Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 21

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 21
HVERNIG URÐU LJÓÐ JÓNASAR TIL? 115 liring. Það er Þú stóðst á tindi Heklu hám, sem hann orti til franska læknisins og náttúrufræðingsins Pauls Gaimards. Sá hafði veitt forstöðu stórmerkri rannsóknar- ferð, sem Frakklandsstjórn kostaði og stóð liér við land 183.5 og 1836. Fræg eru prýði- leg rit og miklar og ágætar myndabækur, sem gefnar voru út af l'erðum Gaimards, bæði héðan og af öðrum norðurslóðum. Hann liafði verið með Jeiðangur sinn í Lapplandi og á Svalbarða, er hann kom til Hafnar um áramótin 1838-39 og Islend- ingar liéldu honum þar samsæti um miðjan janúar. Um þetta segir Benedikt, Gröndal í Dægradvöl: „Ferð Gaimards er hin frægasta, sem hingað hefur verið farin af því tagi, enda kunnu Islendingar í Höfn þá að rneta hana, með því þeir héldu Gaimard stórveizlu og fluttu lionum eitthvert hið fegursta kvæði, sem ort hefur verið á íslenzka tungu; það gerði Jónas Hallgrímsson. Gaimard var þá í Kaupmannahöfn á ferð og sat í veizl- unni; var kvæðið sungið, en Páll Melsteð þýddi það á latínu fyrir Gaimard, en hann hafði komizt við og tárazt . . . Veizlan stóð 16. jan. 1839. Daginn áður kom Þorgeir Guðmundsson og einhver annar inn á „Garð“ til Jónasar, þar var þá hjá hon- um Páll Melsteð. Þorgeir segir við Jónas: „Við ætlum að halda Gaimard veizlu á morgun, nú verður þú endilega að yrkja eitthvað.“ Jónas svaraði svo sem engu, og Þ[orgeir] fór. Síðan gekk Jónas um gólf og var að raula eitthvað fyrir munni sér. Páll skipti sér ekkert af honurn. Síðan sett.ist Jónas niður og skrifaði þrjár fyrstu vísurn- ar — og þeytti frá sér pennanum og sagði: „Nú get ég afndskotann] ekki meir!“ En um miðjan daginn eftir var kvæðið komið prentað úr prentsmiðjunni. Þetta sagði Páll Melsteð mér 28. febrúar 1894,“ — seg- ir Gröndal í Dægradvöl. Raunar má rengja smáatriði þessarar sögu. Jónas bjó 4 fyrstu Hafnarár sín á Garði og var tvö hin síðari sambýlismaður Páls Melsteðs (1834—36). Báðir munu þeir hins vegar hafa verið fluttir af Garði, þeg- ar hér var komið (1839), þótt vel megi vera, að þeir hafi verið þar staddir eða báðir saman heima lijá öðrum livorum. Heimilisfang brenglast fljótt í munnsögn- um og er þá helzt lcennt við það, sem þekktast er. Hið íburðarmikla skrautprent (í fjórum litum) hefur og tekið nokkurn tíma með þeirrar tíðar tækni. Páll Mel- steð hafði líka komizt yfir eiginhandarrit Jónasar að kvæðinu og ánafnaði það, sem öniiur merkustu handrit sín, konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn, og hefur skrifað fyrir neðan kvæðið: „Jónas Hall- grímsson sjálfur skrifaði llta jan. 1839 þetta blað. — P. M.“ En þótt þeir, er að samsætinu stóðu, liafi, sem eðlilegra má þykja, komið í kvæðisöflun til Jónasar með 5—6 daga fyrirvara fremur en eins, er ekki að lieldur ástæða til að rengja, að kvæðið sé ort á skömmum tíma. Því til fyllra stuðnings er, að Asmundur biskup Guðmundsson liefur sagt mér söguna eftir Páli Melsteð sjálfum mjög á sömu lund og liún er í Dægradvöl. Hann man nii ekki, hvort getið væri bústaðar. En Pall Melsteð var þar viðstaddur og vissi á þessu full deili. Og komið var í eindaga að yrkja kvæðið, sem Jónas átti að hafa gert á einni nóttu. Það fylgdi og sögunni, að Þorgeir og þeir félagar hefðu fært Jónasi vínflösku með kvæðisbóninni og Jrefði kvæðinu verið lokið nokkurn veg- inn jafn snemma og flaskan var tæmd. Um þetta fer þó e. t. v. sanni næst Guðmundur Björnsson landlæknir í mjög athyglisverðri grein, sem hann skrifaði í marzhefti Oðins 1910: „Um Jónas Hall- grímsson. Haft eftir Páli Melsteð.“ Verð- ur meginhluti hennar tekinn hér upp: „Nú er sá maður látinn, sem bezt mundi Jónas Hallgrímsson, en það var Páll Mel- steð sagnfræðingur [13. nóv. 1812 — 9. febr. 1910]. Ég átti oft tal við Pál, en sjaldan svo, að hann minntist ekki á Jónas; hann unni Jónasi og mat hann svo mikils, að hann taldi óþarft að leyna brestum

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.