Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Side 24

Fréttatíminn - 10.01.2014, Side 24
24 fjölskyldan Helgin 10.-12. janúar 2014 Umbætur Upphaf að einhverju nýju Þ egar fólk er komið á efri ár er það gjarnan beðið um að líta yfir farin veg og segja hvað það hefði viljað gera öðruvísi í lífinu ef það fengi tækifæri til að lifa því upp á nýtt. Ýmislegt er tínt til. Margir segjast hafa viljað ferðast meira, verið óhræddari við að standa með sjálfum sér eða hafa átt meiri tíma með fjölskyldunni og unnið minna. Óhætt er að segja að sumir eiga fárra kosta völ og neyðast til að vinna mikið, jafnvel langtímum saman fjarri fjölskyldu sinni til að geta séð fyrir sér og sín- um. Margir Íslendingar þekkja vel þungar greiðslubyrðar af lánum. Aðrir kjósa að helga sig vinnunni og láta fjölskyldu og vini mæta afgangi vegna „aðkallandi verkefna“ sem engan enda virðist taka. Bæði ríki og mörg sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir hafa komið sér upp fjöl- skyldustefnu og sýnt vilja til að reyna koma á móts við þarfir foreldra á vinnu- markaði s.s. með samræmdum starfsdögum í leik- og grunnskóla og með sveigj- anlegum vinnutíma sem er hið besta mál. Stundum geta þó ákvarðanir þessara aðila skapað vanda fyrir fjölskyldur sem hafa þá lítið svigrúm til að ákveða hvað hentar þeim sjálfum. Nefna má sem dæmi þegar fólk er skikkað í sumarfrí á ákveðnum tíma, sumarlokanir leikskóla og ákvarðanir íþróttafélaga, stundum án samráðs við foreldra um að keppa eigi á Sel- fossi um helgina og svo á Seltjarnarnesi helgina þar á eftir. Auðvitað er allt gott og blessað við að börn fái sumarfrí og taki þátt í íþróttum en þurfi allir að vera í fríi á sama tíma og af hverju þarf allar þessar keppnir, sérstaklega fyrir yngri deild- irnar? Eins og með annað finnst sumum þessar keppnir bæði ómissandi og bráð- skemmtilegar og sumarfrístíminn hentar þeim vel sem og sumarlokanir leikskóla. Aðrir hafa minni áhuga og langar að gera eitthvað allt annað með börnunum um helgar eða taka frí á öðrum tíma með þeim, en láta sig hafa það að taka þátt og þegja þunnu hljóð af ótta við að vera álitnir fremur lélegir foreldrar. Flestir foreldrar vilja vera með börnum sínum í sumarfríi og hvetja þau áfram í íþrótt- um eða í tómstundum en vilja hinsvegar fá að hafa eitthvað um það að segja hvar og hvenær. Það er ekki sjálfgefið að foreldrar, stjúpforeldrar eða fósturforeldrar geti fengið sumarfrí eða mætt á mót á þeim tíma sem bæjarstjórn eða íþróttafélagið ákveður hverju sinni. Fjölskyldur þurfa að geta átt meira val um hvernig þær ráðstafa tíma sínum og peningum. Með reglulegum könnunum er hægt að komast að hvað hentar – og hvernig er hægt að koma á móts við ólíkar þarfir fólks. Ólíklegt er að hægt sé að koma á móts við þær allar – en það er gott að geta átt val og taka þann kost sem hentar best. Stundum virðist okkur líka skorta fjölskylduvæna stefnu á heimilinu sem gerir ráð fyrir óskiptri athygli fjölskyldumeðlima og þar er lítið við aðra að sakast nema þá okkur sjálf. Víða eru mörkin milli einkalífs og starfs óljós. Við getum látið sem við séum að taka þátt í samræðum eða að horfa á sjónvarpið með fjölskyldunni með því að muldra reglulega „aha“ og brosað en verið í raun andlega fjarverandi – á kafi í excelskjalinu eða verið að svara „aðkallandi“ tölvupóstum. Fólk getur líka verið andlega fjarverandi á heimili þó það sé ekki á kafi í vinnu en auðvelt er að týna sér í feisbúkk, kandíkruss eða tölvuleikjum, vanti sjálfsstjórn. Samkeppni barna um óskipta athygli foreldra og foreldra um athygli barna sem og maka getur