Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2007, Blaðsíða 49
DV Helgarblað Föstudagur 5. október 2007 49
KviKmyndagerð
er hópíþrótt
vinna eftir þeim leiðum og hefur þeg-
ar gert það. „Það var sama upp á ten-
ingnum við gerð Næturvaktarinnar,“
segir Ragnar um gamanþættina sem
eru sýndir á Stöð 2 um þessar mund-
ir. „Við erum fimm handritshöfundar
að þáttunum,“ segir Ragnar og nefn-
ir sjálfan sig, Jón Gnarr, Pétur Jóhann
Sigfússon og Jörund Ragnarsson sem
leika aðalhlutverkin auk Jóhanns
Ævars Grímssonar sem meðal ann-
ars skrifaði handritið að Astrópíu.
„Við byrjuðum síðasta haust og sett-
umst þá fimm niður og skrifuðum
handritið saman. Við bjuggum til
persónurnar og þá atburði sem við
vildum að myndu gerast í þáttun-
um,“ og segir Ragnar að undirbún-
ingsferlið hafi verið mjög skemmti-
legt. „Í kjölfarið á því fórum við að
taka upp og spinna í senur,“ en þó
það geti virkað þunglamalegt að hafa
marga handritshöfunda segir Ragnar
að það gangi betur upp ef leikararn-
ir eru með því þeir þurfa þá að fylgja
því sjálfir eftir á tökustað.
Ragnar er mjög sáttur við þau við-
brögð sem Næturvaktin hefur fengið
og og segir ekki hafa staðið á þeim.
„Það var mjög spennandi að sjá
hvernig þetta gengi upp því þættirn-
ir eru ekki eins og íslenskir grínþætt-
ir eru yfirleitt,“ og á Ragnar þá við
hið svokallaða sketsaform sem hefur
einkennt íslenska grínþætti eins og
Fóstbræður, Spaugstofuna, Stelpurn-
ar, Svínasúpuna og áramótaskaup-
in. „Þættirnir hafa upphaf, miðju og
endi. Þannig að þeir segja einhverja
samliggjandi sögu.“
Gullni svanurinn sætur
Eins og áður hefur komið fram
hefur Börn unnið til nokkurra verð-
launa. Ragnar fékk leikstjóraverðlaun-
in á Transilvaníuhátíðinni í Rúmeníu
og Ólafur Darri var valinn besti leik-
arinn á hátíð í Rússlandi svo fátt eitt
sé nefnt. Nú síðast hreppti myndin
Gullna svaninn í Kaupmannahöfn
en það eru aðalverðlaun alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar þar í borg.
„Gullni svanurinn var alveg sér-
lega sæt verðlaun. Ástæðan er sú að
á mörgum hátíðum er verið að ein-
blína á að sýna nýjar myndir eða
myndir sem hafa ekki verið sýndar
neins staðar áður en hátíðin í Kaup-
mannahöfn einbeitir sér bara að því
að sýna brot af því besta það árið og
því verðlaunin ennþá sérstakari fyr-
ir vikið.“ Auk þess að hafa hlotið öll
þessi verðlaun erlendis hreppti Börn
einnig ein Edduverðlaun á síðasta ári
en var tilnefnd til átta.
Ragnar segir að þrátt fyrir að Börn
hafi það sem af er fengið fleiri verð-
laun hafi myndin Foreldrar í raun
verið sýnd á betri kvikmyndahátíð-
um. „Foreldrar hefur verið sýnd til
dæmis á kvikmyndahátíðinni í Rott-
erdam sem flokkast undir A-hátíð.
Þá á Foreldrar einnig eftir að fara á
um tíu hátíðir í viðbót á næstu mán-
uðum og því allt opið ennþá,“ segir
Ragnar en auk þess keppir Foreldrar
til Edduverðlaunanna í ár.
Gerir skaupið í ár
Þrátt fyrir velgengnina undanfar-
ið ætlar Ragnar ekkert að slaka á og
er með nokkur járn í eldinum. „Þessa
dagana er ég að undirbúa áramóta-
skaupið,“ en þessi rótgróni sjónvarps-
viðburður er iðulega einn sá stærsti
ár hvert. „Þegar maður fær eitthvað
svona rótgróið verkefni í hendurn-
ar vill maður gjarnan hrista aðeins
upp í því og ég stefni á að gera skaup
sem að fólk hefur ekki séð áður,“ segir
Ragnar en hann fær hjálp frá tveim-
ur af handritshöfundum Næturvakt-
arinnar við gerð þess. „Þeir Jón Gnarr
og Jón Ævar skrifuðu fyrsta hluta
handritsins og tökur fara að hefjast
bara á næstu vikum,“ en Ragnar úti-
lokar ekki að fleiri handritshöfundar
bætist við hópinn seinna meir. Ragn-
ar stefnir á að hafa ný andlit í skaup-
inu þó svo að mörgum af reyndustu
grínurum landsins muni bregða fyr-
ir. „Við búum í það litlu samfélagi að
leikararnir eru nú ekki það marg-
ir. Auk þess að leikari þarf að hafa
ákveðna hæfileika til þess að vera
fyndinn þannig að auðvitað verður
mikið af kunnuglegum andlitum.“
Kvikmynd næsta haust
Undirbúningsvinna að næstu
kvikmynd Ragnars er einnig hafin og
býst hann við því að hefja tökur næsta
haust. „Ég er með tvö handrit í hönd-
unum. Eitt sem ég er búinn að klára
og annað sem ég er að vinna í,“ en
þó svo að Ragnar skrifi handritið að
þessu sinni segist hann ætla að halda
áfram að nýta sér þá vinnuhætti sem
hann hefur notast við í gegnum tíð-
ina. „Samspil mitt við leikarana mun
halda áfram. Bæði til þess að fá það
besta út úr hverjum og einum og svo
er þetta hópíþrótt eins og ég nefndi
áður,“ en Ragnar vill ekkert gefa upp
um söguþráð handritanna að svo
stöddu.
Ragnar segir að fjármögnun á
verkefninu sé á frumstigi en að und-
irbúningsvinnan sé komin vel af
stað. „Grunnvinnan og undirbún-
ingurinn eru aldrei ofmetin í þessari
starfsgrein. Þau eru undirstaðan að
öllu og lykillinn að góðu verki,“ seg-
ir Ragnar sem flýtir sér hægt. Ragnar
segist hafa lært það fljótt að í þessum
bransa sé aldrei hægt að hengja sig
á eitt verkefni. „Maður verður eigin-
lega að vinna fimm ár fram í tímann.
Það þýðir ekki að hengja sig á eitt-
hvert eitt verkefni og setja allt púður í
það. Svo dettur það kannski upp fyr-
ir og þá er allt í volli. Maður verður
að vera með nokkra bolta í gangi og
sjá hver hittir í mark,“ segir Ragnar að
lokum óþreyjufullur að hefja næsta
verkefni. asgeir@dv.is
Foreldrar Á eftir að fara á tíu kvikmynda-
hátíðir á næstu mánuðum.
Börn Hefur farið sigurför um evrópu.
Gullni svanurinn í höfn ólafur darri ólafsson, Nína dögg Filippusdóttir, ragnar
bragason og gísli örn garðarsson.
RaGnaR BRaGason
segir kvikmyndagerð vera
hópíþrótt og leggur mikla áherslu
á samspil við samstarfsfólk.