Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 48
48 skák og bridge Helgin 10.-12. janúar 2014
Skák MagnuS CarlSen og ViShy anand, tVær goðSagnir
Norska undrið – og indverska byltingin
h ver er skákmaður ársins? Jæja, hvað með 23 ára gamlan Norð-
mann, sem bar sigurorð af
heimsmeistaranum Anand og
teflir af slíkum styrkleika að
sérfræðingar telja að Magn-
us Carlsen hafi byrjað nýtt
tímabil í skáksögunni. Hvorki
meira né minna.
Þetta ævintýrasaga. Nor-
egur var ekki mikið skákríki,
lengstum. Íslendingar gátu um
nokkurt árabil státað af fleiri
stórmeisturum en allar aðrar
þjóðir Norðurlanda samanlagt.
Danir áttu sinn sókndjarfa og sigursæla Lar-
sen, Svíar tefldu fram jafnteflisvélinni Ulf
Andersson og Finnar státaðu af hinum óbug-
andi Westerinen. Íslendingar áttu hinsvegar
sjálfan Friðrik Ólafsson, Guðmund Sigur-
jónsson, Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson,
Jón L. Árnason og Margeir Pétursson.
Norðmenn voru smáfiskar í skákheimum
þangað til Simen Agdestein stormaði fram
á sjónarsviðið. Agdestein er fæddur 15. maí
1967 og hefur afrekað margt, því hann spil-
aði næstum 100 leiki fyrir norska fótbolta-
landsliðið og raðaði inn mörkum. Hann var
giftur þingkonunni Marianne Aasen og
á með henni tvö börn – þau
skildu 2008, svo öllu sé til haga
haldið.
Simen Agdestein hefur unn-
ið þrekvirki við landvinninga
skáklistarinnar í Noregi. Hann
komst um skeið í hóp bestu
skákmanna heims og lamdi
þannig á íslenskum skákmeist-
urum að enn er munað. Hann
var sannkallaður Jóhannes
skírari skákarinnar í Noregi,
setti á stofn skákskóla og hef-
ur unnið þrotlaust að því að út-
breiða fagnaðarerindi skákar-
innar. Magnus Carlsen er einn
af nemendum hans.
Á dögunum kom út bókin „Carlsen´s As-
sault on the Throne“ eftir Grikkina Vassi-
los Kotronias og Sotiris Logothetis. Þetta
er sérlega vel skrifuð bók, innihaldsrík og
stútfull af upplýsingum, pælingum og frétt-
um af því hvernig okkar norski frændi varð
16. heimsmeistarinn í skák. Ekki fer á milli
mála að Simen Agdestein á mikinn þátt í því
að skapa „norska undrið“. Simen var þjálfari
stúfs, fyrirmynd, hvatning.
Bróðir fótboltakempunnar, Espen Agde-
stein, er framkvæmdastjóri Carlsens. Það er
fullt starf, enda er Carlsen einn af hundrað
áhrifamestu mönnum heims
að mati TIME, eftirsóttur í
alla vinsælustu sjónvarpsþætti
heims og fyrirsæta hjá þekkt-
um tískuhúsum. Svo er hann
orðinn auðkýfingur ofan á allt
saman, og enginn er líklegur til
að ógna veldi hans í bráð.
Í bókinni er ítarlega fjallað
um áskorendamótið í London
í fyrravor, en þar tefldu átta
ofurmeistarar um réttinn til að
þreyja einvígi við Anand. Alls
voru tefldar heilar 14 umferð-
ir, og þar endaði Carlsen sem
sigurvegari, hálfri hársbreidd
á undan hinum mikla Kramnik.
Indverska tígrisdýrinu hlýtur að hafa liðið
einsog bráð; kannski í fyrsta skipti síðan
Anand háði einvígi við jöfurinn Kasparov á
síðustu öld.
En gleymum því ekki: Anand hefur unn-
ið stjarnfræðileg afrek í þágu skákarinnar.
Hann er fyrsti stórmeistari Indlands – en þar
er einmitt vagga skáklistarinnar; þar fæddist
hin göfuga íþrótt fyrir 1500 árum eða svo. Í
kjölfar sigra Anands varð hann slík þjóðhetja,
að orð brestur til að lýsa. Hann var kjörinn
íþróttamaður aldarinnar – hvorki meira né
minna – á Indlandi og er dáður um gjörvallt
hið stórbrotna og margslungna
ríki. Þaðan kemur nú hvert
undrabarnið á fætur öðru.
