Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2007, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2007, Síða 30
miðvikudagur 3. október 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Bandaríski leikstjórinn Tom Kalin, sem er sérstakur gestur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, verður gest- ur á næsta föstudags- fundi Ís- lensku kvik- mynda- og sjónvarps- akademí- unnar. Kalin sýnir mynd sína Savage Grace með Julianne Moore í aðalhlut- verki á hátíðinni en hann mun ræða um reynslu sína af óháðri kvikmyndagerð á föstudag. Myndin hans verður frumsýnd kvöldinu áður í Regnboganum en að henni lokinni mun Kalin einnig sitja fyrir svörum. n Söngvaskáldakvöld fer fram á Domo í kvöld en þau eru hald- in fyrsta miðviku- dag hvers mánaðar. Í síðasta mánuði var heiðursgest- ur kvölds- ins Magnús Kjartansson en að þessu sinni er það enginn annar en Dr. Gunni sem ætlar að flytja bæði ný og eldri lög úr eigin smiðju. Áður en hann stígur á svið munu fimm önn- ur söngvaskáld flytja eitt til tvö lög hvert en Hrynsveit Eyþórs Gunnarssonar annast undirleik. Kvöldinu lýkur með djamm- sessjón þar sem tónlistarmenn leika af fingrum fram. Dagskrá- in hefst kl. 20 en aðgangseyri er mjög stillt í hóf, aðeins 500 kr. n Hinn frjálslyndi Sigurjón Þórðarson virðist ötull talsmað- ur aukins frelsis til rjúpnaveiða, ef marka má nýjasta pistilinn á blogginu sigurjonth.blog.is. Þar dregur hann reiknilíkan Náttúru- fræðistofnunar af rjúpnastofn- inum í efa. „Það er alveg ljóst að þetta reiknilíkan Náttúrufræði- stofnunar gengur engan veginn upp þar sem það hafa tapast út úr stofninum 400 þúsund rjúp- ur á síðustu tveimur árum sem svarar til fjórfalds varpstofns í vor. Í hnotskurn er ekkert mark tak- andi á því líkani sem umhverf- isráðherra notar til veiðistjórn- unar,“ segir Sigurjón. Hann segir að í bréfi Náttúrufræðistofnunar Íslands til umhverfissráðherra 6. september komi fram að skot- veiðar magni upp aðra þætti af- falla. Sigurjón segir þetta svipað og að halda að fálkinn magni upp matarlystina í tófunni, en rann- sóknir hafa sýnt að afföll rjúp- unnar eru síst minni þar sem hún er friðuð. Setur hann svo spurn- ingamerki við fræðin öll. Hver er konan? „Herdís Þórðardóttir, alþingismað- ur.“ Hvað drífur þig áfram? „Það er lífsgleði, kraftur og ánægj- an af því að vera til.“ Átt þú stóra fjölskyldu? „Já ég er gift, á fjögur börn og sex barnabörn.“ Hvernig er að vera stóra systir Guðjóns Þórðarsonar? „Það er mjög gott. Það hefur alltaf verið mjög gott samband á milli okk- ar. Ég er harður stuðningsmaður ÍA en hef alltaf óskað honum góðs gengis, hvar sem hann er að þjálfa.“ Hver er uppáhaldsbókin þín? „Ég hef lesið margar góðar bæk- ur en ljóð eru í uppáhaldi hjá mér. Ég held mjög mikið upp á ljóð Davíðs Stefánssonar.“ Hverjir eru þínir helstu kostir? „Mínir kostir eru þeir að ég er mjög vinnusöm. Það nýtist mér vel í nýju starfi. Ég er líka bjartsýn og læt ekkert hindra mig í þeim verkefnum sem ég fæst við.“ Hverjir eru þínir helstu ókostir? „Ég ætla mér stundum of mikið og það getur verið ókostur þegar tíminn sem ég ætla mér til að leysa verkefnin eru af skornum skammti.“ Hver eru áhugamálin þín? „Samverustundir með fjölskyld- unni eru mér efst í huga. Ég hef einn- ig áhuga á lestri góðra bóka, útivist og laxveiði. Ég hef mikið stundað laxveiði í gegnum árin.“ Spilaðir þú fótbolta, eins og sannur Skagamaður? „Nei, það gerði ég ekki. Ég æfði sund alveg frá blautu barnsbeini þar til ég varð sautján ára og því sam- hliða stundaði ég handbolta. Ég spil- aði ekki fótbolta en hef fylgst mjög vel með honum af hliðarlínunni alla ævi. Hann hefur alltaf spilað stórt hlutverk í fjölskyldunni.