Fréttatíminn - 10.01.2014, Side 23
„Svona eins og það geti varla verið
að neinn taki þessa ákvörðun,“ segir
Rósa og bendir á að það sé eins og
einhverjir upplifi barnleysið sem
svik við hugsjónina. „Hreinlega svik
við viðhald mannkyns. En það er
ljóst að leið okkar um lífið
hefði verið öðruvísi ef við
hefðum ákveðið að eignast
börn saman,“ segir hún.
Rósa talar almennt ekki
mikið um þessa ákvörðun
sína en þegar hún gerir það
eru viðbrögðin yfirleitt já-
kvæð. „Fólk verður frekar
forvitið en hitt. Ég fæ þau
viðbrögð að þetta sé alltaf
að verða algengara þegar
fólk hefur þetta val og
finnst í sjálfu sér virðingar-
vert að standa með þeim
ákvörðunum.“
Einstök yfirsýn af
toppnum
Nánd þeirra Páls og
Rósu birtist á fjölbreyti-
legan hátt en atvik sem
átti sér stað við Síðu-
jökul er afar lýsandi. Páll
rifjar upp að þau hafi
verið þar með nokkrum
göngufélögum og að-
stæðurnar hafi verið
erfiðar við jökulröndina. „Þar er
ís undir jörðinni, vatn kemst ekki
í burtu og því myndast hálfgert
fenjasvæði og drullupyttir. Ég og
félagi minn vorum komnir upp
á jökulinn og biðum efir hinum
þegar við sjáum Rósu sökkva
ofan í drulluna. Hún var komin
upp á mið læri þegar maðurinn
við hliðina á mér fór að ókyrr-
ast á meðan Rósa byltist um í
leðjunni. Hann ýtti loks við mér
og spurði hvort við ættum ekki
fara að hjálpa henni en ég sagði:
„Nei, hún myndi ekki vilja það.“
Og það var líka alveg satt því ef
við hefðum hjálpað henni þá hefði
hún ekki leyst verkefnið sjálf.
Við vorum alveg í kallfæri og ef
hún hefði viljað hjálp þá hefði hún
kallað. Sýn manns-
ins var hins vegar
blinduð af því að
þeirri staðalmynd að
alltaf þegar konur eru
vandræðum þá eigi
karlmenn að koma
og hjálpa þeim. Rósu
tókst sjálfri að losa sig
og komst til okkar af
sjálfsdáðum.“
Rósa segir fjall-
göngurnar gefa sér
mikið og á mjög fjöl-
breytilegan hátt.
„Fjallstoppurinn er
markmið í svo marg-
víslegum skilningi,
hann er andlegt
markmið ekki síður
en líkamlegt. Þegar
þú nærð markmiðinu
færð þú yfirsýn sem
þú færð hvergi annars
staðar en af toppnum.
Ég held að því oftar
sem fólk sér hlutina
frá nýju sjónarhorni af
toppnum því meiri líkur á að það
yfirfæri þá hugsun á fleiri þætti
lífsins. Það sem við kennum fólki
sem fer í ferðir með okkur er
að það er hins vegar ekki síður
mikilvægt að finna hvar mörkin
liggja, hvort sem þau eru hjá þér
eða í aðstæðunum. Að kunna að
snúa við er ekki síður mikilvægt
en að fara á toppinn. Sennilega er
mikilvægara að læra að snúa við.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Við lágum
þá saman
úti í tjaldi í
þrjár vikur,
fengum
matarsend-
ingar tvisvar
og vorum
alltaf í sömu
fötunum.
ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNAR SJÓÐI
AURORU Í APRÍL 2014
���������������
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN UM SÓKNUM
RENNUR ÚT 15. FEBRÚAR
HÖNNUNARSJÓÐUR Auroru hefur að mark miði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og
arkitektum fjárhags lega aðstoð� Nánari
upplýsingar um út hlutaða styrki og leið
beiningar vegna um sókna er að finna á
www.honnunarsjodur.is� Umsóknir og
fyrir spurnir sendist á info@honnunarsjodur.
is�Hönnunarsjóður Auroru
viðtal 23 Helgin 10.-12. janúar 2014