Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Síða 8
Að frægð og fjármunum fylgi farsæld
er engan veginn gefið mál. Þess eru
mýmörg dæmi að frægt fólk er hreint
út sagt óhamingjusamt. Öll tilvera
þess er lituð andlegri eymd, eiturlyfja-
neyslu og í mörgum tilfellum fáfræði
og jafnvel heimsku og lönguninni til
að vera frægur. Sumir eru frægir að
endemum, aðrir eru frægir fyrir það
eitt að vera frægir og enn aðrir fyr-
ir nákvæmlega ekki neitt. Allar þjóð-
ir heims státa af sínu fræga fólki og
ástæður frægðarinnar eru jafnmargar
og fólkið sem um ræðir.
Líkt og pöpullinn dregst að frétt-
um um ofbeldi, hamfarir og slys eins
og mý að mykjuskán, hlakkar í honum
við fréttir af hrakförum fræga fólksins.
Einhvern veginn eins og þær hrakfar-
ir geri hinum venjulega manni léttara
að sætta sig við þá staðreynd að hann
á ekki bót fyrir boruna, er meira og
minna skuldbundinn lánastofnunum
til dánardægurs, en getur, þrátt fyrir
allt, gert skammarstrik án þess að það
endi á forsíðu fjölmiðla með fyrir-
sögn í hástöfum. Allt að einu; betra er
að vera ríkur og óhamingjusamur en
bara óhamingjusamur. Eða hvað?
Britney Spears – ansans, ég
gerði það aftur!
Fyrsta til sögunnar skal nefna
söngkonuna Britney Spears. Ekki eru
mörg misseri síðan hún gat haldið
þúsundum manns í ákveðinni sefjun
með söng sínum á tónleikum. Hún
var átrúnaðargoð stúlkna um allan
heim sem vildu líkjast henni, klæðast
eins og hún og vera ljóshærðar eins
og hún. Hvert lagið á fætur öðru sló
í gegn og þrátt fyrir glannaleg mynd-
bönd sem fylgdu tónlist hennar var
hún álitin verðugur fulltrúi siðgæð-
is ungra stúlkna; yfirlýsingar hennar
um skírlífi sitt höfðu tilætluð áhrif.
Nú er liðin sú tíð og fallið var hátt.
Hún tók sér hvíld frá tónlistinni og
ákvað að eignast börn og verða móð-
ir. Hve erfitt getur það verið? hefur
hún eflaust spurt sig. Að vera foreldri
krefst fórna og þess eru dæmi að frægt
fólk hafi dregið sig út úr sviðsljósinu
til að sinna því hlutverki, en nei, ekki
Britney Spears. Frægðin lúrði líkt og
snákur handan næsta horns, kallaði
og krafðist.
Fyrr en varði var Britney aftur í
sviðsljósinu, en ástæður þess voru
aðrar en fyrr. Segulmagn sviðsljóss-
ins er öflugt og hún lét undan. Hún
hafði bara ekkert fram að færa svo
hún stökk um borð hjá annarri ljósku
án þess að gera sér grein fyrir því að
neglan var týnd og tröllum gefin og
báturinn við að sökkva.
Tilgangurinn helgar meðalið og
Britney fékk ómælda umfjöllun. Á
sama tíma og hún lýsti því yfir að hún
ætlaði sér forræði yfir börnunum sín-
um tveimur birtust myndir af henni
brókarlausri, í annarlegu ástandi og
í vafasömum félagsskap. Í kjölfarið
fylgdu afvötnun á meðferðarheim-
ili og háleitar yfirlýsingar um bót og
betrun. Til að fylgja þeim yfirlýsing-
um eftir ákvað hún að láta raka af sér
allt hár, á höfðinu vel að merkja. Til að
undirstrika að hún hefði engu gleymt
á tónlistarsviðinu tók hún að sér opn-
unaratriði MTV-verðlaunahátíðar-
innar í ár. Það væru ýkjur að segja að
frammistaða hennar hafi ekki vakið
athygli, því allir voru sammála um að
botninum væri náð.
Síðustu fréttir herma að hún eigi yfir
sér kæru vegna umferðarlagabrots, að
nýtt kynlífsmyndband með henni sé
komið á netið og hún sé búin að missa
forræði yfir börnum sínum til fyrrver-
andi eiginmanns síns, sem reiðir víst
ekki vitið í þverpokunum heldur. En
við hverju er að búast hjá manneskju
sem heldur að Japan sé í Afríku?