“ Hjá hverjum situr þú á Alþingi? „Höskuldur Þórhallsson, nýr þing- maður Framsóknarflokksins í Norð- austurkjördæmi situr mér á hægri hönd og Þuríður Backman á vinstri. Það leggst mjög vel í mig.“ Ætlar þú að flytja til Reykjavíkur? „Nei, ég ætla að keyra á milli Akra- ness og Reykjavíkur. Það tekur ekki nema um fjörutíu mínútur.“ Hver verða þín baráttumál á komandi þingi? „Ég sit í samgöngunefnd og iðnað- arnefnd svo þau mál verða ofarlega á baugi hvað mitt kjördæmi snertir. Ég tel mjög brýnt í þessu stóra kjördæmi að samgöngumálin séu í góðu lagi. Sama gildir um mennta- og atvinnu- málin. Ég vil beita mér fyrir þeim.“ Hvaða ráðuneyti myndir þú vilja stjórna? „Ég hugsa að ég myndi vilja stýra heilbrigðisráðuneytinu. Þar er mikil og erfið vinna framundan til að bæta aðstöðu aldraðra og öryrkja. Það er margt sem þarf að gera og ég myndi vilja nýta krafta mína þar.“ Hvað má betur fara í íslensku samfélagi? „Mér eru aldraðir og öryrkjar ofar- lega í huga, það þarf að koma til móts við þeirra þarfir. Til dæmis þarf að gera fólki kleift að búa sem lengst heima ef það óskar þess. Heimilishjálpina þarf að efla til muna og það þarf að koma á fót sólarhringsþjónustu fyrir þá sem þurfa þess. Það er á stefnuskránni og verður mikil bylting þegar þau mál verða komin í gott horf. Mér finnst Jó- hanna Sigurðardóttir standa sig mjög vel það sem af er kjörtímabilinu og ég held að hún muni standa sig vel áfram.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +10 4 xx +8 7 xx xx xx xxxx xx xx xx xx +9 4 +9 4 +9 4 xx xx xx xx xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +12 4 xx +9 4+7 4 xx xx xx +5 7 +6 7 xxxx xx xx xx xx +9 4 xx +9 4 xx +4 12 xx +7 7 xx xx +84 -xx -xx MAÐUR DAGSINS NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði LífsgLeði, kraftur og sjáLf Laxveiðin Herdís Þórðardóttir fyrrverandi fiskverkandi er 8. þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi. Hún hefur fengist við útgerð og fiskverkun í mörg ár en tekur nú í fyrsta skipti sæti á alþingi. Nýtum okkur tækifærið til að fara í bílabíó á Íslandi og skellum okk- ur í bílabíóið í varnarskýlinu við Keflavíkurvöll í kvöld. Það er fátt amerískara en bílabíó og því tilvalið að myndin sem sýnd verður í kvöld sé American Graffiti. Það er alveg á hreinu að ef þig hefur alltaf dreymt um að bjóða leyniástinni þinni á stefnumót en aldrei þorað er þetta rétta tækifærið því fátt er rómantísk- ara en bílabíó. Ef þú ert eldri en 16 ára, flettu þá á blaðsíðu 24 og kíktu á myndasöguna um Rocky. Rocky er einn sá allra klikkaðasti og dónalegasti karakter sem þú finnur en hann er jafnframt alveg þrælfyndinn. Rocky er frekar vonlaus týpa sem um þessar mundir hefur verið staddur á sjúkrahúsi í frekar vandræðalegri aðgerð og eru setningarnar sem detta upp úr hon- um oft alveg gríðarlega skrautlegar. ...Bloc PARty Þetta stórskemmtilega breska indí- rokkband er á leiðinni á klakann til að spila á Airwaves-hátíðinni sem fram fer sautjánda til tuttugasta og fyrsta október næstkomandi. Bloc Party er algjör stuð-partíhljómsveit sem mun sannarlega hrista upp í stemningunni í Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur, laugardag- inn tuttugasta október. Náið ykk- ur í nýjustu plötu sveitarinnar, A Weekend in the City, og lærið lögin utan að svo þið getið sungið með á Airwaves. Við mælum með... ...Rocky ...BílABíói ...Bloc PARty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.