Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Page 12
06
HELGAFELL
Þúsund kristal-kastanéttur
klufu dagsins fyrstu skímu.
Grænt, grænt, svo gott og grænt!
vindur grænn í grænu laufi.
Ofar leita lagsmenn tveir.
Langir vindar eftir skilja
bragð á tungu blandið keim
beiskum sem af galli og myntu.
Seg mér, lagsi, hvar er hún,
hvar er telpan þín, sú bitra?
Hún sem beið þín ærið oft,
ot't og lengi hlaut að bíða,
blómleg ásýnd, hrafnsvart hár,
hér á þessum grænu svölum!
Yfir tjarnar-flötinn fram
flökkumærin lætur sveiflast.
Hörund grænt og grænir lokkar,
glitrar silfur-hrím í augum.
Mánaglitað klakakerti
kroppnum heldur ofan vatnsins.
Innileg varð óttnstund
einsog torg í litlu þorpi.
Gæzluliðar dauðadrukknir
dynja létu knefa á hurðum.
Grænt, ó, grænt, svo gott og grænt!
Vindur grænn í grænu laufi.
Gnoðin yfir djúpri röst.
Hesturinn á heiðar-klifi.
Rafael Alberti
EF MINN RÓMUR . . .
Ef minn rómur deyr á landi
þá berið hann útað sjó
og skiljið við hann á ströndu.
Þið berið hann útað sjó
og þið kveðjið hann til stjórnar
á orustuskipi hvítu.
Ó minn rómur fagurbúinn
öllum sjómennskunnar táknum:
fyrir ofan hjartað anker,
yfir ankerinu stjarna
og yfir stjörnunni stormur
og yfir storminum segl.
Helgi Hólfdanarson íslenzkaði.
Þýðandi hefir notið aðstoðar sr, losé
Antonio Fernóndez Romero.