Kjarninn - 17.04.2014, Síða 60

Kjarninn - 17.04.2014, Síða 60
03/03 mEnning Kanada ásamt tuttugu og sjö ára vini sínum. Tvímenningarnir þénuðu milljónir Bandaríkjadala og lifðu hina ljúfa lífi, en hinum vafasama lífsstíl fylgdu vandamál sem kom þeim að lokum í koll. Jonathan Daniel Brown, Kenny Wormald, John C. McGinley og Ron Perlman fara með aðalhlutverkin í myndinni, sem er leikstýrt af John Stockwell sem hefur helst getið sér orð sem leikari. Myndin lofar mjög góðu. the final member Heimildarmyndin The Final Member, sem fjallar um Hið íslenzka reðasafn, verður tekin til sýninga í Bandaríkjunum á föstu- daginn langa. Kanada- mennirnir Jonah Bekhor og Zach Matt leikstýrðu myndinni og dvöldu lang- dvölum á Íslandi við gerð hennar. Myndin var sýnd á RIFF á síðasta ári, en hún fjallar um leit Sigurðar Hjartarsonar, stofnanda reðasafnsins, að loka- limnum – hinu mennska sýnishorni – og samkeppni tveggja manna við að veita safninu aðalsýningar- gripinn. Gaman verður að fylgjast með viðtökum Bandaríkjamanna við myndinni, en kostuleg stikla úr myndinni er stórskemmtileg. fading gigolo Stórleikarinn John Turturro leikstýrir og skrifar handritið að gaman myndinni Fading Gigolo. Þó að kvikmyndin hafi verið frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Toronto á síðasta ári fer hún ekki í dreifingu í Bandaríkjunum fyrr en núna um páskana, og þá aðeins í valin kvik- myndahús. Hin umdeildi Woody Allen fer með hitt aðalhlutverkið í myndinni, sem mun vafalaust hafa neikvæð áhrif á aðsóknina. Myndin fjallar um venju- legan mann sem ákveður að snúa sér að vændi til að hjálpa blönkum vini sínum, sem tekur að sér að gera hann út. Þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunarefni sögunnar ku myndin vera drepfyndin. Auk Allen og Turturro skartar myndin stórstjörnunum Sharon Stone, Sofiu Vergara, Vanessu Paradis og Liev Schreiber. Horfa á stiklu Horfa á stiklu

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.