Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Side 54
mennum. Því ber hins vegar ekki að
neita, að Jón Leifs er merkileg per-
sóna í tónlistarsögu íslenzkri og ef-
laust þarfur brautryðjandi í höfund-
arréttarmálum.
Að endingu má geta, að flutningur
á tónverkum þessarar fyrstu alís-
lenzku tónlistarhátíðar var með hinni
mestu prýði. Eiga allir aðilar, er þar
að stóðu, skildar hinar beztu þakk-
ir fyrir.
Michel Seuphor:
*
Islenzk myndlist
Eitt útbreiddasta og vandað-
asta mynlistatímarit Frakka
Art d’aujourd’hui (Listin í dag)
helgaði Norðurlöndunum októ-
ber—nóvember hejti sitt 1953.
Michael Seuphor, sá er slcrij-
aði grein þá, er hér jer á ejtir,
er þeklctur listgagnrýnandi í
París og víðar, og byggir hann
að líkindum umsagnir sínar á
íslenzlcu myndlistarsýningunni,
er haldin var í Brússel 1952.
Greinin hejur ekki verið birt
áður í íslenzltri þýðingu, og
þrátt jyrir margan skemmtileg-
an misskilning eins og t. d.
þann, að allur ágóði aj ájengis-
sölu ríkisins renni til listamanna,
jinnst mér hún mega koma jyrir
almennings sjónir. H. A.
Guðirnir hafa velþóknun á hinum
smáu ríkjum. Lífskjör manna eru
þar betri. Þar er aldrei jafn mikið
af fátæklingum. Rithöfundar og aðr-
ir listamenn eiga við betri lífsskil-
yrði að búa en stéttarbræður þeirra
í stærri ríkjum. Ég hcld, að væri
heiminum skipt niður í ríki, sem
hvert um sig hefði ekki fleiri en tíu
milljónir íbúa, yrði það til að auka
mjög hamingju mannkynsins.
ILvað skal þá segja um ísland, sem
aðeins hefur 150 þús.P Listamenn og
rithöfundar eru þar sannkölluð dek-
urbörn. Hver sá, sem minnstu löng-
un hefur til að gerast málari eða rit-
höfundur, fær styrk til náms og
ferðalaga. I höfuðborginni, Reykja-
vík, hefur nýlega verið byggt ríkis-
listasafn, þar sem sýnd eru verk inn-
lendra höfunda. Sú borg hefur þó að-
eins 50 þús. íbúa. Þó er málaralist-
in tiltölulega nýtt fyrirbrigði á ís-
landi, þar eð varla er hægt að segja,
að hún hafi verið til á 19. öld. En í
dag munu vera þar um áttatíu mál-
arar og myndhöggvarar, og af þeim
fylgir rúmur tugur abstrakt stefn-
unni, að vísu með misjöfnum ár-
angri.
Mér hefur verið tjáð, að íslenzk-
ir elski málaralist af heilum hug og
52
DAGSKRÁ