Paris Hilton
Ein af þeim sem eru fræg fyrir ekk-
ert er Paris Hilton. Hún fæddist með
silfurskeið í munninum, sem einn
af erfingjunum að Hilton-hótelkeðj-
unni. Kannski má segja að Paris Hilt-
on sé fræg fyrir að vera fræg. En ólíkt
stallsystur sinni, Britney Spears, þarf
hún ekki að hafa eins miklar áhyggj-
ur af almenningsálitinu því hún þarf
strangt til tekið ekki að gera nokk-
urn skapaðan hlut. En því miður fyrir
hana er eins og sú einfalda athöfn að
fara fram úr á morgnana sé ávísun á
hrakfarir.
Enginn vafi leikur á því að hún er
umkringd lífvörðum og öryggisgæslu
hvar sem hún fer, en það kom ekki í
veg fyrir að kynlífsmyndband með
henni í aðalhlutverki lenti í óravídd-
um netsins. Ekki var þó að heyra að
henni fyndist það vera stórmál og for-
eldrar hennar skrifuðu það á bernsku-
brek stúlkunnar. Enda fékk hún mikla
umfjöllun vegna þessa og það er nú
það sem málið snýst um.
Því verður ekki neitað að nafn
hennar malar gull, hvort heldur sem
er skartgripa- og fatalína eða ilmvötn.
Markhópurinn er enda slíkur að ann-
að væri ólíklegt. Hins vegar er hægt
að setja spurningamerki við það þeg-
ar henni er ætlað að leika í kvikmynd
eða syngja inn á plötu. Frægð fylgja
ekki endilega hæfileikar eða vitsmun-
ir og meðal annars var sagt um Paris
að hún hefði stolið senunni í House
of Wax, því frammistaða hennar hefði
verið svo afleit.
Trú á sjálfan sig er gott veganesti
út í lífið, en það er ekki alslæmt að
þekkja takmörk sín. En nei, Paris Hilt-
on ákvað að gefa út hljómdisk. Vegna
alkunnrar hógværðar bar diskurinn
titilinn Paris, en tónlistin þótti ekki
merkilegur pappír. Í gagnrýni Lond-
on Guardian sagði meðal annars að
við hlustunina þá „...fyllist þú ótta um
að siðmenning eins og við þekkjum
hana sé dauðadæmd og brennisteini
muni rigna af himnum ofan fyrr en
varir. Það gerist ekki, en tilfinningin
um hræðilega ógæfu er undirstrikuð
í texta á umslaginu þar sem talað er
um „allar væntanlegar plötur mínar“.“
Hátindi frægðar sinnar náði Paris
Hilton fyrr á þessu ári þegar hún var
dæmd til fjörutíu og fimm daga fang-
elsisvistar fyrir ölvun við akstur. Engu
líkara var en aldrei áður í sögu Banda-
ríkjanna hefði jafnstrangur dóm-
ur fallið. Enda fór það svo að dómur
hennar var styttur í tuttugu og þrjá
daga vegna heilsufars hennar.
En batnandi manni er best að lifa
og í viðtali skömmu síðar sagðist hún
ætla til Rúanda í Afríku til að bæta þar
lífskjör almennings. Hver veit nema
hún fái ráðleggingar um ferðatilhög-
un frá Britney Spears, henni yrði án
efa tekið með kostum og kynjum í
Japan.
Kryddblandan
Eitt er það við frægðina sem erfitt
er að henda reiður á. Er frægðin byggð
á verðleikum þeirra sem í hlut eiga
eða eru þeir afurð hæfileika annarra?
Stúlknasveitin Spice Girls átti miklu
fylgi að fagna á sínum tíma. Þar var
um að ræða fimm stúlkur sem valdar
voru úr hópi þúsunda umsækjenda,
með það fyrir augum að slá í gegn.
Þessi aðferð var ekki ný af nálinni,
því fyrsta þekkta dæmið má finna
árið 1965 þegar hljómsveitin Monk-
ees var búin til í viðleitni til að rétta
hlut bandarískrar tónlistar gagnvart
„bresku innrásinni“. Og Spice Girls
Föstudagur 5. október 20078 Fréttir DV
KolBeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Kryddblanda og blondínur
Til er kínverskt máltæki sem hljóðar ein-
hvern veginn svona; hella sem hitnar
fljótt, kólnar skjótt. Óhætt er að segja að
hvergi á þetta máltæki betur við en í ver-
öld sem dregur dám af brosi trúðsins, leik-
myndum og gervi sem ætlað er að fela
raunveruleikann að ógleymdum hégóma
og misskilningi um eigin hæfileika.
„...fyllist þú ótta um að
siðmenning eins og við
þekkjum hana sé dauða-
dæmd og brennisteini
muni rigna af himnum
ofan fyrr en varir.“
Britney Spears á MtV-
tónlistarhátíðinni Náði
sennilega botninum með
frammistöðu sinni.
Hilton og Spears óhætt er að segja að
þær hafi málað bæinn rauðan.