Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Síða 41
Starfsferill
Anna Sigríður fæddist á
Skeggjastöðum í Mosfellssveit 16.7.
1947 en ólst upp í Reykjavík. Hún
lauk kennaraprófi frá MHÍ 1968,
embættisprófi í guðfræði við HÍ
1996 og lauk námi í faghandleiðslu
og handleiðslutækni við Endur
menntunarstofnun HÍ 2000.
Anna Sigríður var kennari við
Barnaskólann í Garðabæ 1969–71,
við Hvassaleitisskóla 1971–73, og
við Æfinga og tilraunaskóla KHÍ
1975–85. Þá var hún ráðgjafi hjá SÁÁ
og síðar á meðferðarheimilinu að
Fitjum á Kjalarnesi 1985–91. Hún
vígðist til prests við Grafarvogskirkju
1997 og hefur verið þar prestur
síðan auk þess sem hún starfaði í
prestsstarfi hjá Fjölskylduþjónustu
kirkjunnar 1998.
Fjölskylda
Anna Sigríður giftist 8.6. 1968
Hans Kristjáni Árnasyni, f. 5.10. 1947,
viðskiptafræðingi og framkvæmda
stjóra. Þau skildu. Hann er sonur
Árna Kristjánssonar, f. 19.1. 1924, d.
25.3. 2000, framkvæmdastjóra og að
alræðismanns í Reykjavík, og k.h.,
Kristine Eide Kristjánsson, f. 22.10.
1921, húsmóður og fyrrv. skrifstofu
manns.
Synir Önnu Sigríðar og Hans
Kristjáns eru Árni Páll, f. 27.12. 1968,
kvikmyndagerðarmaður í Reykjavík,
en synir hans eru Egill Orri og Nói;
Gunnar, f. 26.5. 1971, leikari í Reykja
vík, og eru börn hans Snæfríður Sól
og Kormákur Jarl; Ragnar, f. 29.3.
1978, grafískur hönnuður í Reykja
vík, og er sonur hans Hrappur.
Hálfsystkini Önnu Sigríðar, sam
feðra: Jón Norðmann Pálsson, f.
13.2. 1923, d. 1993, yfirskoðunar
maður hjá Flugleiðum; Einar Páls
son, f. 10.1. 1925, d. 1996, skólastjóri
og rithöfundur; Þuríður Pálsdóttir,
f. 11.3. 1927, söngkennari og óperu
söngkona.
Hálfsystur Önnu Sigríðar, sam
mæðra: Hjördís Dürr, f. 22.1. 1934,
húsmóðir í Reykjavík; Erla Dürr, f.
6.11. 1935, húsmóðir í Reykjavík;
Hildegard María Dürr, f. 17.10. 1938,
húsfreyja á Brjánsstöðum á Skeið
um.
Foreldrar Önnu Sigríðar voru Páll
Ísólfsson, f. 12.10. 1893, d. 23.11.
1974, skólastjóri, dómorganisti og
tónskáld, og Sigrún Ástrós Eiríks
dóttir, f. 2.6. 1911, d. 7.8. 1990, hús
móðir.
Ætt
Meðal systkina Páls voru Viktoría
Margrét píanókennari, úrsmiðirnir
Bjarni og Sigurður Guðni, og hljóð
færasmiðirnir Pálmar Þórir og Ísólf
ur. Páll var sonur Ísólfs, tónskálds
og organista í Ísólfsskála á Stokks
eyri, bróður Júníusar, langafa Dagg
ar Pálsdóttur, lögmanns og vara
þingmanns. Annar bróðir Ísólfs var
Bjarni, organisti í Götu, faðir Frið
riks tónskálds. Ísólfur var sonur Páls,
hreppstjóra og formanns í SyðraSeli
Jónssonar, b. í SyðraSeli Sturlaugs
sonar, b. og forsöngvara á Grjótlæk,
bróður Ara í Neistakoti, langafa Jó
hanns í Mundakoti, afa Ragnars í
Smára. Sturlaugur var sonur Bergs,
ættföður Bergsættar Sturlaugssonar.
