Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 35

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 35
SOLON: Parkinsons lögmál I alvarlegum umræðum um vandamál þjóðfélagsins undanfarið rekst maður sífellt á skírskotun til nýs lögmáls, sem nefnt er Parkinsons lögmál. Ekki má lengur hjá líða að kynna Islendingum þessa merkilegu fræði- kenningu, sem ekki er slður frumleg en kenningar þeirra Malthusar og Marx voru á sínum tíma. Hún hefur það einnig fram yfir þessar gömlu kenningar, sem nokkrir fávísir menn trúa á enn í dag, að hún er í fullu gildi á vorum tímum, enda hvort tveggja í senn, splunkuný og hámóðins. Parkinsons lögmál fjallar um eitt helzta einkenni nútímans, skriffinnskuna og skrif- stofubáknin, sem eru eins og krabbamein, sem breiðist látlaust út og étur upp hina heilbrigðu, starfandi vefi þjóðarlíkamans. Og Parkinson hefur sýnt fram á það, hvers vegna skrifstofubáknin hljóta að stækka stöðugt vegna innri raka, en geta aldrei minnkað. Fyrsta reglan, sem liggur til grundvallar Parkinsons lögmáli, hljóðar svo: „Hvert verk tekur ætíð allan þann tíma, sem til ráðstöf- unar er til að ljúka því." f þessari einföldu athugun felast mikil sannindi. Margir hafa vafalaust veitt því athygli, að menn, sem eru hlaðnir störfum, virðast alltaf hafa tíma aflögu. Hins vegar hafa iðjuleysingjarnir aldrei tíma til neins. Hefðarfrú, sem ekkert hefur fyrir stafni getur hæglega eytt heilum degi í það eitt að skrifa og senda póstkort til frænku sinnar í útlöndum. Einn klukku- tími getur farið í að finna gott kort, annar í að leita að gleraugunum, hálftími í samn- ingu og tuttugu mínútur til að ákveða, hvort nauðsynlegt sé að hafa regnhlíf á leiðinni í pósthúsið. Verk, sem önnum kafinn maður hefði lokið áreynslulaust á þrem mínútum, gæti þannig kostað aðra manneskju dag- langt erfiði, áhyggjur og efasemdir. Af þessu leiðir svo, að ekkert ákveðið hlutfall er til á milli afkasta og þess tíma eða mannafla, sem þarf til að vinna verkið. Lítil verkefni þurfa alls ekki að leiða til þess, að menn hafi meiri tíma afgangs eða þurfi að sitja auðum höndum, sérstaklega ekki, þegar um skrifstofustörf og önnur „andleg" störf er að ræða. Verkið, sem vinna þarf, vex í meðförum og verður eftir því flóknara og umfangsmeira, sem tíminn er lengri, sem eyða má í það. Stjómmálamenn og þá einkum kjósendur lifa í þeirri trú, að sívaxandi fjöldi opin- berra starfsmanna sé sönnun þess, að verk- efnin séu að sama skapi vaxandi. Háðfuglar munu hins vegar segja, að af auknum fjölda starfsfólks leiði það eitt, að allir hafi enn betri tíma en ella til að lesa blöðin og tala í símann við kunningjana. Báðir hafa rangt fyrir sér. Sannleikurinn er sá, eins og Parkin- sons lögmálið sýnir, að ekkert samhengi þarf að vera á milli fjölda embættismanna og þeirra verkefna, sem þeir hafa með hönd- um. Fjöldi starfsmanna mundi vera sá sami og erfiði þeirra jafnmikið, hvort sem verk- efnin eru meiri eða minni og jafnvel, þótt um engin raunveruleg verkefni væri að ræða. Hér er ekki hægt að fara út í hinar tækni- legu hliðar þessa máls eða hinar stærð-

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.