Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2007, Qupperneq 27
„Við lukum nýlega tökum á hrekkjunum og þetta er allt að verða klárt,“ segir yfirhrekkja- lómurinn Auðunn Blöndal sem er umsjónar- maður skemmtiþáttarins Tekinn. Þættirnir, sem eru byggðir á erlendri fyrirmynd, náðu miklum vinsældum í fyrra þar sem stjörnur á borð við Bubba og stelpurnar í Nylon vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Enginn frægur óhultur „Að þessu sinni verða sýndir tveir hrekkir í hverjum þætti,“ segir Auðunn um uppbyggingu annarrar þáttaraðarinnar af Tekinn sem hefur hlotið nafnið Tekinn 2. „Fyrir vikið verða þætt- irnir mun þéttari og skemmtilegri. Þá þurfum við ekki að vera að teygja lopann með einum hrekk.“ Líkt og í síðustu þáttaröð eru það frægir og þjóðþekktir Íslendingar sem verða fyrir barð- inu á hrekkjum Auðuns. „Í fyrsta þættinum eru Jói Fel og Laddi teknir,“ en fjölmargir aðrir verða teknir í þáttunum. „Aðrir sem verða tekn- ir að þessu sinni eru meðal annars Ragnhild- ur Steinunn og Þorgrímur Þráinsson, Valtýr Björn og Hermann Hreiðarsson fótboltakappi, Bryndís Ásmundsdóttir leikkona og færeyski folinn Jógvan, Jóhanna Guðrún barnastjarna og Ásgeir Kolbeins, Birgitta Haukdal og Geir Ólafs og svo fleiri,“ en það er ljóst að enginn er óhultur fyrir hrekkjum Auðuns. Setti upp heilt brúðkaup Auðunn segir að einn af skemmtilegri hrekkjunum að þessu sinni hafi verið á Geir Ólafs söngvara. „Við settum upp heilt brúð- kaup þegar við tókum Geir Ólafs. Egils reddaði okkur áfengi í veisluna og svo fékk ég 80 manns til að mæta í sínu fínasta pússi,“ en allir í brúð- kaupinu nema Geir vissu að um hrekk var að ræða. „Við getum leyft okkur aðeins meira í hrekkjunum núna þar sem fjármagnið fyr- ir þáttinn er meira og það gerir þetta bara skemmtilegra fyrir vikið.“ Gerð þáttanna er þó enginn dans á rósum og fylgir henni mikið stress. „Það þarf allt að vera fullkomið svo þetta gangi upp og maður er oftar en ekki á nálum. Svo kemur það fyrir að hrekkirnir mistakist,“ en einn af þeim tólf þáttum sem verða sýndir að þessu sinni verður með mistökum og öðru skemmtilegu efni sem náðist við tökur. Skrifar nýja grínþætti Auk þess að vera að ljúka við gerð þáttanna er Auðunn um þessar mundir að skrifa nýja grínþætti ásamt Sverri Þór Sverrissyni og Sig- urjóni Kjartanssyni. „Skrifin ganga vel og ég fer að hella mér í þau á fullu,“ segir Auðunn en málið er enn á byrjunarstigi. „Það er ekki kom- ið nafn á þáttinn eða endanleg mynd en það er alltaf skemmtilegt að gera eitthvað nýtt,“ segir Auðunn að lokum. asgeir@dv.is Lagið In My Place með íslenska tónlistarmanninum BMV, eða Brynjari Má, situr nú í fyrsta sæti á topp 20 lista útvarpsstöðvarinnar Radio 1 Serres í Grikklandi: BMV KOMINN Í FYRSTA SÆTI Í GRIKKLANDI Fyrir rúmum tveimur vikum greindi DV frá því að tónlistarmað- urinn Brynjar Már Valdimarsson, eða BMV eins og hann kallar sig sem tónlistarmann, væri að gera gríð- arlega góða hluti í Grikklandi en þá var lagið hans In My Place í fimmta sæti á vinsældalista einnar heitustu útvarpsstöðvarinnar þar í landi. Nú er hins vegar svo komið að lagið hef- ur náð upp á topp listans og er In My Place komið í fyrsta sæti af tut- tugu lögum. Vinsældalistinn sem um ræðir er topp 20 listi útvarps- stöðvarinnar Radio 1 Serres. Þegar Brynjar var spurður að því hvern- ig lag eftir íslenskan tónlistarmann kæmist inn á vinsældalista í Grikk- landi svaraði hann að lagið hefði verið á sérstökum safndiski sem sendur er á útvarpsstöðvar um heim allan en á diskunum eru einung- is sérvalin lög sem kynnt eru líkleg til vinsælda. Brynjar hefur undan- farið verið að vinna að tónlist sinni með ekki ómerkari manni en upp- tökustjóranum Ken Louis sem hef- ur stjórnað upptökum fyrir meðal annars Usher og Kanye West. Nýlega kom út smáskífa frá kappanum sem ber heitið Forget About Me og nú er stóra spurningin hvort þetta sjóð- heita nýja lag nái jafnmiklum vin- sældum og In My Place. Áhugasöm- um er bent á heimasíðu söngvarans myspace.com/bmvofficial þar sem heyra má nokkur lög og lesa nýjustu fréttirnar af BMV. krista@dv.is xxxxxx. Tekinn með Auðuni Blön- dal hefur göngu sína á ný á föstudaginn. Að þessu sinni verða tveir hrekkir í hverjum þætti.tti ÞRIÐJUDAGUR 11. septembeR 2007DV Bíó 27 BMV gerir það gott í Grikklandi með laginu In my place. Nafn á Indiana Jones 4 Nafnið á fjórðu myndina um ævintýramanninn Indiana �ones er loksins komið á hreint. Mynd- in sem er væntanleg í lok maí á næsta ári mun heita Indiana �ones and the Kingdom of the Crystal Skull. Það var ungstirnið Shia LaBeouf sem tilkynnti nafn- ið á MTV Video Music Awards á sunnudaginn en hann leikur í myndinni ásamt Harrison Ford, Cate Blanchett, Ray Winston, �ohn Hurt, Karen Allen og �im Broadbent. Justice Leauge 2009 Hávær orðrómur vestanhafs segir að kvikmyndarisinn Warner Bros hafi samþykkt að �ustice League verði aðalmynd fyrirtækisins sumarið 2009. �ustice League er hópur alls 11 ofurhetja þar sem hetjur eins og Superman, Batman Wonder Woman og Flash eru fremstar í flokki. Tökur á mynd- inni munu fara fram í Sydney í Ástralíu og standa yfir frá febrúar til júní á næsta ári. Spurningunni um hvort myndin verði í CG- motion eins og getgátur höfðu verið uppi um hefur ekki verið svarað. CG er tölvuteiknuð mynd sem er ótrúlega raunveruleg líkt og myndin Polar Express. Vann Gullljónið Leikstjórinn Ang Lee hreppti Gullljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Þetta er því ann- að skiptið á þremur árum sem Lee hreppir gripinn. 2005 fékk hann verðlaunin fyrir Brokeback Mountain en í þetta skiptið fyrir myndina Lust, Caution. Verðlaun- in komu fjölmiðlum á staðnum nokkuð á óvart þar sem þau töldu myndina ekki einu sinni keppi- naut til minni verðlauna hátíðar- innar. HELMINGI FLEIRI TEKNIR Tekinn Þorgrímur Þráinsson er einn þeirra sem lendir í barðinu á Audda. Hrekkjumálaráðherra Auðunn blöndal er líka að skirfa handrit af grínþætti um þessar mundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.