Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 69
sotti á hann að skrifa. Og hann hlýddi kall-
inu.
Fjórar sögurnar í bókinni Allra veðra von
fjalla um sjómenn og sjómannalíf. Með skörp-
um og þróttmiklum stíl tekst honum á þess-
um fáu síðum að draga upp myndir úr heimi
sjomannsins, sem vekja áhuga lesandans. Þeg-
ar honum tekst bezt, er sjávarniður í orðum
hans og saltur þefur í lýsingum hans af fang-
brögðum manna og skipa við úthafssjó og
miskunnarlausar höfuðskepnur. Það kann að
vera að stundum bregði fyrir dálitlum ýkj-
um í frásögu hans, en ýkjurnar verða ein-
ungis til þess að festa myndina þeim mun
betur í huga lesandans. Ég kann vel þessum
ljósa karlmannlega frásagnarhætti, sem ein-
kennir sögurnar í bókinni, og dáist að höf-
undi fyrir það, hve persónur hans flestar —
°g allar, sem hann Ieggur sérstaka áherzlu á,
— verða lifandi og manneskjulegar, þótt hann
bregði aldrei fyrir sig sálfræðilegum Ianghund-
um og öðru leiðinlegu grufli, sem venjulega
verður ekki til annars en að rugla Iesandann
i nminu cg eyðileggja mannlýsinguna.
Tvær sögur bókarinnar, Svarti sauðurinn og
Hlið himinsins, eru ósamrættar hinum fjórum,
utan það að báðar bera stíleinkenni höfundar
sms, svo sem mér virðist þau vera á sjó-
mannasögunum. Svarti sauðurinn er fyrst og
fremst mannlýsing, en sú saga orkaði minnst
a mig allra sagnanna, enda hef ég ekki haft
spurnir af svo grallaralegum presti sem séra
Jörundi siðan Grím prest Bessason leið —
°g bað er nú fyrir minni margra kynslóða,
að sú höfuðskepna féll í valinn. Og þó þykir
mér það full áberandi anakrónismi — úr því
að hann getur ártals í sögunni, — að láta
klerk stunda heimabrugg með þeim tækjum,
sem lítt eða ekki voru notuð hér á Iandi
fyrr en um 1920 og þar á eftir Þá er einn-
■g óþarfa staðvilla að láta prestinn ríða á
einum degi — einum hesti — frá Aust-
fjörðum til Eyrarbakka, og finnst manni sem
þar sé afturgengin sagan af þeysireið Áma
lögmanns Oddsonar — með variasjónum.
Hlið himinsins hefur þá sérstöðu meðal
sagnanna, að hún er hrein táknmynd, þar
sem Drottinn og Gabríel erkiengill eru aðal-
persónur og sögusviðið ekki minna en öll sól-
kerfi veraldar, þótt höfundur beini loks kast-
ljosi sínu að þeirri plánetu, sem hefur eitt
dagskrá
tungl í eftirdragi og byggð er hinu tvífætta
dýri homo sapiens.
Þetta er veraldarsaga í vestisvasaútgáfu og
hugleiðing um mannskepnuna og þá ábyrgð,
sem hún sjálf ber á sjálfri sér. Maðurinn hef-
ur það á valdi sínu, hvort hann sprengir upp
sína plánetu eða gerir það ekki. „Drottinn
þinn gefur líf og tekur, en hróflar ekki við
frjálsri rás Iífsins." Vel gerð saga.
Bók Jóhannesar Helga er prýðilega úr garði
gerð hið ytra, enda myndskreytt af kunnum
listamanni, og er það nokkurt nýmæli um fyrstu
bók ungs höfundar. Ég minnist engrar prent-
villu í bókinni og man í svip ekki eftir ann-
arri málvillu en þeirri, að hel er notað í hvor-
ugkyni á næst öftustu síðu, — og mátti því
ekki tæpara standa.
Ingvar Gíslason.
Vegurinn norður
Indriði G. Þorsteinsson: Þeir sem guð-
irnir elska. Stuttar sögur. Iðunn, Reykja-
vík 1957.
Fyrir fáum árum varð það tíðinda, að ó-
kunnur, ungur maður sigraði í smásagnasam-
keppni tímarits eins hér í Reykjavík. Þetta
hefði þó ekki sætt miklum tíðindum, ef ekki
hefði viljað svo til, að ýmsir, sem vel voru að
sér í íslenzku máli, setningafræði og siðfræðl
fundu sig til knúða að grípa til pennans
og ritdæma sögu þessa, sem raunar var ekki
með öllu eftir þeirri forskrift, sem skólar vorir
gefa nemendum sínum.
Það lán hefur síðan fylgt höfundi þessarar
sögu, að ritsmíðar hans hafa jafnan vakið
athygli. Og nú er nýlega komin út þriðja bók
hans, Þeir sem guðirnir elska, tíu stuttar sög-
ur.
Mál og stíll þessara sagna, tónn þeirra, er
í öllum meginatriðum hinn sami og sá, sem
einkennt hefur höfundinn frá því fyrsta sagan
hans birtist. Þó hefur nokkur breyting á orð-
ið.
Af efni sagnanna er það augljóst, að höf-
undurinn hefur upp á síðkastið gert víðreist
til suðurs, austurs og vesturs, og gerast þrjár
þeirra erlendis. Þrátt fyrir ferðalögin er þó
höfundurinn eftir sem áður norðlenzkur mað-
ur fyrst cg fremst, og það er alltaf vegurinn
norður með sínum bugðum og beygjum, hæð-
67