Indversk börn og ungmenni
sópuðu til sín verðlaunum á
heimsmeistaramótinu á dög-
unum. Gull er í hávegum haft
á Indlandi, en gullverðlaun eru
næstum óþekkt, af einhverj-
um ástæðum: Indverjar áttu
engan heimsmeistara nema
Anand, ekki í nokkrum sköp-
uðum hlut. Hið mikla ríki hins
glóandi málms skartar aðeins
einum sigurvegara í gjörvallri
sögu Ólympíuleikanna, og það
var gullið í 10 metra bogfimi.
Indverjar eru í skáksárum, í bili, en Nor-
egur er hinsvegar á góðri leið með að verða
rétttrúnaðarríki skákgyðjunnar. Þar seljast
taflsett í búðum upp, jafnóðum. Allir helstu
fjölmiðlar eru undirlagðir af skák, og Magn-
us Carlsen gæti boðið sig fram sem kóngur.
Skólabörn flykkjast í skák, og í haust verður
sjálft Ólympíuskákmótið haldið í Tromsö.
Þangað mætir „litla Ísland“ – sokkið vel og
rækilega niður heimslistann í bili – en við
skulum hugga okkur við, að einhversstaðar í
íslenska skólakerfinu (nú, eða leikskólunum)
leynist lítill arftaki okkar góða frænda...
M inningarmót Bridgefélags Reykja-víkur var helgað Ásmundi Páls-syni og Símoni Símonarsyni, sem
voru mjög áberandi alla sína lífstíð í bridge-
lífinu á Íslandi. Aðsókn var svo mikil að hús-
pláss varð að takmarka hana. Alls mættu 60
pör til leiks og öttu kappi í monradtvímenn-
ingi þann 30. desember þar sem spiluð voru
44 spil í 11 umferðum. Þeir félagarnir Örvar
Óskarsson og Ómar Freyr Ómarsson unnu
þetta jólamót með miklum yfirburðum,
vermdu efsta sætið lungann af mótinu og
voru með 5% meira skor en parið í öðru sæti.
Lokastaða 5 efstu para varð þannig:
1 . Örvar Óskarsson – Ómar Freyr Ómarsson 63,8%
2. Gunnlaugur Sævarsson – Kristján Már Gunnarsson 58,8%
3. Guðmundur Sv. Hermannsson – Björn Eysteinsson 56,9%
4. Gabríel Gíslason – Gísli Steingrímsson 56,0%
5. Páll Valdimarsson – Baldvin Valdimarsson 55,1%
Spil 43 í síðustu umferð vakti verðskuldaða
athygli. Suður var gjafari (enginn á hættu)
og spaðasamlega fyrir hendi í NS. Flestir
komust að því að tvo hæstu vantaði í laufi og
létu geim duga og slemmu vera. Fimm pör
létu vaða í spaðaslemmu (af 30) en aðeins
tvö fengu að standa þann samning. Vestur
átti út og fann í engum tilfellum af þessum
fimm slemmum frá fimmlitnum sínum í
laufi. Hins vegar er hægt að finna skemmti-
lega vinningsleið ef vörnin tekur ekki tvo
fyrstu slagina á lauf, þó að hún hafi sjaldnast
fundist:
Hjartadrottning verður að liggja á undan
ÁG, tígull að haga sér (ekki verr en 3-2
skipting) og vestur verður að eiga ann-
aðhvort háspilanna í laufi (hann á varla
bæði því þá hefði hann tekið þau í upphafi).
Sagnhafi tekur tíu slagi, fimm á spaða, fjóra
á tígul, hjartakóng og endar í norðri. Vestur
er í vandræðum og verður að halda valdi á
hjartadrottningu sinni í þriggja spila end-
astöðu. Hann verður að halda D10 í hjarta
og fara niður á laufkóng blankan. Sagn-
hafi spilar laufi frá norðri og vestur, inni á
laufkóng, verður að gefa svíningu í hjarta.
Það dugar ekki austri að taka slag á laufás
og fella kóng vesturs því austur verður þá að
spila frá laufi sínu.