Móðir Ísólfs var Margrét ljósmóðir,
systir Gríms, langafa prófessoranna,
Bjarna og Jóns Guðnasona. Margrét
var dóttir Gísla, forsöngvara og for
manns í SyðraSeli Þorgilssonar, og
Sesselju Grímsdóttur, b. í Traðar
holti Jónssonar, b. á Grjótlæk, bróður
Sturlaugs.
Móðir Páls organista var Þuríður
Bjarnadóttir, b. í Símonarhúsum
Jónssonar, b. í Símonarhúsum
Bjarnasonar. Móðir Jóns var
Valgerður Björnsdóttir. Móðir
Valgerðar var Guðrún, systir
Guðríðar, ömmu Páls, langafa
Þórðar, föður prestanna Döllu og
Yrsu. Guðrún var dóttir Guðmundar,
ættföður Kópsvatnsættar
Þorsteinssonar en meðal niðja hans
má nefna skákmennina Friðrik
Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Þröst
Árnason, Helga Ólafsson, Héðinn
Steingrímsson og Þröst Þórhallsson
sem og Guðrúnu Á. Símonardóttur
óperusöngkonu. Móðir Bjarna var
Kristín, systir Diðriks, langafa Helga
Sæmundssonar, skálds og ritstjóra.
Kristín var dóttir Jóns, hreppstjóra
í Kolsholti Bjarnasonar. Móðir
Þuríðar var: Þórdís Eyjólfsdóttir,
b. í EystraÍragerði Pálssonar, b. í
EystraÍragerði Vigfússonar.
Sigrún Ástrós var dóttir Eiríks,
rafvirkjameistara og stofnanda og
forstjóra fyrirtækisins Bræðurn
ir Ormsson hf., bróður Jóns sem
einnig stofnaði fyrirtækið með Ei
ríki. Annar bróðir Eiríks var Orm
ur, rafveitustjóri í Borgarnesi. Þriðji
bróðir Eiríks var Ólafur, faðir Orms
sem var formaður Kvæðamannafé
lagsins Iðunnar, föður Ólafs rithöf
undar. Eiríkur var sonur Orms, b. í
Kaldrananesi í Mýrdal Sverrisson
ar, b. á Grímsstöðum Bjarnasonar.
Móðir Sverris var Vilborg Sverris
dóttir, systir Þorsteins, afa Jóhann
esar Kjarval. Móðir Orms í Kald
rananesi var Vilborg Stígsdóttir, b.
í Langholti Jónssonar, bróður Jóns,
prests í Miðmörk. Móðir Eiríks var
Guðrún, systir Sveins, föður Einars
Ólafs Sveinssonar prófessors, föður
Sveins, fyrrv. Þjóðleikhússstjóra og
fyrrv. dagskrárgerðastjóra ríkissjón
varpsins. Guðrún var dóttir Ólafs, b.
í EystriLyngum Sveinssonar, Ingi
mundarsonar.
Móðir Sigrúnar Ástrósar var
Rannveig Jónsdóttir, b. í Þykkvabæj
arklaustri í Álftaveri Brynjólfssonar,
b. í Þykkvabæjarklaustri Eiríkssonar,
b. í Hraungerði Guðmundssonar, b.
í Holti Loftssonar. Móðir Eiríks var
Ástríður Pálsdóttir. Móðir Jóns var
Málfríður Ögmundsdóttir. Móðir
Rannveigar var Sigurveig Sigurðar
dóttir, b. í Þykkvabæjarklaustri Nik
ulássonar, og Rannveigar Bjarna
dóttur.
DV Ættfræði föstudagur 5. október 2007 41
MAÐUR VIKUNNAR
Anna Sigríður
Pálsdóttir
dómkirkjuprestur
Anna Sigríður Pálsdóttir hef-
ur verið valin í embætti dóm-
kirkjuprests, fyrst íslenskra
kvenna, og verður sett inn í
embættið við guðþjónustu í
Dómkirkjunni á sunnudaginn
kemur.
