Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 48
Föstudagur 5. október 200748 Helgarblað DV
„Þetta hafa verið viðburðaríkir mán-
uðir,“ segir leikstjórinn, eiginmaður-
inn og faðirinn Ragnar Bragason en
kvikmyndin Börn sem hann gerði
í samstarfi við leikhópinn Vestur-
port hefur gengið vonum framar á
kvikmyndahátíðum víða um heim.
Ragnar, sem er 36 ára, hefur þrátt
fyrir ungan aldur gert þrjár kvik-
myndir í fullri lengd auk hundraða
sjónvarpsþátta.
Slysaðist út í kvikmyndagerð
„Þetta var nú allt hálfgerð tilvilj-
un,“ segir Ragnar aðspurður hvern-
ig áhugi hans á kvikmyndagerð hafi
kviknað. „Ég var aldrei neitt kvik-
myndaböff og ætlaði reyndar allt-
af að verða rithöfundur,“ en þetta
breyttist allt með einum kvikmynda-
kúrs í framhaldsskóla þegar Ragnar
var tvítugur. „Ég skráði mig í kúrs hjá
Önnu G. Magnúsdóttur sem gekk
í raun bara út á það að fræðast um
kvikmyndagerð og gera síðan eina
stuttmynd í lokin,“ og segir Ragnar
að eftir það hafi ekki verið aftur snú-
ið.
„Kvikmyndagerðin sameinaði
í raun öll mín áhugamál. Það að
skrifa, skapa og einnig að vinna með
öðru fólki,“ en Ragnar segist mjög fé-
lagslyndur maður. „Einsemd rithöf-
undarins hefði hvort sem er aldrei
hentað mér.“
Lærði af reynslunni
Þó að Ragnar hafi fundið áhug-
ann kvikna í kvikmyndakúrsinum
hélt hann ekki áfram í kvikmynda-
gerðarnámi. „Ég fór löngu leiðina
eins og svo margir Íslendingar og
lærði af reynslunni,“ en Ragnar fór í
kjölfarið að vinna að gerð tónlistar-
myndbanda og auglýsinga fyrir vini
og kunningja.
„Árin 1994 til 2000 fóru að mestu
í að gera sjónvarpsþætti, mest fyrir
Stöð 2,“ en Ragnar gerði í kringum
200 þætti á þeim tíma.
„Ég man til dæmis vel eftir tut-
tugu þátta röð sem hét 03 og fjall-
aði um ungt fólk á þrítugsaldri sem
var að byrja sinn atvinnuferil. Við
gerðum þá um 60 tíu mínútna lang-
ar heimildarmyndir um ungt fólk úr
öllum áttum og það var heljarinnar
verkefni.“
Fóstbræður og kvikmynd í
fullri lengd
Þó að vel hafi gengið í sjónvarps-
þáttagerðinni segir Ragnar það alltaf
hafa verið markmiðið að gera kvik-
mynd í fullri lengd. „Ég skrifaði mörg
handrit á þessum tíma. Það var samt
ekki fyrr en um 1997 sem ég byrjaði
að fá styrki til handritsgerðar og það
fyrsta varð að myndinni Fíaskó. Ég
byrjaði að taka hana upp árið 1999
og hún var svo frumsýnd árið 2000.“
Myndin vakti töluverða athygli
á sínum tíma og hlaut meðal ann-
ars Edduverðlaun auk þess að hljóta
verðlaun á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Kaíró sem er svokölluð
A-hátíð. Ragnar segir að hugmyndin
að handritinu hafi verið sambland af
ýmsu sem vakti athygli hans á þess-
um tíma. „Meðal annars voru það
trúmál og hræsni,“ en myndin segir
nokkrar sögur sem tvinnast í eina og
þar á meðal leikur Eggert Þorleifs-
son trúarsafnaðarleiðtoga sem er
gerspilltur og óheiðarlegur. „Í raun
var Fíaskó þó bara lítil ástarsaga sem
gerist í Reykjavík.“
Eftir Fíaskó segir Ragnar að
áherslan hafi verið aðallega á leiknu
efni. Í kjölfarið á Fíaskó gafst Ragn-
ari tækifæri til að leikstýra hinum
ógleymanlegu gamanþáttum Fóst-
bræðrum sem að öllu jöfnu eru tald-
ir með bestu íslensku grínþáttunum
fyrr og síðar. „Ég leikstýrði fimmtu
og síðustu þáttaröðinni og það var
auðvitað frábært tækifæri. Á svipuð-
um tíma gerði ég líka einn hluta af
myndinni Villiljós,“ og segir Ragnar
að við vinnslu Fíaskó, Fóstbræðra og
Villiljósa hafi hann kynnst mörgu af
því fólk sem hann hefur unnið mest
með síðan.
