Kjarninn - 26.09.2013, Page 61
01/01 kjarninn ÁlIt
Kjarninn tekur á móti
aðsendum greinum. Ekki er
tekið við greinum lengri en
700 orð. Mynd af höfundi
verður að fylgja.
Sendið greinar á
ritstjorn@kjarninn.is
Fjöldi Flugvéla og áFangasTaða
2008
Áfangastaðir Icelandair eru 23. Floti
félagsins samanstendur af tíu flug-
vélum; níu Boeing 757-200 vélum og
einni Boeing 757-300.
2009
Fjöldi áfangastaða hækkar í 25 þegar
Seattle og Stafangur koma inn í
leiðakerfi félagsins. Bætt er við einni
Boeing 757-200 vél.
2010
Félagið bætir við Brussel og Þránd-
heimi inn í leiðakerfið. Bætt er við
einni Boeing 757-200 vél.
2011
Fjórir áfangastaðir hafa bæst við
í leiðakerfi félagsins og flýgur
félagið nú til Billund, Gautaborgar,
Hamborgar og Washington D.C.
Fjöldi áfangastaða er nú 31. Bætt er
við tveim vélum í flotann, báðum af
gerðinni Boeing 757-200 .
2012
Denver er nýr áfangastaður félagsins
þetta árið. Einnig hefst flug til
Gatwick-flugvallar í london til við-
bótar við flug félagsins til Heathrow-
flugvallar. Bætt er við tveim Boeing
757-200 vélum. Aukin tíðni á flesta
áfangastaði félagsins.
2013
Fimm nýir áfangastaðir bætast við
leiðakerfið. Þeir eru Anchorage,
Sankti Pétursborg og Zürich. Einnig
flug til Newark-flugvallar í New
Jersey til viðbótar við núverandi flug
félagsins til New York-borgar. Floti
félagsins stækkar og telur nú átján
vélar; sautján Boeing 757-200 og
eina Boeing 757-300. tíðni eykst á
flesta áfangastaði félagsins.
2014 (áætlun)
Flotinn hefur stækkað um 110%
síðan 2008 og eru vélarnar orðnar
21 talsins. Ekki hefur verið gefið út
hvers konar flugvélar þessar þrjár
verða. Þrír nýir áfangastaðir koma
inn; Genf, Vancouver og Edmonton.
Fjöldi áfangastaða er orðinn 38. tíðni
eykst á flesta áfangastaði félagsins.
Flugáætlun fyrir sumarið 2014 er sú
stærsta í 77 ára sögu félagsins.
nýir áfangastaðir og framtíðartækifæri icelandair
Framkvæmdastjóri Icelandair hefur sagt að markmiðið sé
að þétta leiðakerfi félagsins á sumrin og á veturna. Minnka
eigi árstíðasveifluna í leiðakerfinu með því að fljúga oftar til
núverandi áfangastaða og til fleiri borga á veturna. Iceland-
air er nú þegar byrjað að þétta leiðakerfi sitt fyrir komandi
vetur, með því að fjölga ferðum til Parísar og Toronto. Enn
fremur hefur félagið flogið undanfarna vetur til München og
Helsinki, svo dæmi séu tekin, sem það gerir einnig á sumrin.
Ekki er hægt að sleppa að nefna að félagið mun hefja flug til
Newark-flugvallar í nágrenni New York-borgar, en það er
aðeins viðbót við núverandi flug félagsins þangað.
Mörg spennandi tækifæri bíða Icelandair, ekki síst í
Norður-Ameríku, þar sem tækifærum í Kanada mun að öllum
líkindum fjölga til muna. Hingað til hafa flugmálayfirvöld í
Kanada haft miklar hömlur á flugi flugfélaga þangað, stýrt
flugtíðninni og hvaða áfangastaða hvert flugfélag flýgur til.
Þetta hefur gert það að verkum að Icelandair hefur þurft að
fljúga til Halifax til þess að fá að fljúga til Toronto og hægst
hefur á fjölgun áfangastaða þar. En nú með nýjum samningi,
svokölluðu „open skies agreement“, munu þessar hömlur
falla úr gildi. Á síðustu misserum hefur Icelandair gert samn-
inga við kanadísku flugfélögin Westjet og Porter Airlines sem
munu væntanlega styðja sókn Icelandair á Kanadamarkað,
sérstaklega samningurinn við Westjet.
Meðal áfangastaða sem hugsanlega gætu komið inn í
leiðakerfi Icelandair í Kanada í náinni framtíð eru Montreal,
Vancouver og Edmonton, en eins og fyrr er sagt verða tvær
síðastnefndu borgirnar nýir áfangastaðir félagsins fyrir
næsta sumar. Borgir eins og Winnipeg og Calgary væru
einnig álitlegir kostir en eflaust eru þær aðeins neðar í
goggunarröðinni, þar sem markaðurinn er líklega of lítill
fyrir flota Icelandair eins og hann er í dag. Í Bandaríkjunum
getum við séð áfangastaði eins og Chicago, Miami, Portland
og jafnvel Atlanta. Ólíklegt er að Icelandair hefji flug til
Detroit og Philadelphia, einfaldlega vegna þess að þeir
markaðir eru vel mettaðir þar sem bandaríska flugfélagið US
Airways er með stóra miðstöð í Philadelphia og Delta Air-
lines er með stóra miðstöð í Detroit. Þó verður spennandi að
sjá hvort tíðni til Minneapolis muni aukast og einnig hvort
borgin verði áfangastaður félagsins allan ársins hring.
Leiðakerfi Icelandair í Evrópu er nánast fullmettað eins
og staðan er í dag. Aftur á móti gætu áfangastaðirnir Dublin,
Prag, Varsjá, Düsseldorf, Vín og Birmingham bæst við á
næstu misserum. Þessir áfangastaðir eru allir innan fjögurra
tíma radíuss frá Keflavík þó að Prag og Varsjá séu reyndar
á mörkunum. Enn fremur væru staðir eins og Zürich og
Brussel áhugaverðir „kandídatar“ sem vetraráfangastaðir,
sérstaklega fyrir farþega sem fljúga milli Evrópu og Norður-
Ameríku.