Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 32

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 32
126 HELGAFELL Jónas skynjaði náttúruna af' fágætum næmleika, og af snilli sinni gat hann seitt inntak hennar eða anda fram í kvæðum sínum til þeirrar fullnustu, að við verðum þessarar æðri skynjanar aðnjótandi, líkt og hann segir i Kveðju til Thorvaldsens: Veitti þér fulla fegurð að skoða himna höfundur, heimi veittir þú. Þetta persónulega samband eða þessi til- finningatengsl Jónasar við náttúruna virð- ast stundum nálgast algjöran samruna, þar sem sál hans verði eitt ásamt með nátt- úrunni og hann hljóti við það álíka unaðs- kennd eða hugljómun og fylgir æðstu upp- hafninu. Og þó er þessi forklárun Jónasar gjörsneydd allri dulrænu, að minnsta kosti eins og hún birtist okkur, allt ljóst, heið- ríkt, einfalt, barnslegt. En þessi nána sam- kennd eða samvitund við náttúruna birt- ist m. a. á hrífandi hátt ’í Hulduljóðum og í sálminum A sumardagsmorguninn jyrsta Í8Jj2: Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá . . . Við skaparann: Vorblómin, sem þú vekur öll vonfögur nú um dali og fjöll og hafblá alda og himinskin hafa mig lengi átt að vin. Faðir lífsins vakti þau, — þau vöktu ljóð Jónasar.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.