Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Síða 28
föstudagur 5. OKtÓBEr 200726 Helgarblað DV
ún er að búa um
rúmið sitt í risastóra
svefnherberginu
og út um gluggana
blasa við pálma-
tré og falleg hús.
Það er þrjátíu stiga
hiti en Edda Björg-
vinsdóttir leikkona
býr yfir svo mikl-
um sjálfsaga að hún
ætlar ekki út í sól-
bað. Það var
heppilegt að
hún villtist ekki
í morgun. Hvað þá að hún hafi heimsótt eftir-
lætisverslunina sína í San Diego þar sem hún
býr núna. Þá hefðu líkurnar á að hún svaraði
símanum á réttu augnabliki stórlega minnk-
að.
„Já, ég held ég sé eins og fíkill þegar ég
kemst inn í Whole Foods-búðina hér,“ segir
hún glaðlega. „Við Fríða vinkona mín höng-
um í stórmörkuðum sem selja lífrækt rækt-
aðar vörur þegar við eigum frí.“
Það eru þrjár vikur frá því Edda Björg-
vinsdóttir pakkaði saman og flaug á vit
nýrra ævintýra í San Diego. Með henni í för
voru Róbert Ólíver, fjórtán ára sonur henn-
ar, móðir hennar Margrét – Gréta – Kristins-
dóttir og skólasystirin Fríða og tvær dætur
hennar.
„Við erum hér að vinna að meistararit-
gerð,“ útskýrir Edda. „Fríða heitir Sigfríður
Björnsdóttir, er af ekki ómerkari ættum en að
vera dóttir Herdísar Egilsdóttur, uppáhalds-
kennara Íslands, og er með yndislegar dæt-
ur sínar hér, Halldóru, átta ára, og Herdísi,
fimmtán ára. Við leigjum hús í yndislegu
hverfi í San Diego, La Jolla-hverfinu sem ég
vissi tæplega að væri til fyrr en ég kom hing-
að núna. Samt dvaldi ég hér í borginni um
tíma þegar ég var unglingur.“
Ástæða þess að Edda dvaldi í San
Diego á unglingsárunum
var sú að faðir hennar
Björgvin Magnússon
var í framhaldsnámi í
Kaliforníu.
„Pabbi minn ber millinafnið ENGILL,“
segir hún þegar hún talar um föður sinn.
„Óskaplega góð manneskja og er enn í fullu
fjöri, hálfníræður – elskaður af öllum.“
Ódýrara að ferðast hálfan hnöttinn en
vera heima
San Diego varð þó ekki fyrir valinu vegna
þess að Eddu fyndist hún vera að fara á
gamlar slóðir.
„Við Fríða ákváðum að fara hingað því
við eigum báðar vini hér. Hér búa góðir vinir
mínir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik-
kona og maður hennar Stefán Karl Stefáns-
son leikari og auk þess á ég hér bandaríska
æskuvinkonu sem ég kynntist á Íslandi. Há-
skólinn okkar á Bifröst hjálpaði okkur af-
skaplega mikið, kom okkur í samband við
hina og þessa aðila sem þeir eru í samskipt-
um við hérna í Bandaríkjunum. Upphaflega
fengum við nokkrir nemendur á Bifröst þá
hugmynd að fara til útlanda, leggjast und-
ir feld og skrifa ritgerðirnar, en á endan-
um vorum það bara við Fríða sem létum
drauminn verða að veruleika. Það hljómar
kannski fáránlega að það borgi sig að flytja
alla fjölskylduna yfir hálfan hnöttinn til að
spara peninga og fá næði til að vinna, en
það er engu að síður raunin. Hér er ódýrt að
vera og svo er maður í algjörri einangrun. Ég
vissi að ég gæti aldrei beitt mig nægilegum
sjálfsaga til að ljúka ritgerðinni heima á Ís-
landi. Ég neita ekki að staðsetningin – Suð-
ur-Kalifornía – var líka valin sumpart vegna
þess að við sáum okkur fyrir okkur á stutt-
buxum úti í garði með tölvurnar allan vetur-
inn! Auðvitað þarf líka mikinn sjálfsaga að
búa á jafn heillandi stað og La Jolla og verja
dögunum við lestur og skriftir, en ég var al-
veg sannfærð um að það væri miklu líklegra
að ég gæti hellt mér út í ritgerðasmíðina alls
staðar annars staðar en heima á Íslandi. Þótt
ég myndi lofa sjálfri mér því að loka mig af
hálfan daginn heima í Hafnarfirði og skrifa,
þá veit ég að ég myndi freistast til að taka að
mér eitt hlutverk hér og annað þar og einn
fyrirlestur hér og námskeið þar og enginn
tími myndi skapast til að skrifa ritgerð. Ég
varð að fara í burtu.“
„Hafðirðu góðar hægðir í dag?“
Það er síðdegi á Íslandi þegar ég næ tali af
Eddu. Sjálf hefur hún þá verið á ferð og flugi
frá klukkan hálf sjö að morgni, er búin að
drekka heilsudrykk úr ávöxtum með Róbert
syni sínum og keyra hann í skólann.
