Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 5
Heimsókn aö Gljúfrasteini:
Við sköpun listaverka er tíminn frumskilyrði
— segir Halldór Kiljan Laxness
Þegar útgáfa þessa rits var fast-
mælum bundin vorum við sem að
því stöndum þegar ráðnir í einum
hlut: við skyldum freista þess að ná
fundi Halldórs Kiljans Laxness og
hefja ritið á viðtali við hann ef kost-
ur gæfist. Skáldið tók þessari mála-
leitan af einstakri vinsemd, og einn
sólskininn maídag ókum við sem leið
liggur upp í Mosfellssveit á vit skálds-
ins að Gljúfrasteini. En sem við fór-
um þarna í kolgráum rykmekki þjóð-
vegarins vék sér að okkur ein óþyrmi-
leg spurning og varð ekki vísað á bug:
Var þetta ekki furðuleg bíræfni, nán-
ast ósvífni, að ætla sér að fara að
angra nóbelsskáldið með fáráðu
spurningafjasi? Myndi okkur ekki
vefjast tunga um höfuð að afsaka
slíkt framferði? Ætli endalykt þessa
ferðalags yrði ekki bezt lýst með orð-
um annars skálds: Og það voru hljóð-
ir og hógværir menn, sem héldu til
Reykjavíkur?
Síðan var komið í hlað að Gljúfra-
steini og ekkert tóm lengur til hug-
renninga sem þessara.
— Svo að þið ætlið að fara að gefa
út tímarit, segir Laxness og hefur
leitt okkur til sætis í vinnustofu
sinni. Hvers konar rit á það að verða?
Tímarit um bókmenntir og menn-
ingarmál, jahá. Stundum koma menn
til mín út af svona ritum; því miður
get ég alltof lítið gert fyrir þá. Ég vil
umfram allt taka fram strax, að ég
sit hér ekki i fullu pakkhúsi af spak-
mælum til að miðla eftir þörfum. Ég
segi oft við blaðamenn: Talið við mig
um einfalda hluti, spyrjið hvaða teg-
und af bleki ég noti, eða hvaða núm-
er af skyrtum. Það þýðir ekki að
spyrja mig um hinztu rök hlutanna
eins og ég væri einhver Sókrates.
Hvað get ég gert fyrir ykkur?
o o o
Við víkjum að því sem er okkur
efst í liuga, hinu nýja verki skálds-
ins: Er Brekkukotsannáll sjálfstætt
verk? Eða er það upphaf að sagna-
bálki eins og sumir menn vilja vera
láta?
— Því er fljótsvarað, að Brekku-
kotsannáll er alveg lokað verk og
gefur ekkert tilefni til framhalds.
Sagan bítur í sporð sér. Álfgrímur er
umgerð um söguna, eða öllu heldur
sá spegill sem tekur við mynd um-
hverfisins. Hann er upphafið að Garð-
DAGSKRÁ
3