Langur aðdragandi að Börnum
og Foreldrum
Það var um þetta leyti sem Ragn-
ar fór að leggja drögin að mynd-
unum Börn og Foreldrar með leik-
hópnum Vesturporti. „Ég gerði
heimildarmynd um sýningu Vestur-
ports á Rómeó og Júlíu í London sem
vakti mikla athygli á sínum tíma.
Myndin hét Love Is In The Air en
sýningin tafði í rauninni gerð Barna
og Foreldra um eitt ár,“ segir Ragn-
ar en hann var byrjaður að skipu-
leggja myndirnar með leikhópnum
áður en boðið um að sýna í London
kom til.
„Ég þekkti marga af helstu leik-
urunum áður en ég gerði Love Is In
The Air. Til dæmis fann ég Nínu og
Gísla þegar þau voru ennþá í leik-
listarskólanum og þau léku í mín-
um parti af Villiljósum. Þá lék Ólaf-
ur Darri í Fíaskó þannig að þetta var
allt komið af stað,“ segir Ragnar en
handrit myndanna skrifaði Ragnar
ásamt leikurunum myndanna.
„Ég og þrír aðalleikararnir úr
hvorri mynd erum titluð sem hand-
ritshöfundar myndanna en það er í
raun allur leikarahópurinn sem kom
að handritinu.“ Ragnar segir að hver
og einn leikari hafi borið ábyrgð
á sinni persónu og fengið að ráða
ýmsu í sambandi við hana.
Gagnvirk kvikmyndagerð og
Næturvaktin
Ragnar segir að samspil hans
við leikarana sé eitt það mikilvæg-
asta í vinnuferli sínu og sé lykillinn
að góðu samstarfi. „Ég reyni mik-
ið að brjóta upp þetta egósentríska
umhverfi sem leikstjórar hafa í kvik-
myndabransanum. Leikstjórar hafa
oft á tíðum hálfgert einræðisvald,“
og segir Ragnar það ranga og óheill-
andi nálgun á kvikmyndagerð. „Mér
finnst það mjög undarlegt í ljósi þess
að kvikmyndagerð er hópíþrótt og
eitthvað sem einn maður gæti aldrei
framkæmt. Þetta er svolítið gömul
hugsun og á kannski frekar við rit-
höfundinn eða málarann þó að auð-
vita þurfi alltaf að setja nafn einhvers
við myndina.“
Ragnar segir að gerð myndanna
Barna og Foreldra hafi því ver-
ið mjög opið ferli og gagnvirkt en
Ragnar segist ætla að halda áfram að
KviKmyndagerð
er hópíþrótt
Leikstjórinn Ragnar Bragason hefur gert
það gott undanfarin misseri með myndun-
um Börn og Foreldrar. Börn hreppti ný-
lega aðalverðlaun alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Kaupmannahöfn en hún
hafði áður hlotið verðlaun víðs vegar um
heim. Ragnar undirbýr þessa dagana ára-
mótaskaupið auk þess sem hann vinnur
að nýrri kvikmynd sem tökur eiga að
hefjast á næsta haust. Ragnar segist reyna
að brjóta niður hið hefðbundna form leik-
stjórnar og leggur alla áherslu á samspil
við leikara og samstarfsmenn.
ÆtLaði að veRða RithöFuNduR
Áhugi ragnars á kvikmyndagerð
kviknaði óvænt í menntaskóla.
dv myNdiR áSGeiR