Kjarninn - 22.05.2014, Page 41
05/13 ViðTal
Englandsmeisturum Manchester City. Þá hefur Barton ítrek-
að látið umdeild ummæli falla í fjölmiðlum og samfélags-
miðlum um hinna ýmsu leikmenn. Heiðar segir þeim Joey
Barton vel til vina.
„Ég kann mjög vel við hann og fíla hann mjög vel. Hann
er bara eins og hann er. Hann er umdeildur og óhræddur við
að segja skoðanir sínar og honum er þá alveg sama hvern
hann móðgar. Við náðum mjög vel saman og erum vinir í
dag, ég spilaði til að mynda með honum golf um daginn,“
segir Heiðar og brosir.
eftirminnilegir samherjar og mótherjar
Þeir hlaupa á hundruðum, leikmennirnir sem Heiðar hefur
spilað með í gegnum tíðina. Spurður hvaða samherjar hafi
verið eftirminnilegastir segir hann: „Steed Malbranque hjá
Fulham var hrikalega góður en ætli Adel Taarabt hjá QPR
hafi ekki verið hæfileikasti leikmaður sem ég hef spilað með.
Það sem hann gat gert á vellinum var ótrúlegt, þegar hann
nennti því.“
Heiðar þekkir vel muninn á 1. deildinni og úrvalsdeildinni
í Englandi. Hann segir hörkuna og hraðann í enska boltanum
oft ekki skila sér að fullu inn í stofu til sjónvarpsáhorfenda.
„Þetta eru gríðarleg slagsmál og hraðinn er alveg ótrúlegur.
Mér fannst erfiðara líkamlega að spila í Championship, þar
eru meiri slagsmál, en þar er líka spilaður öðruvísi fótbolti.
Þar er meira spilað langt og allir eru á fullu gasi allan
tímann. Í úrvalsdeildinni er þetta meira kaflaskipt, og þar er
meira spilað manna á milli aftast og þá nær maður að anda á
milli. Í 1. deildinni er fótboltinn eiginlega eins og borðtennis.“
Sökum líkamlegs leikstíls Heiðars hefur hann marga
hildina háð við varnarmenn á Englandi. „Af þeim varnar-
mönnum sem ég hef spilað við í gegnum tíðina átti ég alltaf
í mestu erfiðleikunum með Ledley King hjá Tottenham. Þó
að hann hafi bara verið á hálfri löpp var hann stór, sterkur,
fljótur og góður á boltanum og svo var hann alveg til í að
slást líka,“ segir Heiðar og brosir.