Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 47
VIÐ VEGPRESTINN
Hlátur fólks og Tjörnin
í Reykjavík
Þeir, sem auglýsa gamanbókmenntir,
hafa g-jarna orð á því, aS hláturinn
lengi lífiff. En hafiff þið tekiff eftir þvi,
hvaff hlátur fólks er margbreytilegur? Ég
þekki mann í Hornafirði, sem hlær svo
stórkostlega, aff þaff er eins og Eystra-
Horn og Öræfajökull séu aff samhringja,
þegar hann skellir upp úr.
Stundum hef ég komiff á vinnustaði,
þar sem ríkir sérstök tegund af hlátri.
Allir hlæja eins. Kannske hlæja fimm
persónur samhljóma hlátri. Þannig var
hlátur vinnukvenna á einu hótell
hér í bænum. Þær hlustuffu alltaf á
Keflavikurútvarpiff og þvoffu upp disk-
ana. Allt rann saman í einn tón hlát-
ur þeirra, diskaglamriff og djassinn.
Þegar krían flytur í hólmann, kemur
fram sérstakur hlátur viff Tjörnina i
Reykjavik.
Þau ganga þama saman sæl og prúff.
Nýir og nýir árgangar. Ég hef séff mörg
þeirra og hlustaff á hlátur þeirra vor eftir
vor. Annaff talar í einu, og á eftir hlæja
bæði. Öll hlæja þau. Og þau hlæja öll
eins.
Þetta er hlátur ástarinnar. Þau vita
ekkl, af hverju þau hlæja, en hlæja samt.
Þegar húm ágústnóttanna færist yfir
bæinn, hljóffnar hlátur ástarinnar viff
Tjörnina í Reykjavík.
Næsta vor hittum viff þau kannske
akandi barnavagni inni viff Sundlaugar
effa vestur í Skjólum. Og þá hlær nýtt
fólk hlátri ástarinnar viff Tjömina i
Reykjavík.
Lítiö eitt um söfn
íslendingar minnast þess stundum meff
nokkru stolti, aff hérlendis séu flestir læs-
ir, sem á annaff borð hafa af náttúmnni
hlotið þær gáfur að geta öðlazt lestrar-
kunnáttu.
Til kennslumála er á fjárlögum þessa
árs veitt samtals nærri 107 milljónum
króna.
Til Landsbókasafnsins er veitt 1.117 þús-
undum króna, og til Þjóðskjalasafns er
veitt 463 þúsundum króna.
Nú er allra góðra gjalda vert að eiga
góða skóla og sómi hverrar þjóðar, aff
almenningur sé sem bezt menntur. Að
dómi fróðustu manna skortir þó mjög á,
aff til séu á íslandi nægilega margir effa
stórir skólar. En hversu góffur sem hver
skóli er, getur hann aldrei jafnazt á viff
gott safn. Þaff er engin menntastofnun í
heiminum þvílík sem gott safn. Þaff er
helgur staffur, þar sem fróffleiksfúst fólk
getur öðiazt meiri menntun en á ævi-
Iangri skólasetu.
Þaff er nokkurt gap í skólamálum ís-
lendinga, hversu Iítt er lögff á það á-
herzla, að nemendur kunni aff nota söfn.
Er og sannast, aff flest skólasöfn
Iandsins nema Háskólabókasafniff njóta
ónógrar umhirðu. En þótt Iláskólabóka-
safniff sé vegna hins fágæta og ágæta
bókasafns Benedikts S. Þórarinssonar hiff
eina skólasafn á íslandi sem ekki kafnar
undir nafni sínu, er þaff engan veginn
nægilega búiff, og flestir stúdentar, t. d. f
íslenzkum fræðum, verffa í námi sínu aff
nota Landsbókasafn og Þjóffskjalasafn aff
meira og minna leyti.
dagskrá
45