Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Qupperneq 44
föstudagur 5. október 200744 Ferðir DV „Ég komst ekki eins mikið upp á fjöll í sumar og undanfarin sumur vegna þess að við konan eignuðumst okkar ann- að barn í lok maí,“ segir Dr. Gunni þeg- ar hann er spurður hvort hann hafi ver- ið duglegur að ganga í sumar. „Það varð mikil fjallavakning hjá mér þegar ég fékk mér bókina eftir Ara Trausta Guðmunds- son og Pétur Þór Þorleifsson, Íslensk fjöll, gönguleiðir á 151 tind. Fyrir það þekkti ég engin fjöll nema Esjuna og kannski Keili“ segir doktorinn glaður í bragði. Fossagallerí „Þrátt fyrir nýja barnið fékk ég útivist- arleyfi í tvo daga til að fara á Fimmvörðu- háls. Hann er frábrugðinn öðrum fjall- gönguleiðum að því leytinu til að maður fer upp á einum stað en niður á öðrum. Það krafðist töluverðrar skipulagning- ar,“ segir Dr. Gunni en með honum í för voru hjón sem eru góðir vinir hans. „Fyrst er gengið í tvo eða þrjá tíma upp með Skógaá. Þar er sannkallað fossagallerí, því það eru stórkostlegir fossar úti um allt. Því næst er farið yfir göngubrú og við tek- ur ekta öræfalandslag,“ segir doktorinn en þremenningarnir fengu ágætis veð- ur á leiðinni. Dr. Gunni segir landslag- ið á leiðinni mjög fjölbreytilegt. „Við tók hrikalega drungalegt jöklaumhverfi. Þar gengur maður í skítugum snjó og á svelli í svolítinn tíma sem er mjög sérstakt,“ seg- ir hann. Undurfögur sýn „Þegar maður er kominn upp á topp lendir maður í frægu veðravíti. Þar er allra veðra von og þarna er minnisvarði um fólk sem varð úti á þessum stað fyrir nokkrum áratugum. Við vorum hins vegar heppin með veður og sáum vel til beggja jökla, Mýrdalsjökuls og Eiríksjökuls,“ seg- ir Dr. Gunni en leiðin um Fimmvörðu- háls liggur á milli þessara jökla. „Fljótlega byrjar maður svo að feta sig niður í Þórs- mörk, en ég hafði lesið í leiðarlýsingum að þar myndi blasa við undirfögur sýn yfir hálendið. Það var eins og við manninn mælt, þessi undirfagra sýn blasti við okk- ur og olli okkur ekki vonbrigðum,“ segir Dr. Gunni og bætir að nýtt félag hafi ver- ið stofnað á leiðinni yfir Fimmvörðuháls; Ferðafélagið Kattahryggir. Skreið yfir Kattahryggi Dr. Gunni segir leiðina niður hafa ver- ið býsna erfiða. „Við gengum yfir svokall- aðan Heljarkamb þar sem við þurftum að hanga í keðjum til að tryggja öryggi okkar. Það var mjög ógnvænlegt. Svo þegar mað- ur var alveg að koma í Bása, þar sem skál- inn sem Útivist á er staðsettur, gengum við yfir Kattahryggi, sem voru hrikalegri en ég hafði ímyndað mér. Þar gengur maður á eins metra breiðum hrygg með þverhnípi beggja vegna. Einn meðlimur nýstofnaðs ferðafélags fór skríðandi þar yfir,“ segir doktorinn léttur í bragði en þvertekur fyr- ir að það hafi verið hann sjálfur. „Ég var svo „upptjúnaður“ eftir gönguna að ég fór þetta bara létt.“ Annað er rusl Dr. Gunni segir ferðina hafa verið frá- bæra. „Náttúrufegurðin á þessari leið er einstök og sprengdi þá kvarða sem ég hafði yfir náttúrufegurð áður. Það var eig- inlega hálfómerkilegt að keyra til Reykja- víkur daginn eftir því okkur fannst allt sem við sáum á leiðinni bara rusl í samanburði við það sem við sáum upp frá,“ segir dokt- orinn og hlær en bætir við að hann hafi nú reyndar sofið megnið af leiðinni eftir erfiða fjallgöngu. Hann er þegar búinn að ákveða næstu hálendisför. „Næsta sumar ætla ég að fara hina vinsælu öræfaferð- ina sem er hinn svokallaði Laugavegur. Það er tveggja til þriggja daga ganga fyr- ir venjulega menn, þó einhver þindarlaus ofurhugi hafi hlaupið þá leið á fjórum og hálfum tíma í sumar. Hann hlýtur að vera súperman,“ segir Dr. Gunni að lokum. á ferðinni Fyrir nokkrum árum fékk Dr. Gunni sér bók sem markaði upphafið að nýju áhugamáli tónlistar- mannsins góðkunna. Áhugamálið var fjallganga og hefur hann síðan þá verið duglegur að ganga um fjöll og firnindi. Dr. Gunni segir hér frá því þegar hann gekk um Fimmvörðuháls í sumar. FimmvÖrðuháls: Allt AnnAð er rusl U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s Haustútsala í Tvö líf! Holtasmári 1 517 8500 www.tvolif.is Opið á virkum dögum 11-18 Laugardögum 11-16 Mánudag 1/10 - laugardag 6/10 Haust meðgöngufatnaður á 20% afslætti Haust barnaföt á 25% afslætti Góðar vörur á frábæru verði! Dr. Gunni tekur á rás Á skítugum snjó á skriðjökulssporði. Dr. Gunni Í upphafi ferðar. Doktorinn sofandi alveg búinn á því eftir gönguna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.