Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 43

Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 43
Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Hako sópar og sópvélar – á vortilboði Hako Profi-Flipper Handhægur og góður sópur Afköst: 2.300 m2 á klst. Hako Hamster 500E Rafdrifin og afkastamikil sópvél Afköst: 2.400 m2 á klst. Hako Jonas 800E Rafdrifn og öflug sópvél Afköst: 6.600 m2 á klst. Hafið samband við sölumenn eða þjónustuver RV sem veita nánari upplýsingar. KOMDU MEÐ MÁLIN og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð. FAGMENNSKA í FyrIrrúMI Þú nýtur þekkingar og reynslu og fyrsta flokks þjónustu. VIÐ KOMUM hEIM tIL þíN, tökum mál og ráðleggjum um val innréttingar. þú VELUr að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, samsetta, eða samsetta og uppsetta. Mán. - föst. kl. 09-18 · Laugardaga kl. 11-15 Við sníðum innréttinguna að þínum óskum. þú getur fengið skúffur og útdregin tauborð undir vélarnar, einnig útdreginn óhreinatausskáp, kústaskáp o.m.fl . Baðherbergi Uppþvottavélar Helluborð Ofnar Háfar Kæliskápar RAFTÆKI FYRIR ELDHÚSIÐ SANNKALLAÐ Vandaðar hirslur Þvottahúsinnréttingar ÁByrGÐ - þJÓNUStA 5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum. Fríform annast alla þjónustu. (Trésmíðaverkstæði, raftækjaviðgerðaverkstæði). VÖNDUÐ rAFtÆKI Á VÆGU VErÐI friform.is Viftur PÁS A ERÐ Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höFum VIÐ ÁKVEÐIÐ AÐ bjóÐA oKKAR ALbESTA VERÐ Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 AFSLÁttUr 30% AF ÖLLUM INNrÉttING UM tIL PÁSKA Þrjár týpur spænskra feðra José-Andrés segir mega skipta spænskum feðrum upp í þrjár týp- ur. „Það eru ungu pabbarnir sem eru í góðri vinnu en klæða sig frek- ar afslappað og hætta snemma í vinnunni til að sækja börnin á leik- skólann. Þessir pabbar eru óhrædd- ir við að taka fæðingarorlofið sitt og nýta þann frítíma sem er í boði til að rækta sambandið við börnin sín. Þetta eru pabbarnir sem trúa virkilega á að jafnrétti kynjanna sé öllum í hag og að það opni nýjar víddir sem voru þeim áður lokaðar. Þetta er í raun framúrstefnan, lítill minnihluti enn í dag, en sem sækir fram af krafti.“ Svo eru það pabbarnir sem er kannski ekki hægt að kalla karl- rembur, en sem eru enn ómeð- vitaðir um kosti jafnréttis þó þeir haldi að þeir séu jafnréttissinnar. Þetta er langstærsti hópurinn á Spáni. Þeir hafa þó nokkurn áhuga á að taka einhvern þátt en eru ekki drifnir áfram af því að vera góðir feður og eyða tíma með börnunum sínum. Þeir eru smeykir við að nýta sér fæðingarorlofið og að taka fjölskyldu fram yfir vinnu meðan börnin eru ung en þetta er líka sá hópur sem er hægt að hafa hvað mest áhrif á með umbótum í sam- félaginu. Þetta eru pabbarnir sem þurfa á því að halda að fæðingar- orlofið verði jafnt á milli kynja svo það verði einhvern tímann almenni- leg hugarfarsbreyting. Það er líka mjög mikilvægt fyrir þennan hóp að dagheimilin og leikskólarnir haldi áfram með sömu starfsemi þrátt fyrir kreppuna, að hið opinbera skeri ekki niður á röngum stöðum.“ Svo er það þriðji hópurinn sem er sá íhaldssamasti og þar finnur þú gömlu karlremburnar. Þessi hóp- ur telur ekki bara eldri kynslóðina heldur finnast helst karlrembur inn- an lægst settu stéttarinnar, þar sem mesta fátæktin er og menntastigið því ekki hátt. Innan þessa hóps er gamla kynjaskiptingin enn við lýði og er ekkert á förum nema allt sam- félagið breytist,“ segir José-Andrés. Klassíska karlmennskan er takmörkuð José-Andrés er þó bjartsýnn á framtíðina. „Mín tilfinning er sú að þessir framúrstefnupabbar sæki sterkt fram og ég held að það sé að einhverju leyti fæðingarorlof- inu að þakka, þrátt fyrir að það sé enn stutt. Áhugi karlmanna á því að taka þátt er að aukast, þeir eru að átta sig á því að það felast lífs- gæði í því að fá að taka þátt og að í stað þess að minnka karlmennsk- una þá þess heldur dýpki það hana. Hin klassíska karlmennska er mjög takmörkuð því hún hindrar þig í að uppgötva og upplifa fullt af hlutum. Svo spænskir karlmenn eru að upp- götva að það er líf fyrir utan vinn- una og að jafnrétti er ekki bara hagsmunamál fyrir konur heldur líka fyrir karla.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.