Búskapur hins opinbera 1995-1996 - 01.11.1997, Blaðsíða 33
Hin æskilega blanda frjáls markaðar og opinberra afskipta næst þar sem neyslu-
samsetning samfélagsins hámarkar notagildi einstaklinganna við hagkvæmasta
framleiðslumynstur. Mikilvægt er því í þessu samhengi að menntakerfið eða fræðslu-
markaðurinn hafi möguleika á að gefa rétt merki og skilaboð20.
8.1.5 Námsárangur og frammistaða skóla
Ljóst er að erfitt getur verið að leggja fullnægjandi mat á árangur skólastarfs þar
sem markmið þess eru æðifjölþætt. Helst kemur þó til greina að mæla námsárangur
nemenda, hlutfall brottfalls úr námi eða velgengni nemenda í starfi að loknu námi.
Mæling á námsárangri nemenda hefur ætíð verið hluti af skólastarfi. Hún hefur
gefið nemendum réttindi til frekara náms eða til ákveðinna starfa. En undanfarin ár
hefur einnig fæst í vöxt að mæla frammistöðu einstakra skólastofnana og jafnvel
skólakerfa21 með samanburði. Slíkt hefur yfírleitt verið gert með samræmdri mælingu
í ákveðnum námsgreinum milli skóla eða skólakerfa. Markmiðið er að veita skólum
aðhald og auka upplýsingar til að geta bætt stjórnun og stuðlað að markvissri kerfis-
breytingu. En í gegnum skólasöguna hefur þó frammistaða og orðspor skóla speglast
af kunnáttu og hæfni þeirra nemenda sem þar hafa stundað nám. Og líklegt er að um
ókomna framtíð verði slíkt orðspor þýðingarmest í þessu samhengi.
En fleira kemur til en námsárangur og gæði þjónustu þegar fjallað er um frammi-
stöðu skóla. Einnig hefur rekstrarframmistaða skólastofnana miðað við námsárangur
þýðingu, því að aðfanganotkun og einingakostnaður getur verið mismunandi á
nemanda milli skóla.
Með frammistöðumælingum getur hið opinbera reynt að bæta úr þáttum eins og
ónógri fjárhagslegri hvatningu sem oft ræður hjá framleiðendum. Sama er að segja
um skaðlega einokun og takmörkun á starfsemi framleiðenda, óhentugt skipulag og
stjómarmynstur í fræðsluþjónustu. En þrátt fyrir að hægt sé að ráða bót á ofan-
greindum þáttum er það þó oft svo að stjómvöld hafa ófullnægjandi skilning á þeirri
samsetningu hvata og reglna sem best hvetja framleiðendur.
8.2 Menntun, fjármögnun og framboð
Bæði fjármögnun á menntun og framboð er með nokkuð ólíkum hætti milli landa. í
sumum þeirra kosta nemendur menntunina sjálfír í ríkum mæli en í öðrum annast hið
opinbera Qármögnunina. Flestar þjóðir blanda þó þessum Qármögnunarleiðum saman
20 í opinberri umræðu er oft talað um að menntamál eða heilbrigðismál megi ekki fara yfir ákveðið
hlutfall af landsframleiðslu. Slík umræða kemur til af þeirri einföldu staðreynd að hið opinbera er
mjög nátengt þeirri starfsemi sem yfirleitt fer lítt fram í markaðsumhverfi. Hlutföll eru því sett fram
til að halda aftur af útgjaldaþenslu þessara málaflokka. En þjónustan þarf ekki nauðsynlega að
spegla vild (preferensa) einstaklinganna (samfélagsins). Þeir gætu viljað meiri þjónustu. Ef þessi
þjónusta er hins vegar boðin fram með þeim hætti að markaðsöflin fái að hluta ráðið framboði og
eftirspum hennar, þannig að framleiðnin verði svipuð og hjá öðrum atvinnugreinum, er ekkert því
til fyrirstöðu að á þessum mörkuðum náist eðlilegt jafnvægi af sjálfu sér.
21 í samstarfi OECD-ríkja hefur til dæmis miklum upplýsingum um skólamál verið safnað og þær
bomar saman milli landa í sérstökum útgáfum. Nefna má rit eins og Educalion at a Glance, OECD
indicators, sem gefið er út reglulega og sömuleiðis nýleg rit eins og Successful Services for
Children and Families at Risk og einnig Adult Learning and Technology in OECD Countries.
31