Fréttatíminn - 10.01.2014, Page 10
tímanlega. Ekki geyma það til síðasta dags
skila atkvæði þínuMundu að
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. janúar
22. janúar er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
É g hef fundið fyrir jákvæð-um straumum en maður veit aldrei í þessum stjórnmálum. Ég og við
í Samfylkingunni í borgarstjórn
erum ekki búin að vera sýnilegust
af öllum en við höfum verið að vinna
að hlutum sem skipta miklu máli,
húsnæðismálum, betri skólum og
velferð. Ég held að fólk kunni að
meta þá festu og stöðugleika sem
einkenna stjórn borgarinnar og að
við höfum tekið á málum Orku-
veitunnar. Við höfum unnið sem
einn hópur með Besta flokknum
og samstarfið hefur gengið mjög
vel. Kannski er það ekki órökrétt
í hugum borgarbúa í framhaldi af
samstarfi okkar Jóns Gnarr að ég
taki við,“ segir Dagur B. Eggerts-
son, oddviti Samfylkingarinnar í
borginni, en flestir nefndu hann í
vali á næsta borgarstjóra eða 33,
1%, samkvæmt könnun sem fram-
kvæmd var um miðjan nóvember
síðastliðinn af Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.
11,7% nefndu Halldór Halldórsson
og 10,9% Júlíus Vífil Ingvarsson.
Stíft vaktaplan heima við
Dagur er hamingjusamlega kvænt-
ur faðir fjögurra barna á aldrinum
tveggja til níu ára. Kona hans er
Arna Dögg Einarsdóttir, sérfræði-
læknir á Landsspítalanum. Dagur
kynntist Örnu með í gegnum
systur hennar sem hann var með
í læknanáminu og segir hann að
það hefði verið ást við fyrstu kynni.
„Það var eins og það sem maður
les um í bókum, það bara small...
og eftir fyrsta kossinn þá spurði ég
hana hvað hún vildi eignast mörg
börn,“ segir Dagur.
Arna og Dagur gegna bæði mjög
annasömum ábyrgðarstörfum og
þurfa að fylgja stífu vaktaplani
heima við eins og í vinnu til þess
að láta allt ganga upp. „Það gengur
furðuvel annars værum við ekki
í þessu en þetta er eilíft púsluspil
og það reynir oft á og það kallar
á meiri skipulagshæfileika sem
við vissum ekki að við höfðum,“
segir Dagur. „Það er auðvitað alveg
ótrúlegur fjársjóður að eiga börn
en líka rosalega mikil vinna og
Borgin þarf
að draga
vagninn inn
í framtíðina
Dagur B. Eggertsson telur
hreinskiptni skipta mestu
máli hjá stjórnmálamönnum.
Hann lýsir stjórnmálaferli
sínum sem rússíbana og segir
að borgin skipti meira máli
en fólk geri sér grein fyrir í
heildarsamhenginu. Í borginni
finnst honum árangur af vinnu
sinni áþreifanlegri og þá er
hann hamingjusamur.
Framhald á næstu opnu
Dagur með börnum
sínum, Ragnheiði
Huldu og Steinari
Gauta, á heimili sínu í
Þingholtunum.
Mynd/Hari
10 viðtal Helgin 10.-12. janúar 2014