Komin aftur heim og á eft-
ir að heimsækja bókasöfn
síðar um daginn.
„Stundum villist ég á
leiðinni heim,“ segir hún
og hlær glaðlega. „Það
getur tekið svolítinn tíma að
villast – og ég má alls ekki koma
við í Whole Foods eða Ryder
Jones, þá gleymi ég tíman-
um! Þegar ég sé vörurnar í
þessum lífrænu búðum líður
mér eins og eiturlyfjaneyt-
endur lýsa tilfinningunni
þegar þeir nálgast apótek.
Það er ótrúleg nautn að
sjá allt þetta úrval af eit-
urefnalausum mat-
vælum á því verði
sem ég ræð við.
Hér er ekki
svo mik-
ill verð-
munur
á eitur-
efnamatvælum og þeim eiturefnalausu (líf-
rænu). Ég bara bið til guðs að einhver flytji
Whole Foods heim – ég held það sé lítið mál
með þeim góðu samgöngum sem við höfum
í dag.“
Edda hefur haldið námskeið og fyrirlestra
um langt skeið og einn af vinsælli fyrirlestrum
hennar ber það skemmtilega heiti: Ertu andlegt
og líkamlegt eiturefnaúrgangs ruslaskrímsli?
„Það er engin ný viska að við verðum að
borða holla næringu til að halda heilsu og
grunnurinn að góðri heilsu er meltingin – hún
skiptir öllu máli,“ segir hún. „Fyrir mörgum
áratugum vann Eva móðursystir mín á sjúkra-
húsi í Skotlandi þar sem læknarnir sögðu í
upphafi dags: „It is the most important thing
that everybody has a nice shit every day!“
– eða: „Það er mikilvægast að allir hafi góð-
ar hægðir daglega!“ Við Íslendingar höfum
ekkert verið að velta þessu mikið fyrir okkur
fram til þessa og ég á svo sem ekki von á að
þetta verði aðalumræðuefnið hjá okkur eins
og veðrið – að maður segi til dæmis hlýlega og
eðlilega við vini sína: „Það er sama skítaveðr-
ið – en hvernig voru annars hægðirnar hjá þér
í dag?“ – Anthony Robbins, frægur amerískur
fyrirlesari sem fjölmargir Íslendinga hafa sótt
fyrirlestra hjá sagði einhverju sinni svo sjarm-
erandi og sexí yfir tíu þúsund manna hóp:
„Aldrei borða neitt sem hefur rassgat!“ Ég hef
reynt að fara svolítið eftir því. Reyndar borða
ég fisk, þó hann sé með rass, og svo leyfi ég
mér að borða endrum og sinnum lífrænt rækt-
aða kjúklinga af hamingjusömu bóndabýli, en
ég mun aldrei detta ofan í amerísku steikurn-
ar.“
Lukka í lífi mínu
Á þessu ári fagnar Edda þrjátíu ára leik-
afmæli sínu. Hún segist hafa átt því láni að
fagna að hafa alltaf haft úr nógu að velja í leik-
listinni.
