Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 67

Fréttatíminn - 10.01.2014, Síða 67
— 7 —10. janúar 2014 Ekki viðbúin fjölgun aldraðra Það besta við efri árin Framtíðarþing um farsæla öldrun var haldið síðasta sumar í tilefni af Evrópuári um virkni aldraðra og sam- stöðu kynslóðanna. Fyrir- komulag þingsins var það sama og á Þjóðfundunum 2009 og 2010 þar sem fólk vann saman í hópum. Eitt af viðfangsefnunum var að taka saman það besta við efri árin. Eftirfarandi eru nokkur atriði sem þátttakendur nefndu.  Tækifæri til að gera ýmislegt sem hefur beðið, eins og ferðast og sinna áhugamálum.  Frelsi  Meiri tími með börnum og ættingjum  Að ráða tímanum sínum  Vakna á morgnana og dóla sér  Að sjá barnabörnin vaxa úr grasi  Öðlast meiri yfir- vegun  Vera meðvitaður um hvað tíminn er dýr- mætur  Ferðast og skoða heiminn  Áunnin hugarró og þroski  Nægur tími til að lesa  Rækta samband við gamla vini  Sofa frameftir  Tími til að flokka myndir og bréf  Kaffi og hvítvínsboð með vinkonunum  Njóta þess að vera maður sjálfur  Það er flott að vera ættmóðir eða ættfaðir  Lesa sér til ánægju allan daginn  Að gera allt í róleg- heitum, ekkert stress  Eiga frí í miðri viku 2014 2024 2034 2044 15,1% 17% við viku til að úthluta rýminu aftur og það gildir líka í þessum tilvikum. Þetta er tilraun og eigum við eftir að sjá hver niðurstaðan verður.“ Núna hafa tveir nýtt sér þetta úrræði á Hrafnistu í Kópavogi og leggur Hrönn áherslu á að aldraðir séu fjölbreyttur hópur fólks með ólíkar þarfir sem koma þurfi til móts við. Samlokukynslóðin Í sumum tilfellum er það þannig að þegar fólk kemst á það háan aldur að þurfa á miklum stuðningi barna sinna að halda eru börnin sjálf orðin mjög fullorðin. Líklegt er að börn níræðs fólks séu á milli sextugs og sjötugs og jafnvel eldri. Þessi hópur fólks er gjarnan kallaður samlokukynslóðin og segir Hrönn til útskýringar að foreldrar fólks í þessum hópi séu oft háaldraðir og mikið veikir og að á þeim sé einnig álag frá börnum og barnabörnum sem þeir sjái um að passa. „Þetta kallast að vera í samlokunni og ef til vill er að fjölga í þessum hópi. Hérna sjáum við oft marga sjúklinga verða til úr einum. Fólk getur sjálft veikst af álaginu og ábyrgðinni sem fylgir því að bera ábyrgð á umönnun foreldra sinna.“ Ný hugmyndafræði Hrafnista í Kópavogi opnaði fyrir fjórum árum og hefur verið farin ný leið í hugmyndafræði þannig að staðurinn sé líkari heimili en sjúkrastofnun. „Fólk kem- ur með gardínur, rúmföt og handklæði með sér og starfsfólkið er ekki í einkennisfötum, heldur í hefðbundnum klæðnaði. Svo erum við ekki með ákveðna fóta- ferðar- og baðtíma. Flest hjúkr- unarheimili sem opna í dag eru á þessum nótum, eins og Ísafold í Garðabæ, Hlíð á Akureyri og Brákarhlíð í Borgarnesi.“ Rannsókn sem gerð var árið 2003 meðal sjúklinga á öldrunarsviði Landspítala leiddi í ljós að nær 60 prósent þátttakenda væru vannærðir. Slík rannsókn hefur ekki verið framkvæmd síðan hér á landi svo lítið er vitað um stöðuna nú. Nær- ingarástand fólks á hjúkrunarheimilum hér á landi hefur ekki verið rannsakað. Að sögn dr. Ólafar Guðnýjar Geirsdóttur, næringarfræðings á Rannsóknarstofu í öldrunarfræðum, hvarflaði ekki að fólki árið 2003 að svo mikil vannæring væri meðal aldraðra sjúklinga á Landspítala og rannsóknin leiddi í ljós. „Það er mikil- vægt að skoða hver staðan er í dag og hvort sú vitundarvakning sem varð þá hafi einhverju breytt því hvernig við sinnum þessum málaflokki. Annars erum við ekki að sinna þessu góða fólki sem gerði okkur kleift að hafa það eins gott og við höfum það núna.“ Ýmsar ástæður, bæði líkamlegar og félagslegar, geta legið að baki því að eldra fólk nærist illa og nefnir Ólöf sem dæmi að það sé ekki eins skemmtilegt að elda og borða einn og í góðum félagsskap. „Það þyrfti að stofna hópa sem hittast og elda og borða saman. Það myndi auka lífsgæði margra. Stundum læt ég mig dreyma um að eldra fólk geti fengið til sín skemmtilega félagsliða sem fara með því í búðina og kaupa í matinn, elda og borða.“ Ólöf segir bragðskyn einnig minnka með aldrinum og að lyf geti truflað bragðskyn, til dæmis þannig kaffi- eða kjötbragð verði vont. Þörf á rannsókn á næringu aldraðra Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Kópavogi. Lj ós m yn di r/ H ar i Lj ós m yn d/ N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.