Hans Kristján Árnason
framkvæmdastjóri
Hans Kristján
fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi
frá VÍ 1969, prófi í
viðskiptafræði frá
HÍ 1973 og stundaði
framhaldsnám í
viðskipta og hagfræði
við London Business
School 1973–75.
Hans var viðskipta
fræðingur hjá Sam
bandi veitinga og
gistihúsaeigenda
1973, aðstoðarfram
kvæmdastjóri hjá SÍS 1975–
78, kennari við VÍ 1978–80,
framkvæmdastjóri Hans
Eide hf. 1978–84, og Alþýðu
leikhússins 1984–85, stofnandi,
framkvæmdastjóri og stjórnar
formaður Stöðvar 2 og í stjórn
Íslenska myndversins hf. 1985–
90, stundaði ráðgjöf og sinnti
ýmsum verkefnum frá 1991,
starfrækti listaverkaverslunina
daDa ehf. í Kirkjuhvoli um skeið,
hefur stundað bókaútgáfu, er
stofnandi og framkvæmdastjóri
Þjóðarhreyfingarinnar og er nú
að vinna að heimildarmynd
fyrir sjónvarp.
Hans var aðstoðarmaður
við aðalræðismannsskrifstofu
Hollands á Íslandi, vararæð
ismaður Hollands 1979–83,
sat í stúdentaráði HÍ 1970–72,
stjórn Vöku 1971–72, í fjáröfl
unarnefnd Rauða kross Íslands
1978, í stjórn Lífs og lands 1980–
82, er félagi í The American
Scandinavian Society í New York
og í The LBS Alumni Association,
var þátttakandi í fjölþjóðlegri
vinnustofu listamanna, MOB
SHOP, 1981 og hefur átt
frumkvæði að og haft umsjón
með fjölda listviðburða
hér á landi og erlendis.
Hans skrifaði bók
ina Að elska er að lifa.
Hans Kristján Árnason
ræðir við Gunnar
Dal, útg. 1994. Hann
hefur skrifað fjölda
blaðagreina, flutt
útvarpserindi og haft
umsjón með og stjórnað
sjónvarpsþáttum
fyrir Stöð 2 og
Ríkissjónvarpið. Þá gaf
hann út bókina um
Vilhjálm Stefánsson
landkönnuð 1995.
Hans kvæntist 24.6. 1994
Kristínu Petersen, f. 17.6. 1952.
Þau skildu. Dóttir Kristínar er
Ástríður Viðarsdóttir, f. 23.10.
1985, háskólanemi.
Fyrri kona Hans var séra
Anna Sigríður Pálsdóttir, f. 16.7.
1947. Þau skildu.
Synir Hans og Önnu:
Árni Páll, f. 27.12. 1968,
kvikmyndagerðarmaður í
Reykjavík, en börn hans eru Egill
Orri og Nói; Gunnar, f. 26.5. 1971,
leikari í Reykjavík, og eru börn
hans Snæfríður Sól og Kormákur
Jarl; Ragnar, f. 29.3. 1978, grafískur
hönnuður í Reykjavík, og er sonur
hans Hrappur.
Systkini Hans: Ingunn, f. 3.12.
1948, læknaritari; Guðrún, f. 28.4.
1950, sálfræðingur; Einar, f. 3.2.
1956, hagfræðingur BSRB.
Foreldrar Hans: Árni
Kristjánsson, f. 19.1. 1924, d.
2000, framkvæmdastjóri og
aðalræðismaður í Reykjavík, og
k.h., Kristine Eide Kristjánsson, f.
22.10. 1921, húsmóðir.
Hans heldur upp á afmælið
með fjölskyldu og vinum á
heimili sínu á afmælisdaginn.
