Kjarninn - 17.04.2014, Síða 16

Kjarninn - 17.04.2014, Síða 16
07/08 EfnahagSmáL Baugur Group og tengdir aðilar Í skýrslunni kemur fram að Baugur Group og aðilar tengdir fé- laginu hafi fengið lán án veða m.a. vegna þess að Baugur hefði verið mjög fjársterkur aðili og að áratuga góð reynsla væri hjá sparisjóðnum af viðskiptum við aðila tengda félaginu. 650 milljóna króna lán sem SPRON veitti Baugi 1. júlí 2008 fór í vanskil í september 2008. Í skýrslunni segir: „Hinn 12. desember 2008 veitti sparisjóðurinn Baugi Group hf. lán að fjárhæð 1.149 milljónir króna [...] Lánið var veitt til að endur- fjármagna eldri skuldir félagsins, bæði til uppgjörs á láninu frá því í júlí sama ár og greiðslu skuldabréfs [...] Skuldabréfið hafði verið gefið út til handa Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í september 2007, upphaflega að nafnvirði 500 milljónir króna með lokagjalddaga 28. september 2008,en var í vanskilum frá þeim tíma. Sem tryggingu fyrir láninu lagði fram 29,5 prósent hlut í F- Capital sem veð. Baugur átti F- Capital að fullu en sama dag og þetta lán var veitt tók Spari- sjóðabankinn yfir helming hlutafjár í félaginu til fullnustu skuldum við sig. Í lok desember 2008 voru færðar tæpar 1.150 milljónir króna í sérgreint afskriftaframlag vegna útlána til Baugs Group hf., eða sem nam heildarskuldbindingu félags- ins. Baugur Group hf. var úrskurðað gjaldþrota í mars 2009.“ Hvítsstaðir Hvítsstaðir ehf. var stofnað árið 2002 til að kaupa fjórar jarðir á Mýrum af Sparisjóði Mýrasýslu. Félagið var í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar, Sigurðar Einarssonar, Magnúsar Guð- mundssonar, Steingríms P. Kárasonar, Ingólfs Helgasonar og Þorvaldar Lúðvíks Sigurjónssonar, en hann hvarf úr hluthafa- hópnum á árinu 2007. Í desember 2011 kyrrsetti slitastjórn Kaupþings banka hf. hluti fimmmenninganna í Hvítsstöðum ehf. vegna skuldbindinga þeirra við þrotabú Kaupþings. Þá höfðu Hvítsstaðir ehf. einnig verið með háa skuldbindingu í Sparisjóði Mýrasýslu sem Arion banki hf. hafði yfirtekið eftir fall sparisjóðsins. Í lok árs 2011 var eigið fé Hvítsstaða ehf. neikvætt um 806 milljónir króna.

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.