Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 4
Löður er með Rain-X
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Bjarni tekur við af Jónasi Þóri
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hvöss A-átt. Rigning sA-lAnds,
en ÞuRRt noRðAntil. HlýnAR í Bili.
HöfuðBoRgARsvæðið: Milt og lítilsháttar
væta. snýst í sv-átt uM kvöldið.
KólnAR og él sunnAn- og
suðvestAnlAnds. BiRtiR upp n-til.
HöfuðBoRgARsvæðið: hiti undir
frostMarki og dálítil él.
HvessiR Af A ÞegAR líðuR á dAginn og feR
smám sAmAn HlýnAndi.
HöfuðBoRgARsvæðið: strekkingur og sMá
rigning eða slydda síðdegis.
snjóar sv-lands á laugardag
greinileg umskipti eru að eiga sér stað
þessa dagana í veðrinu. sa- og a-átt með
vægum blota verður ríkjandi veðurlag
langt fram í næstu viku. Þó nær kaldara
loft úr vestri tökum á laugardag og fram
á sunnudag, en síðan hlýnar
aftur. spáð er éljum eða jafnvel
snjókomu um tíma suðvestan-
og vestanlands á laugardag.
Þurrt hins vegar að mestu á
sunnudag. Þá er spáð a- og
sa-stormi og úrkomusvæði
nálgast úr suðri með rigningu
um kvöldið.
4
0 -2
1
3
-2
-2 -3 -4
-2
-1
-5 -8 -7
1
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Börnum í 4. bekk kópavogsskóla fannst gaman að læra tölvuleikjaforritun.
samstarf við stærsta
eignastýringarfyrirtæki
heims
víB, eignastýringarþjónusta íslandsbanka,
hefur undirritað samstarfssamning við
Blackrock, stærsta eignastýringaraðila
heims. Með samstarfinu eykst enn frekar
fjölbreytni vöru- og þjónustuframboðs víB
á sviði eignastýringarþjónustu á erlendum
mörkuðum, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu íslandsbanka.
„Blackrock býður mjög fjölbreytt úrval
vöru og þjónustu á sviði eignastýringar
sem spannar sex heimsálfur, hlutabréfa-
sjóði, skuldabréfasjóði, hrávörusjóði,
fasteignir og aðra sérhæfðari sjóði sem
henta fagfjárfestum sérstaklega vel.
vegna fjármagnshafta gefst einungis
viðskiptavinum sem eiga erlendar eignir
eða hafa heimild til endurfjárfestingar í
erlendum verðbréfum kostur á að fjárfesta
í vörum BlackRock. Samstarfið er liður í
stefnu víB að bjóða viðskiptavinum, sem
í dag eiga erlendar eignir, sterkt vöru og
þjónustuframboð, sem mun vonandi sem
fyrst nýtast öllum viðskiptavinum víB
þegar fjármagnshöft verða afnumin,“ segir
enn fremur.
„ég er mjög stoltur af því að Blackrock,
stærsti og einn af virtustu eignastýringar-
aðilum heims hafi valið okkur til samstarfs
á íslandi. samkvæmt könnun Capacent
myndu flestir velja að leita til VÍB og Ís-
landsbanka eftir eignastýringarþjónustu
eða 31% og er samstarfið við BlackRock
liður í því að halda áfram að vera leiðandi
í þjónustu til viðskiptavina. við vonum svo
sannarlega að þess sé ekki langt að bíða
að íslenskir sparifjáreigendur og fagfjár-
festar geti nýtt sér þjónustu Blackrock og
víB erlendis í auknum mæli,“ segir stefán
sigurðsson, framkvæmdastjóri víB.
í tilkynningu bankans kemur fram að
Blackrock sé stærsta eignastýringar-
fyrirtæki heims með um 3.800 milljarða
Bandaríkjadala í stýringu og starfsemi í
30 löndum. Starfsmenn BlackRock eru yfir
10 þúsund en margir af stærstu lífeyris-
sjóðum og tryggingafélögum heims nýta
eignastýringarþjónustu Blackrock. -jh
sjóður Forritarar Framtíðarinnar
Grunnskólar landsins vilja
efla sína tækniþekkingu
Mun fleiri umsóknir bárust sjóðnum „Forritarar framtíðarinnar“ en búist var við sem sýnir að
áhugi á tækniþekkingu innan grunnskóla og framhaldsskóla er mjög mikill. fyrirtæki geta lagt
sjóðnum lið með fjárframlögum, tæknibúnaði, þekkingu og ráðgjöf til að efla íslensk ungmenni.
m óttökurnar fóru fram úr okkar björtustu vonum. Opið var fyrir umsóknir í fyrsta skiptið og við vissum ekki við hverju mætti
búast. Ég hafði gert mér í hugarlund að vera ánægður
með um 20 umsóknir en þetta fór alveg í 49 umsóknir,“
segir Guðmundur Tómas Axelsson, markaðs- og sam-
skiptastjóri Reiknistofu bankanna, um fjölda umsókna
sem bárust í sjóðinn „Forritarar
Framtíðarinnar“.
„Sumir skólar eru nánast á
byrjunarreit og aðrir eru komnir
þó nokkuð lengra þannig að hug-
myndin hjá okkur er að reyna að
hjálpa einhverjum að komast af
stað og svo að hjálpa þeim sem
eru lengra komnir að komast á
næsta skref. Umsóknirnar voru
fjölbreyttar. Við fengum um-
sóknir frá skólum sem ekki voru
vissir um að hverju þeir væru að
leita að nákvæmlega og frá skól-
um sem sóttu um ákveðna pakka
sem voru í boði sem var allt frá
því að þjálfa kennara, setja upp
forritunarnámskeið eða fá nýjan
vélbúnað eins og tölvur og skjái,“
segir Guðmundur.
