Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2007, Page 16
miðvikudagur 3. október 200716 Sport DV
Vialli í viðræðum við Q.P.R.
Ítalinn Gianluca Vialli á í viðræðum við
enska knattspyrnuliðið Q.P.r. um að
taka við þjálfun liðsins. Q.P.r. rak John
gregory úr starfi
á mánudaginn
og líklegt er talið
að vialli taki við
af honum. Q.P.r.
er að hluta til í
eigu bernies
ecclestone,
forseta Formúlu
1-stjórnarinnar.
vialli hefur áður
stýrt bæði Chelsea og Watford en
starfar nú á ítölsku íþróttarásinni Sky
italia.
Mido frá í þrjár vikur
egypski sóknarmaðurinn Mido mun
ekki leika með middlesbrough næstu
þrjár vikurnar vegna meiðsla aftan í læri.
mido meiddist í
leik middles-
brough og
everton um
helgina og missir
af landsleik
egyptalands og
botsvana eftir
hálfan mánuð.
„Ég verð ekki klár
í þann leik (gegn
botsvana). vonandi verð ég klár í leikinn
gegn Chelsea eftir þrjár vikur,“ segir
mido. meiðsli hafa hrjáð sóknarmenn
middlesbrough að undanförnu og mido
byrjaði leikinn gegn everton, þrátt fyrir
að vera tæpur vegna meiðsla.
Kaboul bjartsýnn
Younes Kaboul, leikmaður tottenham,
vonast til að jöfnunarmark hans gegn
aston villa á mánudaginn verði til þess
að snúa gengi
liðsins á rétta
braut. kaboul
jafnaði metin á
lokamínútu
leiksins, sem
endaði 4-4. „Ég
vona að þessi
úrslit verði til
þess að koma
okkur á rétta
braut. við gerum okkur allir grein fyrir
því hve mikilvægt þetta var fyrir
stjórann. martin er góður stjóri en hann
er ekki inni á vellinum. Það eru
leikmennirnir og það er undir okkur
komið að snúa genginu okkur í hag,“
segir kaboul, sem virðist vera búinn að
gleyma því að markið hans var aðeins
jöfnunarmark, ekki sigurmark.
Beckham verður ekki lánaður
La galaxy mun ekki lána David
Beckham til liðs í ensku úrvalsdeildinni
á þessari leiktíð. beckham hefur átt við
meiðsli að stríða
frá því að hann
gekk í raðir
liðsins í sumar og
hefur aðeins
tekið þátt í fimm
leikjum til þessa.
orðrómur hefur
verið á kreiki um
að beckham
verði lánaður til
evrópu, í von um að hann komist í gott
leikform. Nú hafa forráðamenn La
galaxy sett stólinn fyrir dyrnar og gefið
frá sér skýra yfirlýsingu. „Hann verður
ekki lánaður. Hann er samningsbundinn
galaxy,“ segir talsmaður félagsins.
Sunderland er nýjasta liðið sem sagt er
hafa áhuga á að fá beckham lánaðan.
Grant kominn til að vera
Roman Abramovich, eigandi Chelsea,
hefur hvatt leikmenn liðsins til að
standa við bakið á stjóranum avram
grant, því hann
sé kominn til að
vera. orðrómur
hefur verið á
kreiki um að
grant verði
aðeins
tímabundið í
starfi knatt-
spyrnustjóra
Chelsea.
„Leikmenn hafa verið spurðir um
ráðningu grants. Sumir þeirra voru
boðaðir á fund og þar var tilkynnt að
grant væri framtíðarstjóri Chelsea og
nyti stuðnings romans. Þeim var einnig
sagt að búa sig undir að sögur færu á
kreik um að annar tæki við. en
leikmönnum var gert ljóst að grant væri
kominn til að vera, að mati eigandans.
ensKi Boltinn
Chelsea og Liverpool gera atlögu að fyrsta sigri sínum í Meistaradeildinni í kvöld:
ALDREI HEYRT UM GRANT SEM ÞJÁLFARA
Chelsea á erfiðan útileik fyrir
höndum gegn Valencia á Mestalla-
vellinum í Valencia. Chelsea varð að
sætta sig við jafntefli við Rosenborg í
fyrstu umferðinni og þarf nauðsynlega
á sigri að hald í kvöld.
