, þið munið eflaust eftir slíkum atvikum úr ykkar eigin lífi. Þá helst hversu leiðinlegt það var að vera með í leik þar sem maður þekkti ekki leikregl- urnar, og einhverjir sem eldri voru, eða sterkari, settu reglurnar jafnóöum og þeirra þurfti við. Slíkum leikjum nennti enginn að taka þátt í nema þá þeir elstu svona smá stund. Hvað er leikur, ef ekki undirbúningur undir framtíðina? Af leikjum ættum við að geta lært eitthvað sem kemur að

x

Innsýn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.