Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 44

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 44
138 HELGAFELL leyti skynsamleg. En þaí5 er alveg víst, að Söngurinn um roðasteininn fengist ekki gef- inn úí f Ameríku. Eg man ekki betur en einu sinni kæmi til orða að banna Brúðarkjólinn eftir Kristmann Guðmundsson í Boston. Eða var það Morgunn lífsins? Albert Camus er kunnast- Nóbelsverðlaun • ur almenmngi fyrir tvær skáldsögur, L'Etranger (Ut- lendingurinn, utangarðsmaðurinn, hinn ckunni) og La Peste (Plágan. Hefir komið hér út í íslenzkri1 þýðingu Jóns Óskars skálds). Camus er ungur maður (f. 1913), og er til þess tekið, að hann skyldi hljóta Nóbels- verðlaun svo snemma (Kipling einn var yngri, þegar hann fékk verðlaunin). Samt liggur mikið eftir hann á prenti, þar á meðal þrjú eða fjögur leikrit, tvær bækur heim- spekilegs (og stjórnmálalegs) efnis: Le Mythe de Sysiphe og L'homme revolté (þjóðsagan af Sysippusi og Uppreisnarmenn), auk geysi- mikils fjölda ritgerða (þar af komu margar í hinum frægu blöðum andspyrnumanna á stríðsárunum, svo sem Combat og Revue Libre). Eg þekki ekkert til leikrita Camus og get því ekki gert mér í hugarlund, hvers konar hliðsjón hin sænska akademía kann að hafa haft af þeim. Hins vegar virðist einsætt, að heimspekileg rit hans hafi ráðið miklu um veitinguna. Hann getur varla talizt til mestu skáldsagnahöfunda, sem nú eru uppi. Skáld- sögur hans eru heimspekilegar dæmisögur og veruleiki þeirra full einhæfur og stílfærð- ur. En hann hefir haft mjög mikil áhrif á hugsunarhátt ungra manna, utan Frakklands sem innan. „Samvizku ungu kynslóðarinn- ar" í Frakklandi, kallar Francois Mauriac hann. Hér er enginn kostur að lýsa í fáum orð- um heimspeki Camus. Segja má að hún sé bölsýn og fyrirheitalítil. En einkenni hans sem rithöfundar er framar öðru óbilgjarn vilji til að glíma við hin ægilegustu vanda- mál samtímans með mannlega skynsemi eina að vopni og þor til að horfast í augu við þann möguleika, að líf mannsins kunni að vera fáránleg endileysa, án þess að glata trúnni á manninn. Eins og endranær er það ekki nema sjálf- sögð skemmtun að finna að veitingu Nóbels- verðlaunanna og stinga upp á nýjum mönn- um, sem „hiklaust beri að veita verðlaunin", eins og einhvern tíma stóð í smáblaði. (Fyrir mitt leyti get ég verið ásáttur með allar til- lögur, sem ég hefi heyrt í ár, úr því að eng- inn stakk upp á Mademoiselle Sagan.) Og vant er að sjá, hver annar kunnur rit- höfundur franskur væri betur kominn að verðlaununum en Camus, eins og er — úr því að ekki tjóir að nefna Céline (ef Céline er enn á lífi?). Céline, vel á minnzt, einhver voldugasti sagnameistari aldarinnar, er eitt skýrasta dæmi um höfund, sem lífsskoðunar vegna gæti aldrei komið til greina, þegar Nóbels- verðlaunum er úthlutað. Akademíunni hefir stundum verið brugðið um þröngsýni, en fyrr mætti vera víðsýnin, ef hún treystist til að taka hinn mikla lífs- hatara í faðm sér. Eins og mannlegt er, reynist stundum erfiðara að gera sér grein fyrir, að höfund skorti gáfu en gott hugar- far. K. K.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.