Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 17

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 17
STEINGRÍMUR J. ÞORSTEINSSON: Hvernig urðu Ijóð Jónasar tilf i Þegar hálf önnur öld er nú liðin frá fæð- ingu Jónasar Hallgrímssonar, er margs að minnast og margt að þakka og það þá ekki sízt, hvernig hann kenndi mönnum að skynja náttúru landsins á nýjan hátt, lauk upp augum þeirra fyrir nýju Tslandi, fögru og yndislegu sumarlandi, farsælda-fróni, — og hvernig hann lauk upp hlustum manna fyrir kliðmýkra og fegurra máli en þeir höfðu áður heyrt. Þessi maður, sem hefur svo mjög glætt og ræktað fegurðarskyn íslendinga og veitt okkur svo grómlausan og ríkulegan unað með kvæðum sínum, náði þó ekki 38 ára aldri, virðist aldrei hafa talið skáldskapinn aðalköllun sína í lífinu og féll svo frá, að engin kvæðabók var til frá hans hendi, — þótt mikið af kvæðum hans birtist að vísu, meðan hann var lífs, aðallega í Fjölni. En þegar ljóð- mæli hans komu loks út, fyrir réttum 110 árum, fylltu þau aðeins litla bók. Fáir hafa eftirminnilegar sýnt og sannað þann mun, sem verið getur á magni og gildi. En hvernig urðu kvæði Jónasar til, eða, eins og unglingur einn spurði mig á dög- unum: ITvernig fór Jónas að því að yrkja? Ljóð hans eiga sem sé svo greiðan að- gang að hugmn unglinga og jafnvel barna, að þau geta vakið hjá þeim sömu undran og sams konar forvitni og hjá íulltíða mönnum og fræðilega sinnuðum. En því miður verður þessari spurningu ekki svar- að nema á mjög ófullkominn hátt. Við get- um ekki séð inn í hugskot skáldsins, meðan það orti, taum ekki skynjað sjálfa leyndar- dóma sköpunarstarfsins, þó að við njótum töfra hins skapaða verks. Við getum stund- um vitað um tildrög og ytri aðstæður, hve- nær og á hve löngum tíma verkið var samið. Víst er sú vitneskja heldur fátækleg ein saman, en getur a. m. k. orðið til að seðja sárustu íorvitni okkar í þessum efnum og stundum verið nokkur leiðarvísan til að skilja listamanninn betur og njóta verka hans á fvllra hátt. Hér verða tekin saman nokkur dæmi af þessu úr kveðskaparsögu Jónasar og við þau stuðzt til að skvggnast Htið eitt. um skáldheima hans, þótt. þær svipmyndir verði að vonum brotakenndar og öllu fremur af ytra borði en innra. Það er alkunna, að ýmsir þeir, er semja eða yrkja sem ljósast og ljúflegast, hafa legið þeim mun lengur yfir því sem les- anda virðist það allt eðlilegra og erfiðis- minna. Nú er það raunar svo, að fleira í kveðskap Jónasar en menn ætla að lítt hugsuðu máli er tvírætt eða torskýrt, þótt vissulega teljist það til undantekninga hjá hinu, sem einfalt er og auðskilið. Elzta námsvottorð Jónasar, frá því er hann var tæpra 13 ára, bendir og sízt til, að hann hafi verið fljótur að koma orðum að hugs- un sinni. Honum hafði þá, að beiðni móð- ur hans, verið komið fyrir vetrarhluta hjá séra Jóni lærða Jónssyni á Möðrufelli í Eyjafirði, sem átti að kanna, hvort hann

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.