Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 28

Nýtt Helgafell - 01.11.1957, Blaðsíða 28
122 HELGAFELL Unaður sumarsins, náttúrunautnin veitir Jónasi hér álíka lífsfyllingu og styrk og trúartraustið Hallgrími Péturssyni, sem lýkur á svipaðan liátt og Jónas sumar- sálmi sínum greftrunarsálminum Allt eins og blómstrið eina, þar sem hann segir við dauðann: „Kom þú sæll, þá þú vilt.“ Og getur ekki verið, að í samruna skáldlegrar upphafningar og óspilltrar barnsskynjunar, sem Jónasi öðlaðist að varðveita, birtist dýpsta vizka — og í samvitund Jónasar við náttúruna séu fólgin hreinustu trúarbrögð? En hjá Jónasi hafði það hér verið skil- orðsbundið að geta gengið glaður til drott- ins hið dimma fet (og takið eftir, að það sem er náttúruskáldinu erfitt spor, þungt skref, heitir á þess máli „hið dimma fet“), og skilyrðið var: að mega una sér enn eitt sumar við náttúruna. Og þessi síðasta sumarbæn hans á Islandi var heyrð. Hann fékk að dveljast hér til hausts. VII Eftir rúmlega þriggja ára Islandsdvöl bjó Jónas nú síðasta hálft þriðja ár æv- innar aftur í Danmörku. Þar yrkir hann margt og vel, þó varla eins mikið og hann hafði gert heima. Meginhluti yrkisefnanna er sprottinn upp af endurminningum frá íslandi, ferðaminningar að heiman, mynd- ir af íslenzkri náttúru (Dcilvísa, Vorvísa) eða íslenzku þjóðlífi (Sláttuvísa, For- mannsvísur), tregablandin heimþrá (Eg bið að lieilsa) og fornar, ljúfsárar ásta- minningar (Ferðalok (?) — Enginn grœtur Islending, sem ort er á einu skammdegis- dægri, 21. des. 1844). Þarna bjó Jónas tæpt ár (1843—44) í boði vinar síns Japetuss náttúrufræðings Steenstrups við Akademíuna í Sórey á Sjá- landi og leið þar einstaklega vel, umgekkst menntaða gáfumenn, ýmsa skáldgefna, lifði algeru reglulífi, sem mjög vildi á bresta, bæði fyrr og síðar, og er þetta eitthvert bezta skeið ævi hans, bæði líkamlega og andlega, enda orti hann þar tiltölulega mest, og bezt, og er meiri hýra og birta yfir skáldskap hans frá þessum tíma en næst á undan og einkum á eftir. Þá gleði, sem lífið rétti hér að honum, endurgalt hann því ríkulega. En hann yrkir þarna ekki um danska beykiskóga og næturgalaklið, heldur um smáragrundina heima og vinda, bárur og fugla, sem þangað stefna, — kvæði eins og Fíjilbrekka, gróin grund og Nú andar suðrið sœla. Jónas dvaldist upp undir áratug af manndómsaldri sínum í Danmörku, og þótt stundum væri hann þar miður sín og haldinn þunglyndi, ekki síður en heima á Islandi, hefur hann því aðeins ílenzt þar, að hann hefur metið menntun þá og menn- ingu, sem þar var að fá og njóta, og blíða og þýða landsins hljóta að hafa verið Jónasi hugljúf, svo næmur sem liann var á þau náttúrueinkenni. Þeim mun athyglis- verðara er, að í öllum kveðskap hans skuli ekki finnast nema hálf vísa, þar sem ör- ugglega er lýst danskri náttúru, og er það miklu eldra en hér er komið sögu, eða frá fyrri Hafnarárum Jónasar (1839), í kvæð- inu Nú er vetur úr bœ („Kveðju Islendinga til séra Þorgeirs Guðmundssonar“, er hann var nýorðinn prestur til Glólundar á Lá- landi). En það er líka fallegt: Þegar lauf skrýðir björk, þegar Ijósgul um mörk rennur lifandi kornstanga móða,-------- — takið eftir myndinni af akrinum, þar sem kornöxin bærast í blænum, svo að öll breiðan verður sem bylgjandi árstraumur, ljósgulur ölduflaumur, lifandi fljót: Þegar lauf skrýðir björk, þegar ljósgul um mörk rennur lifandi kornstanga móða, þá mun farið af stað, þá mun þeyst heim í hlað til hans Þorgeirs í lundinum góða. Ekki hefði sízt mátt búast við dönskum unaðsmyndum frá velsældardvölinni í Sór- ey. En því er sem sagt ekki að heilsa.

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.