Chelsea og Valencia mættust í 8
liða úrslitum Meistaradeildarinnar á
síðustu leiktíð. Fyrri leikur liðanna fór
fram á Stamford Bridge í London og
endaði 1–1. Chelsea hafði hins vegar
betur í síðari leiknum á Mestalla, þar
sem Fernando Morientes kom Valencia
yfir áður en Andriy Shevchenko og
Michael Essien tryggðu Chelsea sigur.
Tapið var fyrsta tap Valencia gegn
ensku liði í 40 ára sögu liðsins í Evr-
ópukeppni. Chelsea hefur ellefu sinn-
um mætt spænsku liði á útivelli, unnið
tvo leiki, gert tvö jafntefli og tapað sjö.
Mikil pressa er á Avram Grant, stjóra
Chelsea. Eini sigur liðsins í þremur
leikjum undir hans stjórn kom gegn
Hull í enska deildarbikarnum. Quique
Sanchez Flores, þjálfari Valencia, seg-
ist efast um að Grant sé rétti maðurinn
til að leysa Mourinho af hólmi.
„Ég hafði aðeins heyrt um Grant
sem yfirmann íþróttamála en aldrei
sem þjálfara. Ég vona að hann höndli
starfið. Við lítum ekki á það sem já-
kvæðan hluta að Mourinho sé farinn
og við getum ekki metið stöðuna hjá
Chelsea á þessari stundu.
Ég ber virðingu fyrir því starfi sem
Mourinho skilaði og tel að hann noti
góðar aðferðir og stjórni sínum leik-
mönnum vel. En leikmennirnir eru
þeir sömu þó þjálfarinn sé annar,“ seg-
ir Flores.
Liverpool fær franska liðið
Marseille í heimsókn á Anfield. Í
liði Marseille eru tveir fyrrverandi
leikmenn Liverpool, þeir Djibril Cisse
og Boudewijn Zenden.
Liverpool og Marseille hafa tvisvar
mæst í Evrópukeppninni áður, í fjórðu
umferð Evrópukeppni félagsliða
tímabilið 2003–2004. Marseille vann
samanlagt 3–2 og þar skoraði Didier
Drogba, núverandi leikmaður Chelsea,
tvö mörk fyrir Marseille.
Liverpool hefur aldrei tapað á
heimavelli fyrir frönsku liði, í níu
leikjum. Liverpool gerði 1–1 jafntefli
við Porto í fyrstu umferð, á sama tíma
og Marseille sigraði Besiktas 2-–0 á
heimavelli. dagur@dv.is
Sigurmarkið michael essien skoraði sigurmark Chelsea gegn valencia á síðustu
leiktíð.
Manchester United vann Roma með
einu marki engu á Old Trafford.
Markið skoraði Wayne Ronney mæð
glæsilegu skoti eftir undirbúning
Nani. Leikurinn var ekki jafnfjörugur
og síðast þegar liðin mættust á þessum
velli því þá vann Man. Utd. 7–1. Hrósa
ber dómaranum fyrir markið en hann
leyfði hagnaðarreglunni að njóta sín.
Rómverjar fengu nokkur tækifæri til
að jafna en inn vildi boltinn ekki og
sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, og
hans menn löbbuðu glaðir af velli.
„Þetta var frábært,“ sagði Ferguson eftir
leikinn. „Rooney skoraði svipað mark
gegn AC Milan síðasta tímabil, þetta
var gott hlaup, góð sending og frábært
mark.“ Ferguson hrósaði einnig
Tomasz Kuszczak sem var að spila
sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni.
„Hann var góður í leiknum. Varði
nokkrum sinnum mjög vel og greip á
köflum mjög vel inn í. Þeir klikkuðu
úr nokkrum góðum færum, nokkrum
dauðafærum meira að segja og kannski
vorum við heppnir en hún virðist fylgja
okkur þessa stundina.“ Manchester
hefur núna unnið sex leiki í röð með
markatölunni 1–0. „Stundum gengur
liðið í gegnum svona kafla en það
endist ekki að eilífu. Einhvern daginn
byrjum við að raða inn mörkum og
það kemur allt með kalda vatninu.“
Mancini, leikmaður Roma, var allt
annað en sáttur við dómarann og
fannst að Michael Carrick hefði
brotið á sér innan teigs. „Hann felldi
mig alveg klárlega. Dómararnir voru
slakir að þessu sinni. Ég var einu sinni
dæmdur rangstæður þar sem ég var
metra fyrir innan varnarlínu þeirra.