„Ég þakka endalaust guði fyrir það að ég hef
alla tíð getað valið úr spennandi leikritum og
hef tekið þátt í mörgum ofboðslega skemmti-
legum leikuppfærslum, kvikmyndum og unn-
ið í útvarpi og sjónvarpi með bráðskemmti-
legu fólki,“ segir hún. „Þannig hefur það verið
öll þessi þrjátíu ár sem ég hef verið í þessu fagi.
Það er svo mikil lukka yfir mér í lífinu. Svo á
síðustu árum færði lífið mér í hendurnar ynd-
islegt fólk, Ingrid og Eyþór hjá Þekkingarmiðl-
un. Þau drógu mig út í að halda námskeið og
fyrirlestra, sem ég hélt á þeim tíma að ég gæti
ekki. En þannig var rekstraröryggi fjölskyld-
unnar tryggt; með leiklistina öðrum megin,
þar sem launin eru því miður skammarlega
lág, og námskeið og fyrirlestra hinum megin
þar sem launin eru allt önnur og meiri og eft-
irspurnin gífurleg.“
Stefnir á starf leikhússtjóra
Fyrirlestrahaldið leiddi hana svo að þeim
þætti lífs hennar sem hún er nú stödd í. Námi
við Háskólann á Bifröst.
„Ég fékk þá flugu í höfuðið að nú þyrfti ég að
láta reyna meira á heilabúið. Ég hafði reyndar
byrjað í háskóla á mínum yngri árum; áður en
ég fór í leiklistina. Þá hóf ég nám í heimspeki
og ætlaði að verða heimspekingur...“
En þú þarft ekki að læra heimspeki. Þú ert
fæddur heimspekingur!
„Já, er það?“ svarar hún hlæjandi. „Ég er
þá eins og litla frænka mín sem sagðist vera
fædd skáti og hún þyrfti ekkert að fara í bún-
ing til þess, eða læra skátahnútana! En ég
ákvað sem sagt í fyrra að ég vildi fara að ráðsk-
ast meira með umhverfið. Ég vissi að staða
leikhússtjóra Borgarleikhússins myndi losna
fljótlega, svo ég ákvað að ná mér í meistara-
gráðu í stjórnun mennta-og menningarstofn-
ana og sækja síðan um leikhússtjórastöð-
una.“
Og ætlarðu að sækja um?
„Já, auðvitað. Staðan verður auglýst fljót-
lega og ég sendi inn umsókn eins og fjöl-
margir kollegar mínir sem hafa náð sér í þessa
menntun,“ svarar hún heiðarlega. „Ef ég fæ
ekki stöðuna, þá held ég auðvitað áfram að
starfa í leiklistinni, annast fyrirlestrarhald
og halda námskeið – og svo get ég tekið
við Glitni eða FL Group – eða Kaupþingi
þegar ég verð stór – nú eða kannski
Listahátíð eða Kvikmyndasjóði – hver
„Það getur tekið svolítinn tíma að villast – og ég má alls ekki
koma við í Whole Foods eða Ryder Jones, þá gleymi ég tím-
anum! Þegar ég sé vörurnar í þessum lífrænu búðum líður
mér eins og eiturlyfjaneytendur lýsa tilfinningunni þegar þeir
nálgast apótek. Það er ótrúleg nautn að sjá allt þetta úrval af
eiturefnalausum matvælum á því verði sem ég ræð við.“
Lukka í lífinu „Ég þakka endalaust guði fyrir það að
ég hef alla tíð getað valið úr spennandi leikritum og
hef tekið þátt í mörgum ofboðslega skemmtilegum
leikuppfærslum, kvikmyndum og unnið í útvarpi og
sjónvarpi með bráðskemmtilegu fólki.“