Hrannar og Runólfur sigurvegarar
Að venju var góð þátttaka í jólamóti Bridge-
félags Hafnarfjarðar en 57 pör tóku þátt að
þessu sinni. Mikil barátta var um efsta sætið
og mörg pör vermdu efsta sætið í keppninni.
Félagarnir Hrannar Erlingsson og Runólfur
Jónsson höfðu sigur að lokum eftir að hafa
verið í toppbaráttunni mestallan tímann á
meðan mótið fór fram. Lokastaða 5 efstu
para varð þannig:
1. Hrannar Erlingsson – Runólfur Þór Jónsson 59,3%
2. Guðmundur Baldursson – Steinberg Ríkarðsson 58,8%
3. Ingvar Jónsson – Jón Sigurbjörnsson 58,2%
4. Gunnlaugur Sævarsson – Kristján Már Gunnarsson 57,7%
5. Helgi Bogason – Guðjón Sigurjónsson 57,5%
Enn ein skrautfjöður
Hjónin Matthías Gísli Þorvaldsson og
Ljósbrá Baldursdóttir bættu enn einni
skrautfjöðrinni í hatt sinn og unnu
öruggan sigur í sveitakeppni á Bridgehátíð
Vesturlands sem spiluð var á Hótel Hamri
um síðustu helgi. Sveitarfélagar þeirra
voru Sævar Þorbjörnsson og Karl Sigur-
hjartarson, sem náðu einnig efsta sæti
í bötler útreikningi í frammistöðu para.
Þeir skoruðu 2,12 impa að meðaltali í plús
í spili í 7 leikjum sem voru 8 spil að lengd.
Ljósbrá og Matthías hafa verið sigursæl í
mótum undanfarna mánuði. Lokastaða 5
efstu sveita (af 22) í sveitakeppninni varð
þannig:
1. Ljósbrá ........................................................................... 152
2. Grábrók .......................................................................... 134
3. Grant Thornton ............................................................. 130
4. Strumparnir .................................................................. 121
5. Skákfjelagið ................................................................... 115
Sunnudaginn 5. janúar var haldin tvímenn-
ingskeppni. Þátttaka í henni var töluvert
dræmari en í sveitakeppninni og mættu 20
pör til leiks. Fyrrum þingmaðurinn Birkir
Jónsson og Guðmundur Baldursson voru
hlutskarpastir á endasprettinum, voru í öðru
sæti fyrir lokaumferðina og tryggðu sér
sigur með góðan árangur í henni. Lokastaða
5 efstu para varð þannig:
1. Guðmundur Baldursson – Birkir Jón Jónsson 58,7%
2. Örvar Óskarsson – Guðni Einarsson 55,9%
3. Guðný Guðjónsdóttir – Harpa Fold Ingólfsdóttir 55,1%
4. Kristján Már Gunnarsson – Gunnlaugur Sævarsson 55,0%
5. Hallgrímur Rögnvaldsson – Guðmundur Ólafsson 54,7%
Bridge JólaMót BridgefélagS reykJaVíkur
Yfirburðasigur Örvars og Ómars Freys
♠ ÁD109
♥ ÁG6
♦ 9752
♣ 108
♠ KG862
♥ K
♦ ÁKD6
♣ D43
♠ 5
♥ D1074
♦ G104
♣ KG765
♠ 743
♥ 98532
♦ 83
♣ Á92
N
S
V A
Á myndinni eru þau þrjú pör sem skipuðu 3 efstu
sætin í minningarmóti BR um Ásmund Pálsson og
Símon Símonarson. Frá vinstri eru Björn Eysteins-
son og Guðmundur Sveinn Hermannsson sem
urðu í þriðja sæti, öruggir sigurvegarar eru Örvar
Óskarsson og Ómar Freyr Ómarsson og Kristján
Már Gunnarsson og Gunnlaugur Sævarsson höfn-
uðu í öðru sæti. Ljósmynd/Aðalsteinn Jörgensen.
Carlsen. Færir skákina á
nýtt stig. Fyrirsæta, auðkýf-
ingur, frægðardrengur.
Anand. Hóf skákina úr ösku-
stó á Indlandi. Þjóðardýrð-
lingur á Indlandi, goðsögn í
skáksögunni.