Við berum samt höfuðið hátt því við
spiluðum vel og sýndum að Roma er
gott lið.“ Í hinum leik riðilsins unnu
Sporting-menn frá Portúgal Dinamó
frá Kænugarði 2–1. Manchester er efst
í F-riðlinum með 6 stig, Rómverjar og
Sporting koma næst með 3.
Zlatan skoraði tvö
Inter Milan vann PSV 2–0
með tveimur mörkum frá Zlatan
Ibrahimovic. Það fyrra kom úr
vítaspyrnu og það síðara með skalla,
sem átti nú væntanlega að vera fyrirgjöf.
Christian Chivu og David Suazo fengu
báðir að líta rauða spjaldið í liði Inter.
Magnað jafntefli leit dagsins ljós í
Moskvu þar sem CSKA og Fenerbahce
gerðu 2–2 jafntefli. Leikurinn bauð
upp á allt sem góðan fótboltaleik
prýðir og sóttu liðin á víxl. Alex kom
Tyrkjunum í Fenerbahce yfir en
CSKA skoraði tvö mörk eftir skelfileg
mistök Edus. Fyrst skoraði Milos
Krasic og síðanVagner Love. Deivid
bjargaði svo stigi fyrir Fenerbahce
með marki undir lokin sem skrifast
alfarið á Veniamin Mandrykin
markvörð Rússanna. Fenerbahce er
með fjögur stig eftir tvo leiki, Inter
þrjú líkt og PSV á meðan CSKA hefur
eitt stig.
Arsenal, Barcelona og Glasgow
Rangers í ham
Arsenal hélt áfram sigurgöngu
sinni og lagði Staua frá Búkarest 1–0.
Robin van Persie skoraði eina mark
Arsenal í leiknum. „Við þurftum að
sýna skynsemi og þolinmæði og við
gerðum það. Ég er ánægður með að
við náðum að koma í veg fyrir að þeir
næðu skyndisóknum,“ sagði Arsene
Wenger, þjálfari Arsenal, eftir leikinn.
„Leikmenn eru mjög einbeittir þessa
dagana og það sást vel í þessum leik. Ég
er mjög ánægður með spilamennsku
liðsins, það er sterkt að ná þremur
stigum á útivelli.“
Sevilla vann Slavia Prag 4–1 í sínum
fyrsta heimaleik í Meistaradeildinni.
Liðið spilaði skemmtilegan sóknar-
bolta og var sigurinn síst of stór.
Carles Puyol skoraði eitt marka
Barcelona þegar liðið lagði Stuttgart
í Þýskalandi. Undrabarnið og
snillingurinn Lionel Messi bætti öðru
marki við. Eiður Smári Guðjohnsen
var varamaður í liði Barcelona en kom
ekki við sögu.
Glasgow Rangers kom mörgum
á óvart með því að leggja Lyon 3–0 í
Frakklandi. Lee McCulloch, Daniel
Cousin og Demarcus Beasly skoruðu
mörk gestanna. Rangers hafa ekki tapað
í átta Meistaradeildarleikjum í röð sem
er félagsmet. Þetta var jafnframt stærsti
ósigur Lyon manna á heimavelli í 33 ár.
Börsungar og Glasgow-menn eru svo
gott sem komnir áfram í 16 liða úrslit
eftir úrslitin í gær.
Manchester United vann
Roma 1–0 í leik þar sem
Rómverjar lágu til baka
og hraði leiksins var
lítill. Wayne Rooney
skoraði eina mark leiks-
ins með góðu skoti. Ars-
enal, Barcelona og
Glasgow Rangers
voru öll í ham í
Meistaradeildinni
í gær.
Kominn aftur ronaldinho sneri aftur í
lið barcelona í gær.
SNILLD
ROONEY SKILDI
RÓMVERJA EFTIR Í SÁRUM
BeneDiKt BóAS hinRiKSSon
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
óviljaverk ronaldo fékk þungt högg
gegn roma.