því stundum verið hörð vanti stefnu á heimilinu um tölvunotkun. Mörgum hefur reynst vel að ákveða saman í fjölskyldunni hve miklum tíma fólk ver í tölvunni og þá hvar og hvenær. Svo getur verið hjálplegt að hver og einn segi til um hvernig hann vilji láta minna sig á – hafi hann gleymt sér. Í stað þess að líta á umkvartanir sem nöldur sem vert er að reyna leiða hjá sér – má líta á þær sem tækifæri til umbóta. Upphaf að einhverju nýju. Fjölskyldustefna er því ekki bara eitthvað sem aðrir eiga að sjá um – hún er líka í höndum okkar sjálfra. Gleðilegt ár! Fjölskyldustefna er því ekki bara eitthvað sem aðrir eiga að sjá um – hún er líka í höndum okkar sjálfra. Fjölskyldustefna er líka í höndum okkar sjálfra Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari heimur barna Mörgum hefur reynst vel að ákveða saman í fjölskyldunni hve miklum tíma fólk ver í tölvunni og þá hvar og hvenær. Það er alltaf gaman og skemmtileg tilbreyt- ing að fara í skreppitúr út fyrir borgarmörkin þegar vinnuviku líkur og fá að upplifa smá náttúru til tilbreytingar. Nú yfir vetrartímann er auðvitað gráupplagt að kíkja á skíði með alla fjölskylduna en þegar fjöllin eru lokuð er ýmislegt annað hægt að gera. Öll börn hafa gaman af því að fara í sund og sundferð er ódýr og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Grundarhverfi á Kjalarnesi er lítil perla rétt við borgarmörkin sem býður upp á fallegar gönguleiðir og sérstaklega fallega fjöru sem öll börn geta haft gaman af að dunda sér í við fjársjóðsleit. Grundarhverfi býður auk þess upp á eitt best geymda leyndarmál borgarinnar en þar er Klébergslaug. Laugin er sú eina á Stór- Reykjavíkursvæðinu sem liggur í fjöruborði og jafnframt sú eina sem býður upp á aðstöðu til sjósunds en þar hittist hópur ofurhuga til að baða sig í sjónum alla sunnudaga klukkan ellefu. Við hliðina á sundlauginni er svo íþróttasalur sem nú á laugardaginn býður upp á ókeypis leiktíma fyrir fjölskylduna frá klukkan 11 til 12. Klébergslaug er opin frá 11 til 15 um helgar yfir vetrartímann. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  Sund eina laugin í reykjavík við Sjávarbakka Skreppitúr á Kjalarnes með börnunum Sjósundsaðstaða í fjör- unni við Klébergslaug. SUÐRÆNSveifla Suðræn sveifla er skemmtileg líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri. Námskeiðið byggist upp á mjúkri upphitun, latin dönsum eins og Cha Cha, Jive, Salsa og fl., ásamt kviðæfingum og góðri slökun. Hver tími er 60 mínútur og kennt er tvisvar sinnum í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 í leikfimissal Hvassaleitisskóla. Kennari er Birgitta Sveinbjörnsdóttir danskennari. Skráning er hafin á námskeiðið sem hefst þriðjudaginn 14. Janúar. Upplýsingar og skráning í síma: 899-8669 Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum, langflestir á aldrinum 40 ára og eldri. • 10 getustig með áherslu á tal • Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar • Styrkt af starfsmenntasjóðum Skráning stendur yfir í síma 8917576 og erlaara@gmail.com Enskuskóli Erlu Ara - Let‘s speak English www.enskafyriralla.is Sumarið 2014 verður boðið upp á námsferð til Englands, bæði fyrir unglinga og fullorðna. Kvennaleikfimin í Fossvogi „Fimleikafjólurnar“ Leikfimi fyrir 50 ára og eldri á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17 í íþróttasal Fossvogsskóla. Vorönn á aðeins 16.000 kr. Tímabil frá 14. janúar til 29. apríl. Kennari: Ásdís Halldórsdóttir íþróttafræðingur og ýmsir gestakennarar. Nánari upplýsingar í síma 777-2383

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.