Hugbúnaðarfyrirtækið Skema hefur verið að sér-
hæfa sig í ákveðinni aðferðarfræði við kennslu í for-
ritun fyrir börn og hefur þjálfað grunnskólakennara
til að kenna með góðum árangri. Í framhaldinu hafi
kennarar sett slík námskeið á námsskrá með aðstoð frá
Skema.
„Eitt af vandamálunum er að kennarar eru oft
smeykir og upplifa að nemendur séu með meiri þekk-
ingu en þeir sjálfir sem og að aðstaðan og tölvurnar
séu oft ekki nógu góðar. Margir eru áhugasamir og
þeir sem hafa farið í þessa þjálfun hafi opnað augun
fyrir þessu. Það er ekki eins stórt mál og þeir héldu,“
segir Guðmundur. Mun fleiri umsóknir bárust sjóðnum
en búist var við og nú þarf sjóðurinn „Forritarar fram-
tíðarinnar“ að fá fleiri bakhjarla til að leggja fjármagn í
verkefnið því að eftirspurnin er alveg gífurleg.
„Það er mikill áhugi í skólum og margir eru aðeins
með úreltan tækjakost. Þess vegna getur það verið
ómetanlegt fyrir skóla að fá 3ára gamlar vélar. Fyrir-
tækin sem eru að leggja verk-
efninu lið eru kannski að endur-
nýja tölvurnar sínar á 2 til 3
ára fresti og það er gull fyrir
skólana,“ segir Guðmundur.
„Við fórum í samstarf við
Skema síðasta sumar og þeir
komu og tóku að sér forritunar-
kennslu fyrir börn í 4. bekk hjá
okkur. Það er komin reynsla á
það og við sóttum um styrk í
framhaldinu af því. Krökkunum
fannst þetta prýðilega skemmti-
legt því að þeir fengu að gera
hluti sem þeir hafa ekki fengið
að gera áður og allt í einu þurfa
þeir að horfa til þess sem kemur
út úr leiknum í stað þess að láta
leikinn stýra sér. Mér finnst frá-
bært að þessi sjóður sé kominn og þarna eiga skólarnir
möguleika á að sækja um og fá aðstoð sérfræðinga,“
segir Guðmundur Ólafur Ásmundsson, skólastjóri í
Kópavogsskóla.
Bakhjarlar sjóðsins eru Nýherji, Íslandsbanki,
Landsbankinn, Microsoft, Reiknistofa bankanna, Cyan
veflausnir og CCP. Fyrirtæki af ýmsum stærðum geta
lagt sjóðnum lið með fjárframlögum, tæknibúnaði,
þekkingu og ráðgjöf til að efla enn frekar tækniþekk-
ingu íslenskra ungmenna.
maría elísabet pallé
maria@frettatiminn.is
Frumyfirferð á umsóknum í sjóðinn Forritarar framtíðarinnar:
Helstu niðurstöður
Umsóknir voru samtals 49.
Þær skiptust þannig eftir landshlutum:
Ein umsókn var frá framhaldsskóla og þrjár frá skólaskrifstofum.
Alls er sótt um allt að 930 tölvur/spjaldtölvur, forritunarkennslu fyrir 2.700 nemendur og 340
kennara.
Þrjár umsóknir bárust of seint og ein var sögð ekki hafa skilað sér. Gefið var tækifæri til að senda
hana inn aftur.
sKipting umsóKnA eftiR lAndsHlutum
Jónas Þórir Þórisson sem hefur
verið framkvæmdastjóri hjálpar-
starfs kirkjunnar frá 1990 hefur látið
af störfum. Eftirmaður hans í starfi er
Bjarni gíslason. „ég er fyrst og fremst
þakklátur eftir öll þessi ár, bæði guði og
mönnum. ég vil þakka öllum þeim sem
hafa stutt starfið af trúfesti. Ég hef verið
þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa með
góðu starfsfólki, sjálfboðaliðum og fólki
í stjórn hjálparstarfsins, án þeirra væri
starfið ekki eins öflugt og raun ber vitni,“
sagði Jónas þegar hann afhenti Bjarna
lyklavöldin með því að afhenda honum
skiptilykil og bætti við „skiptilykillinn
er til merkis um að starfið þarf að vera
sveigjanlegt og þróast áfram og þannig
finna lausnir og opna nýjar dyr.“
starf framkvæmdastjóra var auglýst
í lok september. 69 sóttu um starfið.
Bjarni gíslason sem verið hefur fræðslu-
og upplýsingafulltrúi hjálparstarfsins í 6
ár, var ráðinn. hann er kennari að mennt,
hefur lokið námi í endurmenntun hí í
verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun og
námi í þróunarfræðum, viðbótardiplóma,
við hí. hann hefur áralanga reynslu af
störfum í afríku og við kennslu.
hjálparstarf kirkjunnar veitir aðstoð
um allt land og er með verkefni á ind-
landi og afríkulöndunum eþíópíu, Malaví
og Úganda.
Bjarni gíslason tekur við skiptilykli af
Jónasi Þóri Þórissyni.
4 fréttir helgin 10.-12. janúar 2014