Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 8
miðvikudagur 11. september 20078 Fréttir DV xxxxxxx Kolbeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Mikið Mannfall en ekkert öryggi Bandaríkjamenn standa enn frammi fyrir hættunni á hryðju- verkaárásum, sex árum eftir hryðjuverkaárásirnar í New York og Washington 11. septemb- er 2001. Þrátt fyrir stórhertar að- gerðir gegn hryðjuverkaógninni og innrás í tvö ríki segja yfirmenn bandarískra leyniþjónustu- og löggæslustofnana að hættan sé enn fyrir hendi. Þeir segja að nú sé þó meira gert en áður til að koma í veg fyrir árásir. Fjórir yfirmenn leyniþjónustu- og löggæslustofnana komu fyrir þingnefnd Bandaríkjaþings í gær til að svara spurningum um við- búnað við hryðjuverkaógn. „Við erum öruggari nú en við vorum 11. september 2001,“ sagði John Scott Redd, fyrrver- andi aðmíráll sem st�rir �ryðju- verkavarnamiðstöð Bandaríkj- anna. �ann sagði samt langt í frá að Bandaríkjamenn gætu talið sig örugga. „Við erum samt ekki ör- ugg. Og við verðum ekki örugg fyrr en n� kynslóð er vaxin úr grasi, og kannski fleiri.“ N�tt myndband með ávarpi Osama bin Laden, sem s�nt var á dögunum, færði heim sanninn um að enn er langt í land. þruma úr heiðskíru lofti 11. september árið 2001 í New York, hófst eins og hver annar dagur. Borgarbúar sinntu sínu, skutluðu börnum á leikskóla eða í skóla áður en haldið var til vinnu. �iminn var heiður og blár og gaf fyrirheit um góðan dag. Ekkert gaf vísbendingar um þær hörmung- ar sem áttu eftir að dynja á New York-búum og bandarísku samfé- lagi. En það átti eftir að breytast. Í vændum voru atburðir sem skóku Bandaríkin og heimsbyggðina alla og breyttu heimsmyndinni um ókomna tíð. Stundarfjórðung í níu að stað- artíma var farþegaflugvél flog- ið inn í norðurturn World Trade Center. Það var flug 11 frá Boston og lenti vélin á hæðunum á milli nítugustu og fimmtu og hundr- uðustu og þriðju. Fólk á jörðu niðri horfði skelfingu lostið á þeg- ar eldtungurnar teygðu sig út um glugga og hið gapandi sár sem vélin skildi eftir sig og fyrr en varði vék hinn blái himinn fyrir svörtu reykjarkófi. Flestir gerðu sér ef- laust í hugarlund að um hræðilegt óhapp hefði verið að ræða, en ef einhvern grunaði annað yrði sá grunur staðfestur innan skamms. suðurturninn Á sama tíma og fólk lifði og dó í norðurturninum var þess skammt að bíða að suðurturn- inn hlyti sömu örlög. Fjöldi fólks sem statt var í suðurturninum hafði orðið vitni að hamförunum og var þá þegar á leið út, en rétt rúmum stundarfjórðungi eftir að flug ellefu frá Boston lenti í norð- urturninum var flugvél flogið inn í suðurturninn. Sprengingin var svo öflug að eldtungurnar stóðu út um hina hlið byggingarinnar. Það var orðið deginum ljósara að þarna var ekki um óhöpp að ræða og hundruð slökkviliðsmanna og lögregluþjóna voru þegar mætt á staðinn og tvíburaturnarnir voru eins og tveir risakyndlar sem bar við himin New York-borgar. En ekki lengi. Dauðadæmt fólk Fjórtán manns lifðu af í suður- turninum þrátt fyrir að vera stað- sett í grennd við árekstrarstaðinn. Engin áhöld eru um að fólk sem var á hæðunum fyrir ofan þann stað var flestallt dauðadæmt, en vitað er um fjóra sem lifðu af í suðurturninum. Í norðurturnin- um létust allir á hæðunum þar sem áreksturinn varð og þar fyr- ir ofan. Eldar lokuðu leiðum nið- ur og eina leiðin var upp. Og þar var enga björg að finna. Á með- an fólk á neðri hæðunum hraðaði sér skelfingu lostið niður neyðar- útganga í von um björgun og þeir lánsömu stauluðust út úr bygg- ingunum út í grámann, sótið og ringulreiðina, voru aðrir sem kusu að stökkva út um glugga frekar en verða eldinum að bráð. Talið er að að minnsta kosti tvö hundruð manns hafi valið þann kost. burðarvirkið bregst Tvíburaturnarnir voru hann- aðir til að þola árekstur flugvéla. Í miðju turnanna var sérstaklega styrkt burðarvirki, en það voru ekki venjulegir eldar sem geisuðu þar. Eldurinn nærðist á níutíu og eitt þúsund lítrum af flugvélabens- íni og hitastigið var átta hundruð gráður. �itinn nægði til að bræða stálvirkið sem hélt uppi hæðun- um. Og þegar burðarvirki einn- ar hæðar brast hrundi hún niður á næstu hæð og svo koll af kolli. Suðurturninn hrundi til grunna tæpum klukkutíma eftir að árásin var gerð á hann. Og um hálftíma síðar hrundi norðurturninn. Braki og gleri rigndi yfir fólk á jörðu niðri og mörg hundruð björgunarmenn, lögregluþjónar og fl�jandi fólk grófst undir rúst- unum. Rykmökkur huldi borgina; Tvíburarnir voru fallnir. þúsunda saknað Talið er að á milli sextán þús- und og átján þúsund borgarar hafi verið í turnunum þegar árás- irnar voru gerðar. Af þeim sem voru í eða við turnana þegar þeir hrundu komust einungis tuttugu lífs af. Tölur um mannfall voru á reiki en opinberlega var um fimm þúsund manns saknað. Á fyrsta sólarhringnum fundust fimm manns á lífi, en útlitið var ekki gott því umfang hamfaranna og stærð turnanna voru slík að ólík- legt þótti að fólk hefði lifað slíkt af. Staðfestar tölur segja að tvö þús- und sex hundruð og þrír hafi látið Gífurleg eyðilegging eldhnöttur myndaðist þegar seinni flugvélin flaug á syðri turninn. Bandaríkjamenn vöknuðu við vondan draum að morgni 11. sept- ember 2001. Öfgamenn úr röðum al-Kaída höfðu rænt fjórum far- þegaflugvélum í innanlandsflugi með það fyrir augum að fremja stórkostleg hryðjuverk á bandarískri grundu. Skotmörkin voru Tvíburaturnarnir í New York, höfuðstöðvar bandaríska varnar- málaráðuneytisins í Pentagon í Virginíufylki og óskilgreint skot- mark í Washington, sennilega Hvíta húsið eða þinghúsið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.