Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 40

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 40
134 HELGAFELL J. Á. ber ungum höfundum á brýn tvær ódyggðir. Annarsvegar ofmikla fágun máls og stíls, hins vegar tilhneigingu til „skrípaláta", sem orki á almenning „eins og geðveiki eða argasti prakkaraskapur". Og hvort tveggja telur hann þróast af ónóg- um kynnum af alþýðunni, „hversdagsleg- um körlum og kerlingum", hjartalagi þeirra og menningu. Við þessar niðurstöður virðist mér tvennt að athuga. I fyrsta lagi sé ég ekki betur, en að flestar þær bókmenntalegar nýungar, sem mest ber á í skáldskap ungra höfunda á Islandi, séu tilraunir með efni fremur en form (enda þótt sum ljóðskáldin hafi tekið að fara nokkuð frjálslega með stuðla og hætti og lagt þá jafnvel niður). Er ekki sagan, sem Jónas vitnar til, einmitt dæmi um þetta, sem kalla mætti efnisbylt- ingu, úr því að búið er að smíða orðið form- byltingu? I öðru lagi held ég, að hina yngri höfunda skorti yfirleitt fremur form- og stíl- fágun en að hún standi þeim fyrir þrifum. Ég hélt það færi varla milli mála, að þorra ungra höfunda brysti miklu fremur festu í skáldskapartækni sinni og kunnáttu í íþrótt sinni heldur en alþýðlega menningu og gott hjartalag. Af kunnáttuleysi stafar stundum tilgerð eins og Jónas bendir á, en tilgerð í stíl ungra höfunda á eflaust líka að nokkru rót að rekja til vaxandi íslenzkukennslu í skólum, sem er harðleikin bæði við alþýðumál og listhneigð til máls. Hvað sem veldur, vill alþýða ekki lesa hina yngri höfunda. En það eru fleiri höf- undar, sem alþýðu manna er lítið gefið um, samanber t. a. m. þessa athugasemd úr Morgunblaðinu 18. okt. s.l. úr grein eftir Ragnar Jóhannesson, gagnfræðaskólastjóra á Akranesi: „Hér, þ. e. í efsta bekk gagn- fræðadeildar, gefst tækifæri til að kenna unga fólkinu að lesa íslendingasögumar, sem varla nokkur unglingur lítur í ótilkvaddur nú orðið." Sú tortryggilega skólahugsjón að „kenna" ungu íslenzku fólki að lesa íslend- ingasögur skal liggja milli hluta. En varla fráfælast börn alþýðumanna á Akranesi eða annars staðar fornsögurnar fyrir innihalds- laust form eða „skrípalæti", þó að ýmsir furðulegir hlutir gerist þar og ein fornhetja a. m. k. hafi á tímabili gengið með hausinn undir hendinni. En að þessum upplýsingum fengnum væri fróðlegt að vita, hvort ung- lingar í gagnfræðaskólum eða félagar J. Á., sjómennimir, lesa Halldór Kiljan Laxness eins og borgarar í Reykjavík hafa löng- um gert. Ég er hræddur um, að við verð- um að þola þá vondu staðreynd, að á þess- um tímum almennrar lestrarkunnáttu er uppi hér á landi eins og annars staðar fjöldi les- andi manna, sem kærir sig ekki um bók- menntir. Glæparitin virðast seint og um síðir hafa, að sínum hætti, fyllt það skarð, sem verður í lestrarefni þjóðarinnar, þegar rím- urnar og guðsorðið falla úr fatinu, og aldrei hefi'r verið með öllu fullt síðan. Eitt af því, sem íslenzkar bókmenntir skortir er læsileg meðalmennska. En eftir á að hyggja. Skyldu sorpritin vera alveg eins slæm og af er látið? Félagar J. Á„ sjómenn á síldarskipi, voru mjög hrifnir af þeim. „Þetta væri lífið," sögðu þeir um gleðisögumar. Ég læt þá staðhæfingu ósnerta, en samt er mér ekki grunlaust um, að ýmsir þeir, sem gaman hafa af glæparit- um, eigi styttri leið yfir í lestur góðra bók- mennta og jafnvel góðra atómbókmennta heldur en þeir, sem uppgötva sjálfa sig í sögum Margitar Söderholms eða annarra þeirra hálfreyfarahöfunda, erlendra og inn-

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.