Alexander fæddist
í Ólafsvík og ólst
þar upp. Hann lauk
héraðsskólaprófi frá
Laugarvatni 1940,
Samvinnuskólaprófi
1944, stofnaði trésmiðju
í Ólafsvík 1945, var
kaupfélagsstjóri í
Ólafsvík 1947–1962,
varð skrifstofustjóri
Ólafsvíkurhrepps 1962,
oddviti þar 1966 og
jafnframt sveitarstjóri
til 1978. Alexander
var varaþingmaður
Framsóknarflokksins 1959–
1978, þingmaður Vesturlands
kjördæmis 1978–1991 og félags
málaráðherra í stjórn Steingríms
Hermannssonar 1983–1987.
Alexander sat í hreppsnefnd
Ólafsvíkurhrepps 1952–1982,
í fulltrúaráði Sambands sveit
arfélaga 1967, í stjórn Sam
bands sveitarfélaga 1974 og
varaformaður stjórnar 1978–
1982. Í stjórn Hafnasambands
sveitarfélaga frá stofnun 1969
og varaformaður 1969–1982.
Í stjórn Innheimtustofnunar
sveitarfélaga 1971–1983. Fyrsti
formaður Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi 1969–1975. Í
bankaráði Útvegsbanka Íslands
19761983 og í stjórn Fram
kvæmdastofnunar ríkisins
1979. Formaður stjórnar Heilsu
gæslustöðvarinnar í Ólafsvík
1992.
Alexander kvæntist 20.12. 1942
Björgu Hólmfríði Finnbogadóttur,
f. 26.9. 1921, húsmóður. Hún er
dóttir Laufeyjar Einarsdóttur og
Finnboga Lárussonar, kaupmanns
og útgerðarmanns í Gerðum, síðar
kaupmanns og útvegsbónda á
Búðum og í Ólafsvík.
Börn Alexanders
og Bjargar eru:
Finnbogi, f. 9.6. 1943,
héraðsdómari, kvæntur
Sigríði Halldórsdóttur
bankastarfsmanni og
eiga þau þrjú börn;
Svanhildur, f. 19.2.
1945, flugfreyja, gift
Marinó Sveinssyni
bankafulltrúa og eiga
þau tvö börn; Stefán, f.
26.8. 1946, bifvélavirki,
kvæntur Lailu Michaels
dóttur skrifstofumanni
og eiga þau fjögur börn; Lára, f.
4.5. 1948, kerfisfræðingur, gift
Þórði Ólafssyni, starfsmanni við
Alþjóðabankann í Washington,
og eiga þau þrjú börn; Örn, f.
26.6. 1949, skipstjóri, kvæntur
Aðalheiði Eiríksdóttur skrifstofu
manni, og á hann þrjú börn; Atli,
f. 7.3. 1953, kennari í Ólafsvík,
kvæntur Elfu Ármannsdóttur
íþróttakennara, og eiga þau þrjú
börn.
Systkini Alexanders: Sigríður,
f. 13.3. 1911, d. 28.1. 1986, kenn
ari í Ólafsvík; Fríða Eyfjörð, f.
8.2. 1914, nú látin, íþróttakenn
ari í Reykjavík, var gift Friðriki
Eyfjörð verslunarmanni; Þorgils,
f. 23.9. 1918, fyrrverandi kennari
á Akranesi, kvæntur Ingibjörgu
Hjartar; Gestheiður, f. 21.12.
1926, húsmóðir í Ólafsvík, gift
Elínbergi Sveinssyni vélstjóra;
Erla, f. 4.4. 1930, kennari í Kópa
vogi, var gift Konráð Péturssyni,
en þau skildu.
Foreldrar Alexanders: Stefán
Kristjánsson, f. 24.4. 1884, d. 14.11.
1968, vegaverkstjóri, og Svanborg
Jónsdóttir, f. 14.6. 1881, d. 4.10.
1978
Alexander Stefánsson
fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
85
ára á
laugardag
60
ára á
föstudag