Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 42
Gísli sem Galdra-Loftur í samnefndu leikriti
Jóhanns Sigurfónssonar.
— Þessu er nú sízt betra að svara.
Þó vil ég segja það, að leikstjórinn á
hverju sinni meiri þátt í túlkun hvers
leikara og sýningunum í heild en
nokkur ókunnugur getur látið sér
detta í hug. Þetta á sérstaklega við
um þau leikrit, sem standa manni
lokuð til þess að byrja með. Ég skal
segja þér sem dæmi hlutverkið, sem
ég hafði í Lykli að leyndarmáli. Ég
fann, að þessi strákur, sem ég lék, átti
að vera einhvern veginn hálfvitlaus.
Og þó átti þetta að vera allt þannig
normalt á yfirborðinu, að engan grun-
aði neitt. Og þarna gekk ég fram og
aftur um sviðið og fann aldrei tóninn
í þessu. Svona gekk dálítið lengi. Svo
segir Gunnar Hansen við mig: —
Heyrðu, Gísli, ég held, að þessi maður
sé á því stigi, sem strákar eru stund-
um, þegar þeir hafa gaman af að reyta
vængi af flugum.
Og þetta einhvern veginn opnaði
fyrir mér persónu þessa manns. Ég sá
hann alveg. Það þurfti ekki annað en
þetta. Ég held, að þetta hafi alveg
verið sá rétti tónn í þessu hlutverki,
sem Gunnar gaf mér þarna. í þessu
sambandi vil ég líka nota tækifærið
og segja það, að ég á Gunnari meira
að þakka en nokkrum öðrum manni
minn leikferil. Hann lét jafnan svo
lítið að leiðbeina mér, hversu lítið
hlutverk, sem ég hafði til að byrja
með, og síðar hefur hann fengið mér
önnur stærri.
Að gefa.
Hvað vildirðu segja af reynslu þinni
sem leikstjóra?
— Ég get nú lítið sagt af því. Ég
hef unnið með mjög mörgum góðum
leikurum. Og ég veit svona nokkurn
veginn, hvernig þeim er innanbrjósts,
þegar þeir eru búnir að læra rullur
sínar og koma upp á sviðið. Svo
standa leikararnir þarna uppi á fjöl-
unum. Þeir þekkja orðið persónuna.
Þeir finna til, og þeir vita, livað þeir
vilja túlka. En samt er oft utan um
þá einhver skel. Þeir hleypa ekki út
því, sem býr inni fyrir. Það, sem leik-
stjórinn þarf að gera, er að hjálpa
fólkinu að brjóta þessa skel. Það þarf
að fá fólkið til að gefa það, sem býr
fyrir innan. Brjóta skelina, fá leikar-
ann til þess að gefa áhorfandanum
eitthvað af hjartablóði sínu.
Menn eru daprír á eftir.
Uppfærsla þín á Browningþýðing-
unni vakti athygli margra. Myndirðu
vilja segja eitthvað um þá sýningu?
40
DAGSKRÁ