Kjarninn - 20.03.2014, Blaðsíða 59
02/04 rúSSland
honum. En reglurnar eru skýrar; ólöglegt tak þýðir sjálfkrafa
tap. Í fyrsta skiptið á ferlinum þurfti þetta heljarmenni, sem
gekk undir gælunefninu Rússneski björninn á ferli sínum, að
sætta sig við silfur. Gardner hljóp um sem óður væri eftir að
hafa tekist hið ómögulega; að leggja björninn.
ógnvekjandi hluti af ímynd rússlands
Í Rússlandi hafa fleiri nöfn fest við Karelin. Meðal annars
hið óvenjulega viðurnefni Tilraunin, þar sem vísað er til þess
að hann sé eins og eitthvert viðundur þegar
kemur að líkamsburðum og hafi líklega
verið búinn til á tilraunastofu. Þess má geta
að Karelin vó 27 merkur við fæðingu. Og
svo hið rökrétta Alexander mikli. Karelin er
einn af vinum Pútíns og hefur notið góðs af
því, nema hvað. Hann er með doktorspróf í
íþróttakennslufræðum og hefur unnið sig
upp innan stjórnkerfisins sem þingmaður
Stavropol-héraðs. Hann á sæti í nefnd um
utanríkismál og kemur auk þess reglulega
fram með rússneska hernum. Oftast nær
eru ljósmyndarar og kvikmyndatökumenn á
svæðinu þegar hann birtist.
Hann er sagður standa valdamiklum
aðstoðarmönnum Pútíns mjög nærri, þó að
hann sé ekki formlega hluti af Sameinuðu
Rússlandi, stjórnmálahreyfingunni sem öllu ræður. Jafnvel
er talið líklegt að hann verði orðinn yfirmaður innan hersins
áður en langt um líður.
drepur með augnaráðinu
Karelin var sagður drepa með augnaráðinu áður en bar-
dagarnir byrjuðu. Svo djúp ógnun fylgdi því þegar hann
horfði ískaldur á andstæðinga sína. Árangur hans setur
hann á spjöld sögunnar sem einn allra mesta afreksmann
ólympískra íþrótta. Grísk-rómversk glíma er kannski ekki
vinsælasta íþróttin í heiminum en hún á djúpar rætur á
„Í fyrsta skiptið á ferlinum
þurfti þetta heljarmenni,
sem gekk undir gælunafninu
Rússneski björninn á ferli
sínum, að sætta sig við silfur.“
um alexander karelin
Fæddur 19. september 1967
Q Karelin keppti í þyngsta flokki, í rúmlega 130
kílógramma flokki.
Q Hann keppti 887 sinnum og tapaði einu sinni.
Q Hann vann þrjú Ólympíugull á ferlinum og
varð þrettán sinnum heimsmeistari.