Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 50

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Síða 50
sagðir verstu pörupiltar, en væri gefiS í skyn, að strákur ætti óhægt um nám vegna gáfnaskorts, ætlaði allt af göflun- um að ganga. Þar sem slík afstaða ríkir gagnvart gáfum, er eðlilegt, að góður jarðvegur myndist fyrir alls konar Snoddasa, sem ganga fram fyrir fólk með sigurbros van- þekkingarinnar á vörum: — Svona er ég fæddur, guð gaf mér þessa gáfu. Er ekki raulið mitt stórkostlegt? Fyrir fáu er borin meiri fyrirlitning á íslandi en eljusemi. Menn eiga helzt að stökkva alvæddir inn í veröldina. Vera talandi skáUl og bornir snillingar. Ég hef séð alls konar gáfnasnakka fýla grön yfir glöggskyggnum vísindamönnum og mikilhæfum stjórnmálamönnum á þeirri forsendu, að þeir puðuðu við störf sín. Það að vera puðari þykir einstaklega snautlegt fyrirbæri á okkar landi gáfumanna og fæddra snillinga. Það, sem er átakanlegast við íslenzkt snobberí, er virðingarleysið fyrir vinnu og eljusemi. Því að vinnan, puðið að við- fangsefninu, er það, sem líklegast er til árangurs, hvort sem menn fást við list- sköpun, vísindi eða búskap. Nú er það ekki svo að skilja, að snilli- gáfan sé ekki allrar virðingar verð. En í hverri mynd, sem slík gáfa er, þarf hún jafnan við þjálfunar og menntunar. Og í þeim sökum getur ekkert komið í stað þrotlausrar vinnu og erfiðis, Við eigum ótal Snoddasa. Menn með einhverja æð, einhvern neista. Úr þess- um mönnum gæti vafalaust eitthvað orð- ið, ef þeir heiðarlega gerðu sér grein fyrir því, að þeir komast ekkert án erfiðis. En snobbið fyrir gáfunum, snobbið fyrir nátt- úrubarninu Snoddasi, hvort sem hann fæst við að skrifa sögur eða syngja, stend- ur í vegi fyrir þroska þessara manna. o o o Að snobba fyrir því, sem háleitt er, getur aldrei orðið mjög hættulegt. Það kann að orka broslega, en það drepur ekk- ert niður. Hitt, snobberíið fyrir þekking- arleysinu og kákinu, snobberíið fyrir hinu óvitandi náttúrubarni, fyrir Snoddasi, get- ur orðið býsna skeinuhætt. Untergang des Abendlandes? Félag var stofnað í Reykjavík s.l. vet- ur. Það hlaut nafnið Frjáls menning. Heiðursforseti þess er Gunnar Gunnars- son rithöfundur, en formaður er Tómas Guðmundsson skáld. Menningin og meyjarnar mittisgrönnu Aldrei fegurri en í ár. Það hefur verið mikið um dýrðir í Reykjavík síðustu daga. Fólkið hefur streymt suður í Vatnsmýri. Tindilfættar hispursmeyjar hafa skokkað við hliðina á fertugum piparsveinum með glóð í aug- um. Mergðin hefur gengið í öldum og eft- irvæntingin ljómað á hverri brá. Hver stórmerki hafa verið framin þar í votlendinu? Hverjir hafa segulmagnað svo hugi stúlkubarna sem meykarla? ísland hefur eignazt drottning. í þann mund, er sólin hækkar göngu sína vetur hvern, birtist áferðarmikil aug- lýsing frá einhverjum hugsjónamönnum, sem gera sér af því gróðalind að sýna á palli um tug eintaka af kvenlíkömum. Allt fer þetta fram með konunglegri reisn, enda sæmir ekkl annað titlinum, sem fórnarlömbin hljóta. Hugsjónamenn senda erindreka sina hús úr húsi. HeiII sérfræðingur, sem hefur fengið af sér mynd í dönsku blaði, mælir og vegur. Meyjablómi íslands skal krýnast. Svo er seldur aðgangurinn. Þúsundirn- ar f júka. Hundraðkallarnir streyma í vasa Tívólístjórans. ísland skal eignast drottn- ing. Mottó dagsins: Aldrei fegurri en í ár. Meykarlar kippast við. Mergðin streymir suður undir flugvöll. Frá örófi alda hef- ur fegurðin á íslandi aldrei eignazt ann- an eins þénara og Tívólístjórann. Verðlaunin glampa. Heimskepppni — Evrópusigling — Langaf jara — Hollywood Skotsilfur að vild. ísland eignast drottning. Lúðrar eru þeyttir. Gjörvöllum lýð skal 48 DAGSKRA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.