Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 44
Gísli sem Willy Pentridge og Auróra. Hall-
dórsdóttir sem Marta Pentridge i Systur Mariu
eftir Charlotte Hastings.
um, en þó finnast mér áhorfendur úti
á landi sums staðar ennþá elskulegri.
Það er einhvern veginn léttara að
komast að hjarta þeirra. Fólkið er svo
óspillt og hreint í sér. Hugsa sér til
dæmis staði eins og ísafjörð, Sauðár-
krók eða Húsavík. Það er óviðjafnan-
legt að sýna drama á þessum stöðum.
Þarna hefur lengi verið leikið, og
fólkið veit vel, hvað leiklist er. Og það
er líka gott fyrir leikarana að fara svið
af sviði. Þegar alltaf er leikið á sama
sviði, vill maður festast í leik. Maður
gengur alltaf jafnmörg skref og segir
sömu setninguna við sömu hreyfing-
una kvöld eftir kvöld. En þegar allt-
af er verið á nýju sviði, stóru í gær og
litlu í kvöld, þá fer maður ósjálfrátt
að gefa meira af sjálfum sér, gera ó-
vænta hluti, sem sviðið laðar fram,
fer að leika betur og frumlegar.
Að vinna.
Hvað myndir þú telja nauðsynleg-
ast til eflingar íslenzkri leiklist nú?
— Og blessaður vertu, ég lúri ekki
á neinum spakmælum. En unga fólk-
ið þarf að fá að vinna. Það getur haft
góða hæfileika, og það getur verið svo
heppið að komast í góðan leikskóla,
og þar lærir það ákveðin atriði. En þó
bindur skólinn ævinlega til að byrja
mcð. Það er ýmislegt, sem býr með
manninum sjálfum, sem vill týnast í
skólanum, og svo fara menn að leita
að þessu jafnvel án þess að vita af því.
Margt það, sem býr innra með leik-
aranum, kemur ekki fram fyrr en eftir
langa leit, og til þess að finna sjálfan
sig verður hann að fá tækifæri til þess
að vinna.
Það ungt fólk, sem nú hyggst leggja
fyrir sig leiklist, verður fyrir minni
vonbrigðum, ef það gerir sér í upphafi
ljóst, að það getur tæpast valið sér
erfiðara starf en gerast leikarar. En
það gefur líka stundum eftir mikið
erfiði og langa leit eitthvað, sem ég
get ekki lýst, en eitthvað, sem maður
vildi ekki vera án.
o o o
Nú er nær miðjum aftni, og sólin
skín yfir Landsímahúsið handan við
Austurvöll.
Um leið og ég kveð Gísla og þakka
honum samtalið, árnar Dagskrá hon-
um allra heilla á leiklistarbrautinni.
S. S.
42
DAGSKRÁ